Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 13

Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 13
KVENNABLAÐIÐ 29 stórmorð. Vér heimtum frið með hin- um heilaga rétti mæðranna. Gangið til allra miljónanna í öllum- löndum með þessa kröfu, gangið með hana fram fyrir landsstjórnir yðar, — allar einhuga og samtaka, — og ekkert vald á jörðunni getur þá lengur haldið frið- inum fyrir oss«. — — Ensk kona ritar í Jus Suffragii: -----Með hverjum mánuði sem líður hefi eg fundið sterkara og sterkara til allra skelfinga stríðsins, sem eru sameigin- legar fyrir okkur allar. Við finnum í hjarta okkar að þýsku eiginkonurnar og mæðurnar, liða jafnmikið og þær vin- konur okkar hér, sem mist hafa syni sína og eigin menn, eða eins og hinar hug- rökku frönsku konur, sem hafa orðið fyrir sömu ógæfunni. Hjarta mitt þjáist með þeim öllum. Við syrgjum allar jafnmikið. Minn elskaði elsti sonur er að eins einn af þúsundi; æ, einn af hundrað þúsundum, sem mun verða drepinn áður en striðinu linnir. Það er minn Hugh, þeirra Jaques, þeirra Fritz, þeirra Nicho- laus. Hvað gerir þjóðernið til? Allar mæo- ur finna til hver með annari i þessari sam- eiginlegu sorg. Hún bindur okkur allar saman, þrátt fyrir ólík þjóðerni, stöður og trúarbrögð. Mæðra hjörtun eru all- staðar eins«. Euakar konur sendu mótmæla undir- skriftir gegn striðinu til stjórnarinnar. Og gamla Mrs. Despard þreytist aldrei í blaði sinu að mótmæla þvi, sem alger- lega ókristilegu, skaðlegu og gagnslausu að öllu leyti. Það leiði af sér hatur, sem heri i sér fræin að nýjum striðum. Búl?arskar konur og aðrar fleiri frá Balkanlöndunum sendu líka mótmæla áskorun i blöðin. Þær segjast hafa dýr- keypta reynslu frá siðasta ófriði Balkan- landanna, að jafnvel þeir, sem vinni hinn svokallaða sigur að lokum, verði fyrir óbætanlegum skaða, á allan hátt. Þvi skora þær á enskar konur að láta ekki ginnast, heldur stuðla af öllum mætti að varanlegum friði. — » Friðaráskorun amerískra kvenna. Bréf petta og áskorun frá amerískum kon- um í Chicago barst ritstjóra þessa blaðs með síðasta skipi. Eins og sjá má af bréfinu senda þær samskonar áskoranir út um allan heim. Eru konur nú víða í löndum farnar að setja á fót hjá sér samskonar friðarnefndir, til að vinna að nafna undirskriftum undir líka áskorun, sem pær senda svo landstjórnum sinum, er senda pær þeim, sem um friðarskilmálana fjalla að lokum, að stríðinu enduðu. Flest eða öll Norðurlönd hafa sett á fót slíka friðarnefnd. Kvbl. mun síðar ræða petta mál nákvæmar. Bréfið og áskorunin var á ensku, en hafði líka verið pýtt á vel skrifaða hreina íslenzku. Hafa pví einhverjir ísleudingar liklega verið i friðarnetndinni. »Háttvirta frú: Friðarnefnd kvenna snýr sér til kvenna um allan heim til þess að fá þær til að láta einróma þá ósk í ljósi, að frainvegis verði allar deilur þjóða á milli, lagðar í gerð: í Bandaríkjunum láta kvenfélögin bænarskrá ganga milli manna, og munu þau reyna til að fá undirskrift allra kvenna undir hana, hvort sem þær eru í nokkrum kvenfélögum eða ekki. Þess- ar undirskriftir verða sendar til Washing- ton, þegar til sættaumleitanna kemur, og vér vonum fastlega, að þær megi stuðla sterklega að því, að stöðugur og almenn- ur friður fáist. Hér með fylgir eintak af bænaskránni og jafnframt af bréfi því sem sent hefir verið til allra rikisformanna Kvenrétt- indafélagasambandsins i Bandaríkjunum. Viljið þér nú með tilstyrk félags- yðar, eður á annan hátt, er yður finst best, koma á líkri breytingu í landi yðar, svo að sérhver kona megi láta til sín heyra, og beri fram óskir sínar til stjórnarinnar i landinu, að ítrustu tilraunir verði gerð- ar til þess að fá tryggingu frá öllum þjóðum íyrir því, að fastur friður kom- ist á með gerðardómi. Gerið svo vel að láta nefndina vita,

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.