Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 6

Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 6
22 KVENNA.BLAÐ1Ð réttur þjóðanna sé verndaður með lögum 1 stað ofbeldis. Skynsamlegt að konurnar verði með- ráðandi í því landi, fyrir hvert þær ala og upp- ala hina nýju kynslóð. Á þessu skelfinganna ári, er nú hefur hulið sinn blóðuga hjúp í náttmyrkri liðna tímans, hefur einn atburður orðið mér tákn framtíðar- möguleikans. í Rómaborg komu saman í októbermánuði fulltrúar frá 55 ríkjum — þar á meðal frá öllum ófriðarríkjunum — til þess að halda hinn alþjóð- lega landbúnaðarvísindafund. Meðan jörðin vökvaðist blóði, huldist líkum og tættist sundur af sprcngikúlum, var það umhyggjan um móður- næringuna, sem á ófriðartímunum sameinar fulltrúana einnig frá ófriðarþjóðunum. Sá dagur mun koma, er umhyggjan fyrir móður- kölluninni á sama hátt saman safnar fulltrúum alls mannkynsins. Eigi munu þá — frekar en nú — stríð meðal þjóðanna, tálma friðsamlegri samvinnu er stefna að því, að gefa þessum tveimur miklu lífseflandi og lífsverndandi öflum — móðurinni og jörðunni — sinn rétta stað í tilverunni. Of lengi hafa mæðurnar sætt sömu meðferð og jörðin. Móðir jörð, sem átti að þola alt og þó án afláts gefa. Langt er síðan mönnum skild- ist það, að þetta er misskilningur að því er jörð- ina snertir. Á meðan þolinmæði kvennanna helst, fremja mennirnir hina sömu yfirsjón gagn- vart þeim. En þessi ófriður leiðir óðfluga að því að þolinmæði kvennanna þrjóti. Konurnar — eins og jörðin — hafa styrjöld eftir styrjöld notað krafta sína til þess að endur- nýja það, er styrjöldin eyddi. Það munu þær gera einnig nú. En ætli það verði, eins og áður, án allrar umhugsunar? Eða mun ei árið er leið, og það ár, er nú byrjar, verða til þess að vekja þúsundir kvenna og kenna þeim, að það er skylda þeirra gagnvart fósturjörðinni, að krefjast réttar, til þess að ráða að sínu leyti örlögum sinum og barna sinna. Að karlmennirnir séu eigi einfærir um það. Þar um ætti árið 1914 seint og um síðir að hafa sann- fært — jafnvel karlmennina sjálfa. Þegar konurnar hafa unnið rétt til þess að ráða með í þjóðfélagsmálunum, mun hinn lifandi. mannlegi máttur, sem nú í gengdarleysi er fórnað, af svokallaðri stjórnarfarslegri nauðsyn, verða talinn dýrasta eign hvers ríkis. Og fremsta hlut- verk stjórnhyggindanna verður þá að vernda, efla og göfga þennan mátt. Við það verður friðar- hugmyndin vakandi og áhuga stjórnmálamann- anna beint að því að leysa úr þrætunum á frið- samlegan hátt í stað þess, sem nú, með vfgbún- aðarsamkepni. Þetta er sú eina framtíðarvon er eg get gert mér. Og þessi von hvllir á engu öðru en áliti mfnu á insta krafti kveneðlisins. Er ekki allri móðurtilfinningu svo mjög storkað með þessum ófriði, að það hlýtur að draga að þvf að konur rísi upp ailar sem ein á móti ranglætinu. Vöxtur og blómgan þjóðanna er sú von, er menn nú fórna lífi sínu. Takmörk kvennana er hið sama, «n hjá þeim verður vissan um það, að mann- kynið verði að leita nýrri ráða til þess að ná því raarki, æ öflugri og ákveðnaric. Inga Ldra Ldrusdóttir. (Fyrirl. haldinn í Kvenréttindafél. f Rvík.) Danmörk lærir stiórnvizku af íslandil Það tákn tímanna hefir borið við að allir stjórnmálaflokkar i Danmörku hafa komið sér saman um nýtt Grundvallar- lagafrumvarp, sem þeir eru ásáttir um að láta ganga fram og gengið verði til kosninga um, œsingalaust i vor. Vona menn að það verði orðið að lögum 5. júní næstkomandi sjálfan Grundvallar- lagaafmælisdaginn. En það allra furðu- legasta i þessu máli er það, að flokk- arnir hafa allir tekið upp hinn nafnfræga islen/.ka, stjórnvi/kulega búhnykk, að veita ekki konum fullan kosningarrétt, heldur smá skamta þeim hann úr hnefa í 15 ár, þannig, að byrjað sé á þeim fer- tugu og svo haldið ofan eftir þangað til að 16 árum liðnum að allar 25 ára kon- ur hafi fengið hann. Auðvitað munu hinar dönsku systur vorar eins og vér, verða fegnar að fá þessum rétti þeirra slegnum föstum, held- ur enn að verða að berjast um hann með öllum ráðum um marga tugi ára enn þá, og sjá þó engan árangur. En ilt og broslegt er það þó, að sjá hvernig

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.