Alþýðublaðið - 30.03.1961, Page 10
^it-stjóri: Öro
Örn Hallsteinsson átti ágætan leik á þriðjudagskvöldið.
SÍÐAS’TI leikur sænska liðs-
ilns Heim fór fram á þriðjudags
kvöldið að Háiogalandi og þá
mættu Svíamir Islandsmeist-
urum FH. Vegna þrengsla í
iþróttahúsinu (sjá greinina
„Satt bezt að segja“) gat frétta
maður íþróttasíðunnar ekkr
fylgst með fyrri hálfleik. í hléi
var hægt að troðast við illan
leik í þau sætj sem íþrótta-
fréttariturum eru ætluð.
Staðan í hálfleik var 12:10
fyrir FH og okkur var sagt að
FH hefði náð forystu í upphafi,
en síðan náðr Heím yfirtökun-
tim um miðjan hálfleik. Síðan
nær FH aftur fmmkvæðinu í
mjög hröðum og jákvæðum
leik.
Síðari hálfleikur var geysi-
Spennandi, en Hafnfrrðingar
voru ívið betri og sigur þeirra
var verðskuldaður. Allir leik-
menn FH sýndu góðan Ieik og
tókst að halda beztu mönnum
Heim niðri, en þó gat hinn frá-
bæri Jarlenius skorað flest
mörk þeirra Heimmanna og
sum á hinn ótrúlegasta hátt.
Er lítill vafi á því, að hann er
cinn bezti handknattleiksmað-
ur sem g-'st hefur ísland. An-
derson hinn hávaxni naut sín
ekki, en Larsson (nr. 4) átti
sinn bezta leik í förinnr.
Af Hafnfirðingum sýndu
allir góðan leik erns og fyrr
segir og erfitt er að gera upp
á milli leikmannanna. Ragnar
var hættulegur og gjörólíkur
þeim Ragnari, sem Iék í Kefla-
vík á sunnudag. Það sama má
segja um Hjalta. Örn Hall-
steinsson átti mjög góðan leik.
Karl Jóhannsson dæmdi leik
inn mjög vel, þrátt fyrir hrnn
mikla hraða og er enginn vafi
! á því, að hann er okkar lang-
bezti handknattleiksdómari.
; PÉTUR Antonsson stóð
; sig vel í leiknum gegn
IHeim á þriðjudag. Hér hef
ur hann fengið boltann á
línu og sendir hann í net-
ið, þrátt fyrir góða við-
leitnl Karlssons, til að
koma í veg fyrir það. —
(Ljósm.: Sv. Þormóðss.).
MWWWVWMWMWWWW*
Á LANDSMÓTI skíðamanna
í gær var keppt í stökki og
norrænni tvíkeppni. íslands-
meistarar urðu: Sveinn Sveins-
son, Sigluf. 226,0 st. Annar
Valdimar Örnólfsson, R. 213,5
t. — 17—19 ára: Birgir Guð-
'augsson, Sigluf. 216,0 st. —
15—16 ára: Sig. Þorkelsson,
Sigluf. 214,0 st. — Norrænni
tvíkeppni: Sveinn Sveinsson,
453,1 st.
★ ÍÞRÓTTAHÚSH) að Hálogalandi var byggt sem bráða-
birgðahúsnæði fyrir bandaríska herinn á tríðsárunum. •—
Síðustu 15 árin hefur það verið aðalmiðstöð íþróttaæskunn
ar fyrir innanhússíþróttir. Upphaflega var gert ráð fyrir, að
húsið tæki 400 áhorfendur, en siðan hefur vprið útbúið
þar aukið rými fyrir áhorfendur, svo að hámarkstala þeirra
er sennilega um 600 manns, fleiri geta ekki séð það 'sem
fram fer.
Það hefur komið fyrir, að forráðamenn móta hafa látið
freistinguna hlaupa með sig í gönur, og selt of möi'gum að-
gang að leikjum. Þegar þýzka liðið Hassloch var hér um
ánð í boði ÍR, var troðið um 1000 áhorfendum í húsið og
íleiknum í fyrrakvöld, þegar Heim lék gegn FH hefur tala
áhorfenda nálgast þá tölu. Forráðamenn Vals og hússins
segja, að seldir hafi venð um 800 miðar og bnðsgestir og
aðrir áhangendur, eru vægt áætlað á annað hundrað. For-
ráðamenn Vals segja, að heimsóknin hafi rétt s'onpið fjár-
hagslega, þrátt fyrir þessa gífurlegu aðsókn í fv"rakvöld.
Það er engin afsökun. Um 200 af þeim áhorfendum, sem
keyptu sig inn fyrir 35 krónur sáu lftið eða ckkert af því,
sem fram fór, slíkt nær engri átt.
Fimleikamenn
Ármanns til
Vestfjarða
Fimleikadeild Ármanns fer
í sýningarför til Vestfjarða í
dag. Það er bæði úrvalsflokkur
og karla ogkvenna, sem fer, en
í fyrra voru farnar no'kkrar
sýningarferðir út á land og tók-
ist með afbrigðum vel.
Fyrsta sýningin verður á ísa
tirði á morgun, síðan verður
’,ýni; Bolungaryík á JEöstudag.
,inn íanga og aftur á ísafirði á
laugardag.
Forráðamenn fimleikadeild-
ar Ármans segja að sjaldan
hafi verið eins vel æft og í vet-
ur. Áformað er innanfélagsmót
í fimleikum bráðiega.
Svo er önnur hlið á þessu máli. Þegar hætt var að selja
aðgöngumiða var öllum hurðum lokað og loftræsting er
léleg eða engin í húsinu. Slæmt er það fyrir áho'fendur,
en setjið ykkur í spor íþróttamannanna, sem verða að
reyna á sig til hins ítrasta í þeirri svækju, s-m myndast.
Aðeins eitt lélegt karlasalerni og eitt kvennasalerni eru í
húsinu fyrir allan þennan fjölda. Nei, þetta cr ekki hægt.
Hið opinbera verður að grípa hér í taumans og setja á-
kvcðnar reglur um hámarksfjölda áhorfenda. Ef heimsókn-
ir íþróttaflokka geta ekki borið sig, nema f>ð troðið sé í
húsið eins og gert var í fyrrakvöld, er alveg rins gott að
láta slíkt eiga sig. — Annarts staðfestir betta vandræðaá-
stand enn einu sinni þá þörf, sem er á því að bér rísi hið
fyrsta nýtt íþróttahús við hæfi nútímans. —
30. marz 1961 — Alþýðublaðið