Alþýðublaðið - 02.12.1960, Side 10
Ritstjóri: Örn Eiðsson
Beztu frjálsíþróttaafrekin'60:
JvÆST eru það stökkin, en í
þeim erum við langsterkastir
á alþjóðamælikvarða í frjálsí-
þróttum. Islenzkir stökkvarar
gætu næstum mætt hvaða þjóð
sem er í Evrópu með góðum
árangri.
* MET VILHJÁLMS
BER HÆST
Þrístökksmet Vilhjálms Ein-
arssonar, 16.70 m er langbezta
íþróttaafrek ísiendings fyrr og
síðar, enda var það jafnt stað-
festu heimsmeti. Pólverjinn.
Sshmidt hafði stokkið 17,03
m tveim dögum áður á pólska
meistaramótinu. Töluvert hef-
•ur verið skrifað um þetta af-
Ttk Vilhjálms úti í heimi. ít-
alski talnaprófessorinn Quer-
eetani fór lofsamlegum orðum
um Vilhjálm í bandaríska tíma
ritinu „Track and field News“
Vilhjálmur Einarsson
stekkur 16,70 m.
10 2. des. 1960. —
og taldi hann ásamt Schmidt
bezta þrístökkvara sem heim-
urinn hefði alið, Pólverjann þó
fremxi. Rússinn Fedosjev, sem
einnig hefur stokkið 16,70 hef-
ur hvorki fyrr né síðar nálgast
það afrek. Vilhjálmur var ó-
heppinn á Olympíuleikunum,
að ná ekki a.m.k. 3ju verðlaun-
um, en Kreer og Davis voru hin
ir heppnu þar, náðu einu
„lukkustökki“ hvor og sá fyrr-
nefndi krækti í bronzið á því
stökki. í þrístökki eru nokkrir
efnilegir ungir stökkvarar, svo
sem Ingvar Þorvaldsson, Kristj
án Eyjólfsson, Þorvaldur Jón-
asson o. fl. Þessir piltar ættu
allir að nálgast 15 m næsta sum
ar. Jón Pétursson getur hvenær
sem er stokkið þá vegalangd,
en hann hefur hástökk sem að-
algrein og nóg af aukagrein-
um.
VILHJÁLMUR EINNIG
LANGBEZTUR í
LANGSTÖKKI
Langstökkið er svipað og í
fyrra og sömu menn á toppn-
um. Einar með rúma 7 metra
og Björgvin tæpa 7 m. Jón Pét-
ursson tók einu sinni þátt í
langstökki á innanfélagsmóti í
sumar og náði hinu ágæta af-
reki 6,80 m. í ógildu stökki náði
Jón ca. 7 m og sýnir það hinn
mikla kraft og fjölhæfni sem
býr í Jóni.
Húnvetningurinn Sigurður
Sigurðsson náði sínum bezta
árangri í greininni, 6,82 m og
vafalaust búa 7 metrar og vel
það í Sigurði. Kristján og Þor-
valdur eru einnig efnilegir í
langstökki.
ir LOKSINS KOMU 2 M
í HÁSTÖKKI
Hástökkið var með bezta
móti í sumar, en skemmtilegast
var, að við skyldum eignast 2
metra stökkvara. Jón Péturs-
son fór þá hæð á meistaramót-
inu og oft var hann nærri því
að fara þá hæð og stundum
hærra. Enginn vafi er á því að
að sjá 2 metra og kannski 2,05?
Jón lætur ekki staðar numið,
næsta sumar fáum við vonandi
Nafni hans Ólafsson tók mikl
um framförum á sumrinu og
bezt stökk hann 1,88 m, sem er
þriðji bezti árangur íslendings.
Jón er enn kornungur, verður
unglingur næsta ár. Hann hef-
ur mikla hæfileika og þarf að-
eins að tileinka sér einkunarorð
Torfa Bryngeirssonar, eins okk-
ar bezta keppnismanns: „Nerv-
ös, það er bara verra!“
Hafnfirðingurinn Kristján
Stefánsson, sem er okkar efni-
legasti spjótkastari, kann einn-
ig að stökkva hástökk, þar er
mikið efni í afreksmann í frjáls
íþróttum.
ST.4NGARSTÖKKIÐ
SVIPAÐ OG í FYRRA
Síðasta stökkgreinin, stang-
arstökkið er svipað og í fvrra,
Valbjörn aðeins lakari, hann
byrjaði vel á fyrsta mótinu,
stökk þá 4,40 m, en náði síðan
ekki betra, þó að stundum
væri hann nálægt 4,50 m. Það
búa 4,50 og hærra í Valbirni,
hann þarf aðeins að æfa sig
heldur betur. Það sama má
reyndar segja um næstu-menn
afrekask-rárinnar í þessari
grein.
Kristján Eyjólfsson
stökk 14,13 m í sumar.
Hástökk:
1. Jón Pétursson, KR 2,00
2. Jón Þ. Ólafsson ÍR 1,88
3. Ingvar Hallsteinss., FH 1,81
4. Kristján Stefáns., FH 1,80
5. Ing. Hermannss., ÞÓR 1,76
6. Þorv. Jónasson, KR 1,75
7. Ing. Bárðarson, HSK 1,75
8. Eyv. Erlendsson, HSK 1,75
9. Sigurður Láruss., Á 1,75
10. Björgvin Hólm, ÍR 1,75
11. Valbj. Þorláksson, ÍR 1,74
12. Helgi Hólm, ÍR 1,72
13. Karl Torfason, HSH 1,71
14. Karl Hólm, ÍR 1,70
15. Birgir Helgason, KR 1,70
16. Egill Friðleifsson, FH 1,70
17. Þorb. Þórðars., UMSB 1,70
18. Hörður Jóh.s., UmsE 1,69
19. Eiríkur Svensson, KA 1,66
20. Þórður Indriða., HSH 1,66
» w 4t w» m| Jr+ ot.yrtað
Verkfall hjá enskum ?
Danskar gefraunh
taka ítalska leiki
Vegna yfirvofandi verkfalls
enskra atvinnuknattspyrnu-
manna hafa getraunirnar á
Norðurlöndum komizt í nokk
urn vanda, þar sem mest hefur
verift um leiki úr ensku deilda
keppninni á getraunaseðlunum.
Ef ekki næst samkomulag mún
verkfall þetta hefjast 13. des-
ember.
15 stig, síðan kemur Inter með
14 stig, Milan 12 og Fiorentrna,
Juventus, Catania og Samp-
doria öll með 11 stig. Á Ieik
NapolL og Milano horfðu 70
þúsund manns, en þeir síðar-
nefndu unnu 2:1. Síðan korrt
Inter-Sampdoria með 60 þús.
áhorfendur, sem Inter vann
3:0.
Danskar getraunir hafa nú
þegar ákveðið að taka leiki úr
ítölsku deildakeppninni á get-
raunaseðlana. Norsku getraun-
irnar hafa ekki enn tekið á-
kvörðun, en sennilegast er, að
þær fylgr á eftir,
ítalska knattspyrnan er mjög
sper.nandi þessa dagana eins og'
svo oft áður og áhugi áhorfenda
er gífurlegur. Um síðustu helgi
var sett met í aðsókn. Fjölsótt-
asti leikurinn var milli Roma
og Juventus. Hann fór fram á
Olympíuleikvanginum og var
uppselt eða um 100 þúsund á-
horfendur. Eins og er hefur
Roma forystu í I. deild, en Ju-
ventus vann í fyrra. Roma vann
leikinn með 2:1. Þeir hafa nú
Svíinn Liedholm, sem leikur
með Milan var nú aftur með
eftir hvíld í þrjá leiki. II
Conte eða greifian eins og hann
er kallaður, stóð sig frábær-
Iega leiknum og var bezti mað-
ur vallarins ásamt markmanni
liðsins, hinum frábæra Chezzr.
Langstökk:
1. Vilhj. Einarsson, ÍR 7,41
2. Einar Frímansson, KR 7,02
3. Björgvin Hólm, ÍR 6,93
4. Sig. Sigurðsson USAH 6,82
5. Jón Pétursson, KR 6,80
6. Þorv. Jónasson, KR 6,74
7. Ingvar Þorvaldss., KR 6,65
8. Pétur Rögnvaldss., KR 6,61
9. Kristján Eyjólfss., ÍR 6,60
10. Úlfar Teitsson, KR 6,58
11. Ól. Unnsteinsson HSK 6,56
12. Magnús Jakobs., UmsB 6,51
13. Þórður Idriðas., HSH 6,49
14. Valbj. Þorláksson, ÍR 6,48
15. Magnús Ólafsson, ÍR 6,38
16. Helgi Björnsson, ÍR 6,35
17. Ing. Hermansss., ÞÓR 6,35
18. Björn Sveinsson, KA 6,30
19. Unnar Jónsson UmsK 6,26
20. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 6,25
Steinar Hösk.s., HSV 6,25
Ágætur ár-
angur í sundi
j ÁGÆTUR árangur í suncli
, hefur náðst í Berlín. Kruppers.
setti met í 100 m. baksundi
1:03,6 mín. Tröger fékk 1:12,3
í 100 og 2:39,7 í 200 m. bringu-
sundi. Urselman sigraði í sömu.
vegalengd kvenna á 1:18,7 og
2,50,2 mín.
MWVMWWWWWWWWVW
Jungwirth
æfir vel ||
Tékkneski hlauparinn !>
Jungwjrth hefur verið
frekar óheppinn undan-
farið, en hann hefur átt
við þrálát meiðslr að!
stríða. Jimgwirth ætlár
sanrt ekki að hætta, en er j;
nú byrjaður að æfa af
fullum krafti fyrir næsta
keppnistímabil. Læknar
hans hafa gefið góðar von
ir um bata.
1 WMWtWWtWWWWWW
Alþýðublaðið