Alþýðublaðið - 24.05.1961, Blaðsíða 10
Ritstjóri: Örn EiSsson.
7. Norðurlandamót
íþróttablaðamanna
Næsta þing / Reykjavík 1962
íþróltablaðamenn frá Norð-
urlöndum héldu sína 7. ráð-
stefnu í Stokkhólmi sl. viku.
Alls voru skráðir rúmlega 60
þátttakendur, en nokkur for-
föll urðu. Flestir voru Svíarn
ir að sjálfsögðu eða tæplega
30, síðan 14 Finnar, 7 Danir, 4
íslendingar og 3 Norðmenn.
Islenzku þátttakendurrir voru
A'tli Steinarsson frá Morgun-
blaðinu, Sigurður Sigurðsson
frá Ríkisútvarpinu og Jón B.
Pétursson og Öm Eiðsson frá
Alþýðublaðinu. Samþykkt var
að halda næstu ráðstefnu í
Reykjavík í júní 1962.
Ráðstefnan haldin á
Bosön.
Þátttakendur mættu til
Stokkhólms á mánudagsmorg-
un, en eftir hádegi var þeim
sýnt ráðhúsið og skýrt frá
sögu þess. Að því loknu var
farið út til Bosön hinnar glæsi
lega íþróttamiðstöðvar Svía.
Þar var ráðstefnan haldin, en
setning hennar fór fram síð-
degis þennan sama dag. For-
maður félags íþróttablaða-
manna Stokkholms, Rudolf
Eklöw frá Dagens Nyheter
flutti setningarræðuna.
Ýmis fróðleg viðfangs-
efni.
Flutt voru ýmis merk er-
indi á ráðstefnunni og miklar
umræður og fyrirspurnir
fylgdu yfirleitt í kjölfarið. —
Rætt var um áhrif sjónvarps-
og útvarps á íþróttablaða-
mennsku og nútímaíþrótta-
blaðamennsku. Bo Ekelund
meðlimur Svía í alþjóðaolym-
píunefndinni flutti fróðlegt
og skemmtilegt erindi um ým-
is vandamál í sambandi við
næstu Olympíuleika í Tokíó
1964 og samstöðu Norður-
landa í því sambandi. — Dr,
Áke Spetz flutti ágæta ræðu
sem hann nefndi; „Er hættu-
legt að iðka íþróttir.“ Einnig
var heimsótt íþróttafélag og
kynnt starfsemi þess. Farið var
til Södertálje og heimsótt hin
risastóra verksmiðja Scania
Vabis.
Enginn vafi er á því, að þátt
takendur höfðu allir hið
mesta gagn og ánægju af ráð
stefnunni.
★ Næst í Reykjavík.
Einn daginn, þegar rætt vai'
um næstu ráðstefnu og fram-
tíðina bað Atli Steinarsson,
Þessi mynd er tekin í leik í Allsvenskan fyrir nokkrum dögum. Knattspyrnumaðurinn,
sem ísvífur í loftrnu heitir Owe Ohlsson og er einn af beztu leikmönnum Svía, enda er
hann í sænska landsliðinu. í
formaður í Samtökum íþrótta-
fréttaritara um orðið og bauð
til næstu ráðstefnu í Reykja-
vík í júní næsta ár. Var það
samþykkt einróma með mikl-
um fögnuði. Síðar mun e. t. v.
verða skýrt ítarlegar frá ráð-
stefnu þessari og gagnsemi
þeirra yfirleitt.
■UWWWWWVWHWWW
Þeir töpuðu i;
EINN af stórviðburðuin j!
Norðurlandamóts íþrótta- ! >
blaðamanna var „lands- j!
leikur“ í knattspyrnu milli !!
Svia og úrvals frá Finnum, j!
Norðmönnum, Dönum og j!
íslendingum. Fyrirfram j j
voru þátttakendur almennt !!
vissir um sigur úrvalsins, j \
en þau óvæntu úrslit urðu |!
að Svíar sigruðu með 3 !>
mörkum gegn 2, í hálfleik j!
hafði úrvalið yfir 1:0. Einn jj
islenzku blaðamannanna, j!
Jón B. Pétursson tók þátt 1»
í leiknum og stóð sig vel, jj
Hann er lengst til vinstri ! j
í fremri röð.
WWWWWWWWHWWV
Akranes vann
Keflavík 2:1
Á annan í hvítasunnu fór
fram í Keflavík þriðji leikur í
bikarkeppni utanbæjarfélag-
anna. Áttust þá við Ákurnes-
ingar og Keflvíkingar.
Fyrir leikinn var almennt
reiknað með sigri Akurnes-
inga, en eftir gangi leiksins
máttu þeir þakka fyrir að
vinna leikinn, því að Keflvík-
ingar áttu meira f leiknum og
misnotuðu opin tækifæri til að
skora, m. a. átti Högni ágætt
tækifæri fyrir opnu marki og
Sig. Albertsson „brenndi af“
vítaspyrnu.
FVrsta mark leiksins skor-
aði Jón Jóhannsson miðfram-
herji ÍBK í fyrri hálfleik, en
Þórður Jónsson jafnaði á síð-
ustu mínútu í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik fengu Kefl-
víkingar mörg góð tækifæri til
að skora en misnotuðu þau öll.
Framh. á 14. síðu.
HMHMMHMWWHHUMHM
• •
Orn Steinsen á
íörum til Kaup-
mannahðfnar
Hinn þekkti knatl-
spyrnumaður og lands-
Iiðsmaður Örn Steinsen,
KR, mun um þessar
mundir vera að taka til
starfa hjá Flugfélagi ís-
iands. Starfssvið lians
mun samt ekki verða í
Rvík eftir því sem við höf
um bezt frétt, heldur á
Kastrup í Kaupmanna-
höfn.
WWWWWWWWWVW4
10 24. mai 1961 — Alþýðublaðið