Kvennablaðið - 07.05.1915, Qupperneq 10

Kvennablaðið - 07.05.1915, Qupperneq 10
a6 KVENNABLAÐIÐ Tillögurnar sem ræða átti voru svipað- ar og á Haagfundinum. Stærsta kvenréttindafélagið á Englandi hélt ársfund sinn í febrúar. Á honum mótmælti það ófriðnum kröftuglega og samþykti likar tillögur og hinir fundirnir. í Ameríku á að vera stór friðarfundur í Ghicago, er Mrs C. Chapmann Catt ein af frumkvöðlunum. Verða svipaðar tillögur ræddar þar og samþyktar. Fyrsta markmið allra þessara funda er að mótmæla sem kröftuglegast öllum stríð- um, og leitast við að koma þeirri skoðun inn hjá þjóðunum að þau séu alveg ólög- mæt og ranglát, að engin mál eigi að úr- skurðast af herafla, heldur af alþjóða- gerðardómi, og að þjóðirnar einar hafi vald til að ákveða hvort þær skuli lenda i öllum þeim hörmungum sem þvi fylgja eða ekki. En þá verði konurnar að hafa um það jafnan atkvæðisrétt, og til þess verði þær að fá full pólitísk réttindi. Það verði fyrsti og öruggasti vegurinn til að tryggja • stöðugan alþjóðafrið. Áskoranir frá merkustu konum bæði í Þýskalandi og Austurríki, hafa líka komið fram í fjölda blaðanna, þar sem þær skora á allar konur Norðurálfunnar að leggjast á eitt til að taka í taumana og afstýra þessum voðalega ófriði, sem sé sannnefnt þjóðainorð, eða þjóðaslátrun. Kveða þær það mundi mikið stoða, ef allar konur, bæði hlutlausra ríkja og ófriðarríkja, gerðu alt, sem unt væri til að mótmæla þessu, og á þann hátt sköpuðu það almennings- álit, sem gerði slík stríð óhugsandi aftur. Af öllu þessu má sjá að konurnar hafa nóg að starfa, og að þær starfa á annan hátt en karlmennirnir. Öll þeirra viðleitni vinnur að því að skapa varanlegan frið, og velferð þjóðanna með friðsamlegum með- ölum. Og þótt menn Ieggi ef lil vill, ekki mikinn trúnað á áhrif slíkra friðarstarfa, »á þessu stigi málsins« þá holar dropinn steininn, og að Iokum vinnur vonandi sá hugsunarháttur sigur. — Vænlegri stjbrnmálahorjur? Eins og mönnum er kuunugt þá hefir nýlega orðið ráðherrEskifti. Sig. Eggerz er farinn frá, og prófessor Einar Arnórs- sor kominn í hans stað. Hann var einn af þeim þremur þingmönnum, sem kon- ungur boðaði utan á sinn fund. Margar getur voru leiddar að því hvaða áhrif þessi utanför þeirra mundi hafa á pólitísku stórmálin; stjórnarskrána og fána- málið. Flestir bjuggust við að einhver þeirra tæki við stjórninni. En gátum vér vænst þess að þeir mundu leysa þann gordiska rembihnút sem sjálfstæðisflokk- urinn og ráðherra hans höfðn hnýtt svo rækilega? Var nokkur von til þess að þessir þrir sjálfstæðisþingmenn vildu leit- ast við að greiða úr þessari pólitísku vandræðabendu? Já, vér vonuðum öll að þeir mundu eitthvað gera til að reyna að greiða úr mesta ólaginu, mundu reyna að fá þessi tvö stórmál »endurlifguð«, og afgreidd sem lög, einkum af því að vissa var fyrir því að H. Hafstein mundi hafa fengið loforð hjá konungi um einhverja tilhliðrun, sem hann taldi nægja til þess að stjórnarskráin og fánamálið mundi verða samþykt.------- Eíns og menn vita hafa þeir félagar lít- ið lálið uppi um erindislok sín, annað en það, að þeir telja tiklegt að fá megi hvoru- tveggju málunum framgengt með kjörum, sem þeir álíti aðgengileg. Menn skyldu nú ætla að flokkur sá. sem einhuga samþykti Stjórnarskrármálið, að Benedikt Sveinssyni einum undantekn- um, mundi taka fegins hendi við slíkum málalokum. Og það því fremur, sem þetta voru einmitt kröfuhörðustu mennirnir. Að minsta kosti hafði E. Arnórsson manna- mest unnið að því með ritgerðum sinum í Ingólfi; og viðar, að fá menn á þá skoðun að Stj.skr. ætti ekki að samþykkjast á þeim grundvelli, sem lá fyrir þinginu 1914. Mönnum hefði því fundist líklegt að sú trygging sem lá i þvi, að hann værí nú

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.