Alþýðublaðið - 21.03.1961, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 21.03.1961, Blaðsíða 10
WWWWWMWWWWVW Efnilegur í LQ)I Fram ber mikicf á ungum ogr efnilegum mönnum og segja má, að Fram ]>urfi ekki að kvíSa framtíðinni. Þessi ungi pilt ur, sem hefur knöttinn heit ir Xómas Tómasson og sýndi afburðagóðan ieik á snnnudagskvöldið gegrt Val. (Ljósm.: Syeinn Þorr móðsson). Bitstjóri: Örn E i ð s s o m íslandsmótið /. deild ÍSLANDSMÓTHE) í hand- knatíleik héíí áfram um helg- ina og var keppt bæði á laugar- 'og sunnudagskvöld. Tveir leik jir fóru fram í I. deild meistara- flokks karla á sunnudag, KR vann Aftureldingu naumlega 23:21 og Fram vann Val með töluverðum yfirburðum 24:13. AFTURELDING VANN FYRRI HÁLFLEIK KR-ingar tóku forystu í leikn um er nokkrar mínútur voru af leik. Heinz Steinmann skor ar og sltömmu síðar bætir Sig- urður Óskarsson öðru marki við. Helgr Jónsson ieikur skemmtilega á vöm KRriwga og skorar fyrsta mark Aftur- eldingar, en Reynir gerir þriðja mark KR úr vítakasti. Bern- hard Linn sem er í framför sem handknattleiksmaður skorar fyrir Aftureldingu, en Pétur gerir fallegt mark af Iínu, rétt á eftir og aftur skorar Reyni úr víti. Leikurin gerist nú allfjörug ur. Afturelding tegur ágæta spretti og nær yfirhöndinní í leiknum, en KR leikur mjög lélega, slæmar sendingar og óvenju opin vörn. Fjórum sinn um í röð hafnar knötturinn í marki KR, Helgi Jónsson tvö og B. Linn tvö, 6:5 fyrrr Aftur- eldingu. Karl Jóhannsson, lang bezti maður KR jafnar með á- gætu skoti. Enn taka Aftureldingamenn glæsilegan sprett, B. Linn tvö úr víti og Tómas Lár. tvö mjög falleg mörk. Og áfram heldur skothríð Aftureldingar, Reynir með hörkuskoti, B. Linn úr viti og Ásbjörn úr fríkasti við gífurleg fagnaðarlæti, staðan er 12:7 fyrir Aftureldingu! KR-ingar herða sig nú og eiga síðustu mínútur fyrri hálf leiks, skora fjögur mörk, Karl 2 og Heinz og Pétur 1 hvor. — Aftureldrngarmenn voru held- ur ákafir að skjóta eftir hinn mikla velgengniskafla og vöm- in var heldur sein aftur, þegar þeir misstu boltann. Fyrri hálf Ieik lauk með 12:11 fyrir Aftur eldingu. ★ VERÐSKULDAÐUR SIGUR KR 23:21. Lið KR var ákveðnara í síð ari hálfleik og það gerði gæfi muninn, þerr unnu verðskuld aðan sigur 23:21. Annars er KI í öldudal, liðið er illa samstill og knattmeðferð og leikskipu- lagr mjög ábótavant. Án Karls Jóhannssonar er vafasamt, að þetta ágæta lið hefði borið sig- urorð a£ Aftureldingu. Beztu menn í liði Aftureldingar eru Helgr Jónsson, Tómas Lárusson og Skúli Skarphéðinsson í markinu. Bemhard Linn er í mikilli framför eins og fyrr segir. Hannes Þ. Sigurðsson dæmdi leikinn vel. *FRAM SIGRAÐI VAL ÖRUGGLEGA 24:13. Valsmenn léku allvel í fyrri hálfleik gegn Fram eftir 15 mín. spil var jafnt 3:3. Þó vant aði Val Sólmund í markrð. í hans stað lék hinn gamalkunni markmaður Vals Stefán Hall- grímsson. Síðari hluta fyrri hálfleiks lék Fram skínandi vel á köfl- um, fallegar sendingar á línu og ágæt langskot, sérstaka athygli vöktu óvænt og snögg 1 skot Guðjóns Jónssonar, sem var bezti maður Fram liðsins. Fyrri hálfleik lauk með sígri Fram 11:6. Síðari hálflerkur var svipað- ur þeim fyrri, Fram jók stöðugt bilið og þegar leik lauk hafði Fram skorað 24 mörk gegn 13 mörkum Vals. Lið Fram er grernilega næst- bezta handknattleikslið lands- ins í augnablikinu og eina lið- :-ð, sem veitt getur FH ein- hverja keppní. Það samanstend ur af reyndum Ieikmönnum og mjög efnilegum nýliðum, þeim Tómasi Tómassyni og Sig. Ern arssyni. Val vantar tilfinnanlega Framhald á 11. síðu. Innanhúsmót í frjáls íbróttum í V-Þýzkal. Vestur-þýzka meistaramótrð í frjálsíþróttuin innanhúss fór fram í Stuttgart nýlega. — Helztu úrslit urðu: 60 mó: Cullmann, 6,6, Schutt- ler 6.7. 400 m.: Kinder, 48,0, Klappert, 49,2, Ulbricht 49,3. 800 m.: Schmidt, 1:50,4, Un- seld, 1:50,7, Wemer, 1:51,6. 1500 m.: Blatt, 3:46,2, Eier- kaufer, 3:49,2. 3000 m.: Böhme, 8:04,6, Miil- Ier, 8:12,2, Bötling, 8:17,4. 60 m. grrnd: Neusske, 8,0, Brocke, 8,0. Langstökk: Klein, 7,58, Deyer- ling, 7,34, Lothow 7,27, Hástökk. Púll 1,99 m., Rieben- sahn, 1,96 ni. Þrístökk: Hajek, 15,25, Wisch- meyer, 15,21 m., Strauss 15,01 m. Stangarstökk: Möhring, 4,20 m., Mathias 4,20 m. Kúluvarp: Lingnau, 1766, Ur- bach, 17,43, Wegman, 16,99 metra. Ársþing ÍBR í kvöld ARSÞING IBR verður haldið áfram í kvöld í Tjarnarcafé, og hefst kl. 20,00. Verða þá um- ræður um íþróttamannvirkja- gerð í Reykjavík, nefndir skila áliti, tilnefndir fulltrúar í full- trúaráð og á iþróttaþing ÍSÍ og kosinn formiaður framkvæmda- stjómar. 180 Á innanfélagsmóti ÍR í IR-húsinu s.l. sunnudag náði Valbjöm Þorláksson ágætum árangri í há- stökki, bæðr með og án at- rennu. Hann sigraði í báð um greinum, stökk 1,61 m án atrennu og 1,80 m. með atrennu, sem er hans bezti árangur í grein inni. SVEINN ljósmyndarj tók þessa skemmtilegu mynd á sunnudags- kvöldið. Hún sýnir að áhorfendur eru í góðu skapi að Háloga- landi, en ekki vitum við hvað kætir þá svona mikið. |0 21. marz 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.