Alþýðublaðið - 30.03.1961, Síða 2
0Ut]órnr: Gisll J. Astþórsson (áb.) og Benedlki cironaai — Fulltruar rit-
•tjómar: Sigvaldi Hjélmarsson og IndriSi G. Þorsteinsson — Fréttastjóri
BJOrgvin Guömund n — Símar: 14 900 — 14 902 - 14 903 Augiýsingasítni
14 906. — Atisetur: AlþýBuhúsið. — PrentsmiSja AlþýBublaðsins Hverfis-
götu 8—10. — Askriftargjald: kr. 45,00 á mánuðl 1 lausasölu kr. 3.00 ein»
fltaefand-: Alþýðuflok urinn — Framkvœmoastlóri Sverrir Kiartansson
Úrelt háfíðarhald
PÁSKAHELGIN er gengm í garð. Fjórir minn
ingardagar kristinnar kirkju koma með hálfum
I vinnudegi skotið inn á milli. Mikili hluti atvinnu
\ vega þjóðarinnar stöðvast, flest þjónusta við al-
, menning fellur niður, skemmtanalíf fær langa
hvíld, Nokkur þúsund lukkunnar pamfílar spóka
sig á skíðum eða út í náttúrunni (ef veður er
í gott), en 150—160 þúsund íslendingar sitja heima
j og láta sér leiðas't.
\ Svona er sannleikurinn um þessa helgi. Og við
spyrjum: er ekki slikt helgihald orðið löngu úr-
j elt? Við þoldum þetta í gamla daga, þegar at-
i vinnuvegir voru einthæfir og almenningsþjónusta
: nær engin, að ekki sé talað um tómstundalíf eða
j skemmtan. En hæfir þetta nútíma þjóðfélagi?
j Höfum við ráð á því framleiðslutapi, sem hátíð-
j in veldur, og getum við látið efnaminnstu borg-
; ara okkar, verkamennina, taka þetta á sig kaup-
laust, meðan aðrar stéttir hafa full laun fyrir að
láta sér leiðast?
Það er ekki niðrandi, þótt talað sé um leiðindi
í fólki, sem ekki getur eytt páskunum á skíðum.
Menn geta fundið sér sitthvað til hollrar heima
iðju og notið hvíldar með fjölskyldum sínum. En
leiðindi leggjast á vegna iðjuleysis og vegna
drungans, sem okkur venjulega tekst að setja á
Mtíðina.
Hátíðahaldið er úrelt og hæfir engan veginn
nútíma þjóðfélagi. Hins vegar er hinn kristni boð
skapur páskanna og upprisunnar sannarlega ekki
úreltur. Hann er jafn ferskur og áður, jafn stór-
brotin hamingjulind, sem gefur öllu Mfi einfald-
an og fagran tilgang,
Það ætti að vera áhugamál kirkjunnar að
halda ekki í úrelt foimsatriði, heldur gefa boð-
skap sínum nýja túikun viið aðstæður hverrar *
kynslóðar. Þess vegna ætti skírdagur ekki að
vera helgidagur framvegis. Síðan ætti að stöðva
vinnu, óþarfa þjónustu og alla skemmtan á föstu
I daginn langa og minnast krossfestingarinnar.
Laugardagur getur verið laugardagur áfram, en
Jpálskadagur ætti að vera dagur upprisunnar og
! «g gleðinnar, en annar páskadagur að falla niður
með öllu sem helgidagur.
’ Með sMkri skipan mundu allir aðilar betur á
I veginStaddir, •jw^a3Úrtt«úin>4- kkkjan,- átvinnuvegirn-
I ii', þjóðarheildin, einstakHngarnir. — Og svo
ættu verkamenn að fá fast vikukaup, svo að þeir
geti skaðlaust eins og aðrir veitt sér
! GLEÐILEGA PÁSKA
2 .30. marz 1961 — Alþvöublaðið
- ... r u . . . - . .... f ’ Pf
Úr ræðu
Sigurðar
Ingimundar-
sonar
í útvarpsumræðunum í fyrrn
kvöld bentí Sigurður Ingimund
arson ræðumaður Alþýðu-
flokksins á það, að í árslok
1958 hefði Hannibal Valdi-
marsson ritað í Vinnuna um,
að áframhaldandi verðbólgu-
þróun mundi- leiða til glötunar.
Sú leið lægi fram á hengiflug.
En nú virtist svo sem stjómar-
andstæðan vildi fara þessa lerð
og helzt fram af hengibrún-
inni.
Sigurður ræddi meðal ann-
ars um stjórnarandstöðuna.
— Kvað hann Framsókn-
armenn og kommúnista ólíkt
hafast að nú og verið hefði í
tiið vinstri stjómarinnar.
Minnti Sigurður á, að voríð
1958 hefði vinstri stjómin sett
lögin um Útflutningssjóð, sem
þýtt hefði 23—35% gengisfell-
ingu í innflutningsverzluninni
og 35—45% gengisfellingu í
útflutningsverzluninni. Að
þessum ráðstöfunum stóðu
Framsóknarmenn og 'komm-
únistar, sagði Sigurður, en nú
berjast þeir gegn 20% gengis-
lækkun í útflutningi og 34
gengislækkun í innfiutningi.
Sex mánuðum eftir að lögin
um Útflutningssjóð voru sett
var yfirvofandi, að árangur
þeirra rynni út í sandinn
vegna stórfelldra hækkana
kaupgjaldsvísitölunnar. Hanni
bal Valdimarsson, sem þá var
ábyrgur ráðherra skrifaði þá
greiji í Vinnuna, tímarit ASÍ
og skoraði á bændur að falla
frá afurðaverðshækkun og
verkamenn að falla frá nokkr-
um vísitölustigum. Hannibal
gerði sér þá vel ljóst, hvert
stefndi, ef verðbólgunni yrði
sleppt lausri þar eð hann skrif
aði í 'Vinnuna um verðbólgu-
þróunina á þessa leið: -Nú er
fiestuin ljóst, að þetta er leið-
in til glöíunar. Hana rná ekki
ganga til enda, þar eð hún
liggur fram á hengiflug. Her-
mann Jónasson forsætisráð-
í ióíll 15.. - - ‘ »■<
herra gekk fyrir Alþýðusam-
bandsþing og skoraði á þingið
að veita vinstri stjóminni
frest. Þingið synjaði beiðni
hans og nokkru síðar sagði
Hermann áf sér og sagði: Ný
verðbólgualda er skollin yfir.
Engin samstaða er £ stjóminni
um aðgerðir: Og hann sagði
jafnframt, að ef ekkert yrði
aðgea-t gæti verðbólguþróunin
orðið óviðráðanleg,
Sigurður Ingimundarsorí
sagði, að ríkisstjóm Emilð
Jónssonar hefði komið í veg
fyrir að verðbólgualdan yrði ó-
viðráðanleg með aðgerðuna
sínum í efnahagsmálunum.
Stjórn Emils gerði því það, er
Hermann vildi gert hafa en
gat ekki. Sagði Sigurður að
vissulega hefðu Framsóknar-
menn og kommúnistar gert
sér 'ljósan vanda efnahagsmál-
anna 1958, enda þótt þeir
vildu ekkert viðurkenna nú.
Sigurður vék að skýrslu
norsfca hagfræðingsins Per
Draglans, sem hingað kom á
vegum samstarfsnefndar laun
þegasamtalranna. en Dragland
er hagfræðingur norsku laun-
þegasamtakanna. Sagði Sig-
urður í því sambandi, að norsk
ir launþegar hefðu bætt kjör
sín um 40% sl. ár á sama tíma
og kjör ísl. launþega hefðtl
versnað. Sigurður sagði, að
Dragland hefði komizt að
þeirri niðurstöðu. hér, að nauð
synlegt hefði verið að hreinsa
Framhald á 11. síðu.
Húsgögn
Lisiiðnaðarsýiiing ]
Félags húsgagnaarkitekta að Laugavegi 26
er opin virka daga kl. 2—10 og kl. 10—10
á helgidögum.
Félag húsgagnaarkitekía ;
FERMINGARSKEYTASIMI RITSIMANS ?
\ REYKJAVÍK ER 2-20-20 !