Alþýðublaðið - 10.06.1961, Qupperneq 10
Rltstjóri: öm E i3 s s o n.
Sundmeistaramót íslands:
Ágæt af rek -
lítil þátttaka
SUNDMEISTARAMÓT ís-
lands hið 31. í röðinni hófst í
Sundhöll Reykjavíkur í fyrra
kvöld. Formaður SSÍ, Erling-
ur Pálsson, setti mótið me'ð
stuttri ræðu og m. a. upplýsti
hann, að alls hefðu verið sett
17 glæsileg Islandsmet það
sem af er árinu. Sagði formað
urinn að þetta bæri vott um
grózku í sundíþróttinni. Ekki
er því að neita, að við eigum
nokkra ágæta afreksmenn í
greininni, sem geta komið
fram í keppni á Norðurlönd-
um og víða í Evrópu, en hvar
er sundið statt sem keppnis-
grein án áðurnefnds afreks-
fólks? Það er ágætt verkefni
fyrir nýkjöma stjórn Sunds-
sambandsins að velta þessu
fyrir sér og gera eittthvað að
gágni til að auka áhuga og út-
breiðslu hinnar fögru og gagn
legu sundíþróttar. Lítum bara
á fyrri dag þessa meistara-
móts. Af sjö meistaramóts-
greinum eru aðeins tveir kepp
endur í fjórum og sú fimmta
4 x 100 m. fjórsund fellur
niður, þar sem aðeins eitt fé-
lag treystir sér til að senda
sveit til keppni. Varla er nú
hægt að segja að svona nokk-
uð tákni grósku?
Guðmundur maður
kvöldsins.
í fyrstu grein kvöldsins,
100 m. skriðsundi voru fimm
keppendur og mættu allir til
leiks. Guðmundur Gíslason tók
strax forystu í úrslitariðlin-
um og synti fallega og hratt.
Áberandi var hvað snúningar
hans voru betri en hinna kepp
endanna. Hann kom lang-
fyrstur í mark eftir vel útfært
sund á nýjum mettíma — 57,3
sek.! Tími, sem boðlegur er í
keppni hvar sem er. Guð-
mundur Sigurðsson og Þor-
steinn Ingólfsson áttu báðir
ágætt sund og náðu sínum
bezta árangri í greininni.
Guðmundur hafði ekki sagt
sitt síðasta orð þetta kvöld.
Eftir 10 mín. tók hann þátt í
200 m. baksundi og í þeirri
grein vann hann annað glæsi
legt afrek, bætti eigið íslads-
met um 2,6 sek. án nokkurrar
samkeppni, synti á 2:25,5. —
Guðmundur syndir nú bak-
sund betur en áður, greinilegt
er að lega hans hefur batnað
Systurnar Kolbrún og Hrafnhrldur.
10 10. júní 1961 — Alþýðublaði®
-
ISveinn Þormóðsson tók !!
þessa mynd nokkrum
augnablikum eftir 100 m. !>
skriðsundið í fyrrakvöld.
Talið frá vinstri: Guðm. ‘í
Sígurðsson, Guðm. Gísla !•
son og Þorst. Ingólfsson. «;
MUMMMHUIHMMMMMHH
til muna. Það er að sjálfsögðu
verk hins ágæta þjálfara hans
Jónasar Halldórssonar. Guðm.
átti einnig stóran þátt í meti
ÍR-sveitarihnar í 4 x 100 m.
fjórsundi. Hann synti flug-
sundssprettiiin á 1:07,5 mín.,
sem er 3,3 sek. betri tími en
íslandsmetið, en ekki er hægt
að staðfesta þann árangur sem
met, þar sem um millitíma er
að ræða.
-jfc- Spennandi bringu-
sund.
Bringusund karla hefur ver
ið niest spennandi keppnis-
greinin á sundmótum undan-
farinna ára. Svo var einnig
nú. Hörður B. Finnsson tók í
upphafi forystu í 100 m., en
Einar Kristinsson, methafinn, ]
Sigurður Sigurðsson og Árni
Þ. Kristjánsson fylgdu honum
fast eftir.
Þannig hélst röðin þar til
á síðasla snúning, en þá virtist
Einar hafa nálgast Hörð tölu
vert. Sá síðarnefndi átti samt
krafta sem dugðu til sigurs, þó
að tíminn yrði sá sami á báð-
um.
Aðrar greinar.
Ágústa og Hrafnhildur
unnu einslaklingsgreinar
kvenna. Sú fyrrnefnda 100 m.
baksund á allgóðum tíma og
millitími hennar á 50 m. í því
sundi 37.1 sek. reyndist sá sami
og met Helgu Haraldsdóttur.
Hrafnhildur var nú aftur með
eftir meiðslin, sem hún varð
fyrir. Hún sigraði með yfrburð
um í 200 m. bringusundi á góð
um tíma.
Unglingasundin voru góð, en
Frh. á 11. síðu.
Fjögur met
sett í gær
AÐALKEPPNI Sundmeist-
aramóts íslands lauk í gær-
kvöldi og alls voru sett fjögur
ný íslandsmet, hvert öðru
betra. Fyrsta metið setti Ág-
ústa Þorsteinsdóttir í 100 m.
skriðsundi, en hún sigraði með
yfirburðum á 1:05,2 mín. Gamla
metið átti hún sjálf og það var
1:05,4 mín. Guðmundur Gísla-
son setti næsta met, en það var
í 100 m. baksundi, tími haijs
var 1:07,2 mín. 2/10 úr sek.
betra en gamla metið er Guð-
raundur átti sjálfur. Hann
hafði nýlokið keppni í 400 m.
skriðsundi á mjög góðum
tíma, 4:41,7 ntín. aðeins 3,1
sek. lakara cn meti'ð.
TVÖ MET í BOÐSUNDI.
í síðustu grein kvöldsins, 4 x
100 m. skriðsundi karla, sem
var aukagrein, þar sem aðeins
ÍR treysti sér til að senda
sveit voru sett tvö met. Guðm.
Gíslason synti fyrsta sprettinn
í ÍR sveitinni og náði hinum
frábæra tíma, 57,0 sek., sem er
3/10 úr sek. betra en metið sem
hann setti kvöldið áður. Það
er greinilegt, að Guðmundur
hefur aldrei verið í eins góðri
Frh. á 14. síðu.
Frá verðlaunaafhe/ídingu í 100 m baksundi: Talið frá vin.stri:
Margrét Óskarsdóttrr, ísafirði, Ágústa Þors/einsdóttir og
I Hörður Jóhanness. úr stjórn SSÍ en hann afhenti verðlaunin.