Alþýðublaðið - 10.06.1961, Blaðsíða 8
Tvær
ÝKJUSÖGUR hafa
lengi verið vinsælar meðal
þeirra, sem á annað borð
kunna að meta góða kímni.
Hér koma tvær þeirra og
munu vera upprunnar í
Danmörku.
KLUKKA
RAKARANS
AMERISKUR rakari hef
ur látið búa til fyrir sig
klukku, þar sem tölurnar
standa í spegilskrift og vís
arnir fara öfugan hring,
. svo að viðskiptavinirnir
geti séð í speglinum hvað
klukkan er.
AFREKSSKEPNA.
EF MAÐUR ætti að trúa
þeim sögum, sem sumir
segja um hesta, þá eru eng
in takmörk fyrir því, hve
hart hestar geta hlaupið.
Einu sinni þegar nokkr-
ir fuglar sátu yfir glasi og
ræddu um hesta og veð-
hlaup kom maður að og
hlýddi nokkra stund áður
en hann þraut þolinmæði
og sagði; Það er auðheyrt,
að þið hafið aldrei séð
hest hlaupa, þess vegna
skal ég segja ykkur frá
hesti, sem var fremri öll-
um öðrum hestum, sem ég
hef heyrt um eða séð.
Þessi hryssa hét Vivian
og var mín eign. Eg minn
ist sérstaklega eins atviks,
ég lét innrita hana í lang
hlaup, sem hún var ekki
vön, en það var til mikils
að vinna ef vel tækist. Því
miður var knapinn minn
veikur svo að ég varð að
fá lítt æfðan mann sem
knapa.
Vivian kunni alllaf betur
við sig á innbraut, en í
þetta skipti var hún sett
á yztu braut, — þó var
Vivan fljótlega komin upp
að hliðinni á fyrsta hestin
um og vann sig smám sam
an langt fram úr, hópnum.
ÞAÐ er alltaf gam
an að vera hjá
mömmu, þa8 varpar
þó skugga á þegar vit
að er að sú gleði verð
ur næsta skammvinn,
sem betur fer eiga
börnin svo gott með
að láta augnablikið
nægja.
Ef tij vill er það
erfiðara fyrir
miimmu.
Ingrid Bergman
fær börnin sín til sín
í heimsókn einu sinni
á ári, börnin, er hún
átti með Rosselini.
ette**x>euSB>>
ýkjusögur
Þegar aðeins einn hring
ur var eftir var 'Vivian
fyrst af öllum og virtist ör
uggur sigurvegari, en þá
skeði það — Vivian stanz
aði allt í einu og fékkst
ekki úr sporumun, og eftir
nokkur augnablik voru all
ir hestarnir þotnir fram
úr henni og sigurinn virt
isst úr sögunni, en rétt
þegar síðasti hesturinn
var kominn fram hjá
hljóp hún aftur af stað, og
aldrei hef ég séð hest
hlaupa jafn glæsilega.
Það veldur ykkur víst
ekki undrunar, þó að ég
fullvissi ykkur um að Vivi
an var fyrst í mark, en ef
til vill verðið þið undr-
andi, er ég nú segi ykkur,
að númer 2 varð folaldið
hennar, sem hún hafði fætt
á leiðinni.
— OG ÖNNUR TIL.
GAMLI bóndinn var
þekktur fyrir það að segja
nokkuð kröftugt frá, ef
honum bauð svo við að
horfa.
Einn dag stóð hann í
þorpsverzluninni og var að
segja frá verðlaunatarfin-
um sínum, sem hét Þór:
Hann hleypur hraðar en
nokkur hestur, í hvert ein
asta skipti, sem hraðlestin
fer fram hjá bænum mín
um, fer hann í kapphlaup
við hana og vinnur alltaf.
Maður, sem staddur var
í verzluninni þoldi ekki
mátið, ég er fús til að
veðja eitt hundrað krón-
um við þig um það, að nú
lýgur þú, sagði hann.
Bóndinn þorði ekki öðru
en a(5 taka boðinu, heiðurs
Frh. á 14. síðu.
Elízabet drottning i liðskönnun
ÞREFALDUR MERKISI
TÍUNDI júní er á þrenn
an hátt merkisdagur hjá
brezku konungsfjölskyld
unni. Þetta er hinn opin
beri afmælisdagur drottn
ingarinnar og hinn eini og
sanni afmælisdagur manns
hennar, Filipusar prins. Þá
tíðkast það á degi þessum
að drottningin er viðstödd
mikla liðskönnun, svokall
að „Trooping the Colour.“
ásamt ýmsum hershöfðingj
um og marskálkum Breta
veldis.
Prinsinn er sem sé fert
ugur í dag en drottningin
35 ára síðan hinn 21. apríl
sl. Þau hafa nú verið gift
í nálega 14 ár og hafa
tryggt viðgang krúnunnar
með 3 börnum sínum,
Karli prins, Andrési prins
og Önnu prinsessu. Þótt
prinsinn sé orðinn fertug
ur hefur hann í rauní
inni breytzt lííið síðan á
sjóliðsforingjaárum sínum,
þegar hann vann hjarta
hinnar feimnu prinsessu.
★ SKREF AFTAR.
Við liðskönnunina í dag
verður Filippus að ríða
hesti sínum á eftir drottn
ingunni. Stafar þetta af því
að enn refir honum ekki
hlotnazt heitið „Drottn-
ingarmaður“, sem langa
langafi þeirra beggja, A1
bert prins, eiginmaður Vikt
oríu drottningar hafði.
Þessari vegtyllu fylgja
forréttindi, sem Filipus
hefði sjálfsagt ekkert á
móti að njóta. Eins at
kvæðamiklum manni og
hann er fellur það sjálf
sagt þungt að verða að
sitja heima og bíða eftir
Edinborgarhertoginn
Leiðist tildrið, harður í
horn að taka, umdeildur.
konu sinni meðan hún ræð
ir við ráðherra sína. En
hann getur huggað sig við
það, að það kostaði Albert
prins 17 ára baráttu að
hreppa heitið Drottningar
maður.
★ FARINN AÐ HÆR
AST.
Filippus berst enn fyrir
því að glata ekki persónu
leika sínurn í öllu tildri
hallarlífsins, en slíkt hefðu
menn með minni metnaðar
girn og gáfúr en hann hef
ur, misst fyrir löngu. Hon
um hefur oft orðið hált á
þessu, en hann huggar sig
við það, að þeim sem ekki
er vel við hann bera þó að
minnsta kosti virðingu fyr
ir honum.
Eitt af ættareinkennum
grísku konungsfjölskyld
unnar, sem Filippus er kom
•inn út af, er að karlmenn
hennar verða snemma
sköllóttir. Filipus kvað
hafa áhyggjur af þessu, en
enn sem komið er er hann
ekki sköllóttur þótt hann
sé farinn að hærast nokk
uð.
ic mörg áhugamál.
Ahugamál prinsins eru
mörg og ólík. Hann er ein
hver færasti pólóleikarinn,
sem Bretar eiga um þessar
mundir, og hann hefur mik
inn áhuga á sundi. Hann
hefur og mikinn áhuga á
siglingum, enda er hann
gamail sjómaður, og hann
reynir að vekja áhuga
Karls sonar síns á þessari
íþrótt. Helzt vildi hann að
hann gengi i sjóherinn þeg
ar hann fær aldur til, en
sagt er, að Elísabet drottn
ing vilji fremur að hann
fari á skólann í Eton.
Aftur á móti hefur hann
aldrei haft áhuga á hest
um, en Elísabet er mikil
hestakona. Þegar þau hjón
in mæta á kappreiðum í
Ascot er sagt að prinsinn
sýni sig frammi fyrir mann
fjöldanum andartak og
hverfi síðan inn í setustofu
bak við drottn
una og horfi þai
ett í sjónvarpinu.
ic leiðist.
Oft fær Filipp
hallarlífinu og fe
síns liðs í langar
á konungssnekkj
fer hann í einka
til Þýzkalands og
villisvínsveiðar ei
upp á ættingja si
ulum upp á hálei
og drekkur með t
Aldrei kann hann
sig en þegar ham
bjór með góðvinu
* UMDEILDUR,
Prinsinn er
ekki eins vinsæll
var þegar hann
prinsessunni. Hai
til að vera hvats
í tilsvörum og
við kjánalegar sp
Stundum ber á ój
Þessi mynd er
g 10. júní 1961
Alþýðublaðið