Alþýðublaðið - 28.04.1961, Síða 3
STÓRHÆTTUL
ÁSTAND
VIENTIANE, London, Wash-
ington, 27. apifl. (NTB-Reut-
er). — Ilin'ir kommúnísku Pat-
Let-Lao-herir í Laos halda enn
áfram sókn Sinni í Laos, þrátt
fyr'r sameiginleg tilmæli Breta
og Itússa t.31 hinna stríðandi að-
iia í landinu um vopnahlé. Hef-
ur þetta valdið hinum mestu á-
hyg'g'jum í höfuðborgum Veslur-
veldanna. Kennedy forseti
ræddi málið í morgun við ör.vgg
isráð sitt og' kaliaði síðan for-
í.ienn þingflokkanna á sinn
fund til að skýra þeim frá því
sem er að gerast í Laos. í Lond
«n er skýrt frá því að stjórnin
Lafi tilkynnt sovétstjórninni
verulegar áhyggjur sínar vegna
framVindu málsins og í París
kallaði Murville utanríkisráð- j
herra rússneska sendiherrann á
sinn fund og lagði áherzlu á
vopnahlé sem fyrst í Laos. í
Washington ræddi Chester Bowl
es varautanríkisráðherra og stað
gengill Dean Rusk, utanríkis-
ráðherra, sem er fjarverandi, við
rússneska sendiherrann um mál
íð og lét í Ijós áhyggjur sínar..
Talsmaður bandaríska utanríkis
I „
| raðuneytisins hefur lyst áhyggj
um sínum vegna þess sem hann
kaUar „ögrandl orð í Peking-út
varpinu um Laos-máIið“.
Samtímis þessu sagði Moskvu
útvarpið í fréttasendingu í
| kvöld að ástandið í Laos væri
! að kólna og sérlegur fréttamaður
þess í Laos sagði í skeyti til þess
Ný stjórn í Belgíu
BRÍÍSSEL — Baldvin konung
vr hefur samþykkt ríkisstjórn
þá, er nú er setzt að völdum und
ir forsæti Theo Lcfevre, for-
r.ianns Kaþólska flokksins. Tek-
i'r stjórn þessi Við af samsteypu-
etjórn kaþólskra og írjálslvndra
er var undir forystu Gaston Ey •
skens og mestur styrr stóð um.
£ú stjórn lagði fram viðreisnar-
frumvarp er kostaði Belgíu íöng
cg hörð verkföll um áramótin
cg nýjar kosnmgar er fram fóru
fyrir skömmu. Unnu jafnaðar-
menn þar sigur, en kaþólskir eru
áfram stærsti flokkurinn.
Sýningin
endurtekin
Á SÍÐUSTU sýningu litkvik-
mynda Ósvalds Knudsen í
Bamla bíói vildi það ó.happ til,
að sýningarvélin bilað, þegar
verið var að sýna næstsíðustu
myndir og reyndist ekki unnt
að gera við hana i skamri
stundu. Sýningargesium var þá
tjáð, að þeim yrði síðar boðið
að sjá niðurlag sýningarinnar
(Refurinn gerir gren i urð og
Grænlandskvikmyndina). Verö
nr sú sýning á laugardaginn kl.
3. Til uppbótar fyrir betta ’eiða
chapp’verða eimiíg sýndar við
sama tækifæri þrjár aðrar kvik
nyndir Ósvalds (Heklugosið
1947, Skálho’t og Ullarband og
jurtalitun). Eru allir gestir á síð-
v.stu sýningu vmsamiega beðnir
að þiggja þetta boð.
i kvöld, að Pathet-Lao-herinn
hefði þegar fjóra fimmtu hluta
landsins á sínu valdi. Sá lands
hluti, sem ekki er enn á valdi
þeirra, ætti enga ósk heitari en
frið og hlutleysi.
Fréttir herma að Suðausturas
íubandalagið (SEATO) yfirvegi
nú hvaða ráð eru heppilegust
til að koma í veg fvrir að Komm
únistaherinn Pathet-Lao nái öllu
Framh. á 5. siðu
í hinni nýju stjórn, sem jafn-
aðarmenn og kaþólskir myr.da,
og er undir forsæti Leferve, er
Paui Henri-Spaak varaforsætis-
utanríkis- og Afrikumálaráð-
herra. Auk hans eru þrír aðrir
jafnaðarmenn í ráðherrastólum.
Fara þeir með menntamál, fé-
Harmleikur
MOSKVU, 27. apríl.
Sovézkur ríkisborg-
ari gerði í dag tilraun til
sjálfsmorðs á tröppum
brezka sendiráðsins í Mo-
skvu. Kom Rússi þessr að
sendiráðsbyygingíxnni í
morgun, drap á dyr og
óskaði eftir að fá að dvelj
ast þar, þar eð hann
hyggðist leita hælls sem
pólitískur flóttamaður í
Bretjjandi. Honum var
sagt að það væri því mið
ur ómögulegt. Gekk hann
þá út á stigapallinn, dró
hníf upp úr vasanum og
reyndr að skera sig á háls.
Læknir sendiráðsins kom
strax á vettvang og veitti
honum nauðsynlegustu
hjálp þar til sovézkur
sjúkrabíll kom á vettvang
og sótti manninn.
,Ég er að flýta mér, maður!“
Castro verður
mildur í dómum
HAVANA, 27. april. — (NTE-
Reuter ) — Fidel Castro, forsæt-
isherra Kúbu, sagði í dag að
dauðinn yrði ekki hegning
þeirra sem tóku þátt í innrásinni
á Kúbu og voru teknir þar til
fanga. Castro lýsti þessu yfir í
sjónvarpsræðu og bætti þvi við,
að „afbrotamönnum frá tið Bat-
ista, fý rverandi forseta, yrði
ekki h!íft“. Castro kvað dauð-
ann leið t:l að vernda bylting-
una, en „ekki grundvallarreglu“.
„Að skjóta uppreisnarmennina,
eins og' fólkið vill, er hið sama
og að yfirdrífa gleði þess og
reiði“, sagði hann.
Ráðherrann sagði að tala
þeirra er handteknir hefðu vei’-
ið ykizt stöðugt og eru fangarnir
nú um 1100 talsins Einn þeirra
i var nafngreindur og kallaður
Sam Roman og sagður foringi
innrásarmanna. Nokkrir fangar
komu fram í sjónvarpinu og svör
uðu Castro, er spurði þá per-
sónulega, að flugvélarnar er
gerðu árás á Havana 15. apríl,
áður en innrásin hófst, hefðu til-
heyrt „Lýðræðissinnaða Bylting-
arbandalaginu“ en merki Kúb-
anska flughersins hefði verið
málað á þær.
Kúbuútvarpið skýrði frá því í
kvöld að til átaka hefði komið
milli heimavarnarlðs og nokk-
urra uppreisnarmanna, er til
Kúbu höfðu komið í innrásar-
skyni. Einn heimavarnarmaður
var drepinn og tveir uppreisnar-
menn særðir. Gerðist þetta i Mat
anzas-héraði
IPPREISNARMENN
GEFAST
Lefevre.
lagmsál, efnahagsmái og dóms-
mál. Fimm ráðherrar eru frá
Káþólska flokknum í stjórninni
og fara þeir með forsætisráðu-
neytið varnarmál, innanríkis-
mál, fjármál og landbúnaðarmál.
ALSIR og PARIS, 27. apr.
(NTB-REUTER).
Franskir skrrðdrekar og
mikill fjöldi návígissveita um-
kringdu «í dag Alsírborg, en
þangað höfðu dregið srg upp-
reisnarsinnaðir Íallhlífaher-
menn úr útlendingahersveit-
inni. Utan vrð herbúðabæinn
lágu frönsk herskip og beindu
fallbyssum sínum til herbúð-
anna. Krafizt var uppgjafar af
fallhlífarhermönnunum og
lauk svo, að þeir, síðdegis,
gengu út úr herbúðunum með
vélbyssur á lofti og hrópuðu í
| kór; „Alsír er franskt.11 Voru
þeir síðan afvopnaðir og verða
sendir til aðalstöðva útlend
ingasveitarinnar í Sidi-bel-Ab
bas. Mun hér hafa verið um 2
| hersveitir að ræða. Ráðstefna
borgaralegra og hernaðarlegra
yfrvalda fer nú fram í Alsír um
hinar fjórar uppreisnarsinnuðu
fallhlífarhersveitir.
| Frönsk blöð segja í dag að
búast megi við víðtækum
hreinsunum innan hersins, lög
reglunnar og meðal embættis-
manna. De Gaulle mun hyggja
á algjöra endurskipan lögregl-
unnar. Innritunarskrifstofum
Utlendingahersveitarinnar hef
ur verið lokað í Frakklandi og
mun í ráði að leggja niður a.
m. k. tvær hersveitir innan
hennar. Franska lögreglan mun
hafa framkvæmt miklar hand-
tökur undanfaríð og segja óop-
inberar heimildlr, að aðeins
í Stór-París hafi um 120 öfga
fullir hægrimenn verið hand-
teknir. í hópr hinna handteknu
munu vera margir hóttsiettir
menn. Ekkert hefur enn frétzt
af uppreisnarhershöfðingjun-
um þrem. Frakklandsforseti
hefur sett á stofn sérstakan
dómstól er á að fara með mál
hershöfðingjans Challe.
Alþýðublaðið — 28. apríl 1961 3