Alþýðublaðið - 08.06.1961, Side 4
- „ ,
.
WSM1 Guðni Guðmundsson:
menn
Fidel Castro, einræðisherra
á Kúbu, kom fram með þaó til
boð fyrir alllöngu, eins og
menn muna, að hann skyldi
skipta á 1200 kúbönskum föng
um, er teknir voru höndum í
hinni misheppnuðu innrás í
landið, og Ö00 bandarískum
traktorum. Tók hann sér þar
til fyrirmyndar nazistann —
Adolf Eichmann, rem á sínum
tíma bauð að skipta á gyðing
um og vörubílum. Brugðið var
skjótt við í Bandaríkjunum og
stofnuð nefnd, að undirlagi
Kennedys forseta, er skj ldi
safna fé til traktorakaupanna
og leysa iþannig menn þessa úr
'haldi. Fékk forsetinn þau Elea
nor Roosevelt, Walter Reuther,
verkalýðsforingja, og Milton
Eisenhower, bróður fyrrver
andi forseta, til að hafa forustu
fyrir söfnuninni.
Forsetinn hefur s.ntt all
miklu aðkasti fvrir íorgöngu
sína í þessu máii, bæði frá
flokksmönnum sínum og and
stæðingum Hanu hefur hins
vegar bent á, að hann hafi gert
það fremur sem einstaklingur
en sem forseti. og liann sagði:
„Þegar einstakíingar ieitast
við að hjálpa til að koma í veg
fyrir þjáningar í öðrum lönd
um með frjálsum framlögum
— sem er ágæt arnerisk erfða
venja — ætti þessi rílisstjórn
ekki að skipta sér af mannúðar
verkum þeirra“.
Einn af flokksbræðrum for
setans, Dodd, öldungadeildar
maður frá Connecticut, er einn
þeirra, sem harðast hafa gagn
rýnt þessa ráðstöfun og segir
m. a. að með þessu sé verið að
styrkja aðstöðu Castros til að
þrælka sex milljónir armarra
manna og: ,,Ef við tökum upp
á að greiða lausnarfé fyrir
1000 af þeim milljarði gísla,
sem kommúnistar halda, hvar
endar það þá?“
Það má að vísu segja, að
sjónarmið Dodds sé að ýmsu
leyti sk'Ijanlegt og mannlegt,
en viðbrögð Kennedys o g
þeirra, sem að söfnuninni
standa, er þó stórmannlegra og
frá mannúðarsjónarmiði sjálf
sagt. Það er ekki aðeins það, að
Bandaríkjastjórn ber að
nokkru leyti ábyrgð á þvi. að
menn þessir eru fangar, heldur
hlýtur hitt að koma til greina
líka, að hafi menn trú á þe.im
málstað, sem mennirnir voru
að berjast fyrir, þá ber þegar
af þeirri ástæðu skylda til að
losa þá úr prísundinni, þó ekki
væri nema t:l að gefa þeim
tækifæri til að reyna aftur.
Castro kann að hafa fur.dizt
hann „sniðugur“, þegar hann
sló fram þessu tilboði sí.nu, en
hætt er við, að þessir 500 trakt
orar reynist honum nokkuð
dýrir. Þetta kaldranalega til
boð hefur hlotið hinar herfileg
ustu móttökur alls staðar og er
það að verðleikum. Þao er ekki
nóg, að skeggi þessi hafi gleypt
í sig hráau kommúnisma, held
ur hefur hann sýnilega gleypt
líka hugmyndir hinna nazist
ísku milljónamorðingja. Og
þess eru merki, að ýmsar stjórn
ir í Suður og Mið Ameríkuríkj
unum, sem í fyrstu vildu tæp
ast trúa því, að Castro væri
eins slæmur og t. d Bandaríkja
menn vilja vera láta, hafi nú
fengið þær sannanir, sem þær
þurftu.
Svo er að sjá, sem Castro sé
farinn að gera sér ljóst, að
tilboðið hafi ekki verið eins
„sniðugt“ og houum fannst í
fyrstu, kannski finnst honum
verðið of hátt ef það á eftir
að kosta hann það litla áh't,
sem grannríkin lnifðu á honum.
Það er a. m. k. víst, að hann
hefur ekki jvarað fyrirspurn
frá amerísku traktoranefnd
inni og hefur nefndin nú beðið
hann um svar við fyrirspurn
inni í siðasta lagi á miðviku
dag, 7. júní. Hefur nefndin til
kynnt, að hún sé reiðubúin til
að senda fyrstu 100 traktorana
af stað tveim vikum eftir að
hann hefur gefið endanlegt
samþykki sitt Nefndin hefur
þegar sent Cast~o þrjú skeyti,
hið síðasta 2 júní, en þegar
þetta er skrixafj hefur ekkert
svar borizt ftá honum.
Hugsanlegt er, að einræðis
Myndin er af þeim frú
Eleanor Roosevelt, Walt-
er Reuther og Milton
Eisenhower á fundi með
sendinefnd fanga frá
Kúbu, sem haldinn var í
Washington 22. maí sl. til
að fjalla um traktorvið-
skintin. Fanganefndin var
í Wasliington til að semja
um lausn meðfanga
sinna, sem teknir voru af
liði Castros er innrásin
var gerð á Kúbu í anríh
Þau þriú til hægri á mynd
inni gengust fyrir sam-
skotum um gjörvöll
Bandaríkin til að standa
straum af kaunum á
þeim fimm hundruð trak
torum, sem Castro krafð-
ist á lausnargjald fyrir
tólf hundruð fanga.
Castro
herrann hætti við allt saman
og reyni ao skjóta sár á bak við
það, að hartn hafi sagt þetta
,,í gamni“. Það er þó vist, að
honum verður ekki kápan úr
því klæðinu, því að hann hefur
þegar skemmt e:'ns nukið fyvir
sér og hann getur, og þess
vegna getur haim alveg eins
tekið við traktorunum á þeirxi
forsendu, að „betri er hálfur
skaði en allur“. Hins vegar má
segja, að þetta frumhlaup Ca
stros hafi verið það bezta, sem.
hann gat gert fyrir Bandaríkin
úr því sem komið var, og við
brögð forsetans og alls þess
fjölda manna, sem gefið hefur
fé til traktorakaupanna, eru
ljósasta dæmið um muninn á
mannúð lýðræðisríkis og hroka
fullri ósvífni einræðisins.
j.'Utaiu af 1. síðu.
vik, enda þótt engin staðfesting
hafi fengizt á því.
Ekki er um nema '10—100
verkamenn í Dagsþrún að ræða
sem vinna hjá Sambandinu,
bannig að eftir sem áður verður
þorri verkamartna í Reykjavík í
verkfalli, þó að samnir.gar yrðu
gerðir við SÍS Þá má einnig
geta þess að OÍíuféiagið h.f. er
í Vinnuveitendasambandi ís
lan'ds og mun því ekki verða
aðili að samkomulagi, sem SÍS
kann að gera.
ÚTIFUNDUR í KVÖLD
í kvöld mun Alþýðusamband
ið æUa að hafa út’fund um
verkfallsmálin og eiga þeir
Hannibal ValdiniErsson ('g Eð
varð Sigurðsson að flytja þar
aðalræðurnar. Athyglisvert má
það teljast, að enginn Fram
sóknarmaður hefur fengið að
tala, svo miklir kærleikar sem
nú eru ineð kom.múnistum og
Framsóknarmö.nnum
PARIS, 7. júní (NTB/REUT-
ER\ Charlcs Aillcret hershöfð
ingr, sem stóð fyrir því, er
fyrsta franska atórnsprcngjan
var sprengd í Sahara í febrú
ar í fyrra, var í dag skipað-
u yfirmaður hersins í Algier.
Útnefní’-^ ■>, var tilkynnt eft-
ir ráðuney/isfund. Ailleret
tekyr við af Gambiez hers-
höfðrngja, sem tekinn var til
fangá af hershöfðingjunum í
hinni misheppnuðu uppreisn-
t*%*v*«*%vvvw*%*vk%%%vvM>%v%%%»viartilraun í apríl_
^ 8. juní 1961 —
Alþýðublaðið