Alþýðublaðið - 02.09.1961, Qupperneq 14
laugardagur
ILYSAVARÐSTOFAN er op-
In allan sólarhringinn. —
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 8—18.
Skipaútgerð
ríkisins:
lekla fer frá Krist
iansand í kvöld
til Færeyja og R-
víkur. Esja fer
frá Akureyri í dag á vestur-
leið. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl 22,00 í kvöld
til Rvk. Þyrill fór frá Rvk
í gær til Akureyrar og Rauf-
arhafnar. Skjaldbreið fór frá
Rvk í gær vestur um land til
Akureyrar Herðubreið er á
Vestfjörðum á suðurieið.
Eimskipafélag íslands h f.:
Brúarfoss fer frá Dublin
11.9. til New York. Dettifoss
fór frá Vestmannaeyjum 31.
8. til New York. Fjallfoss fer
frá Keflavík kl. 20,00 í kvöld
1.9. til Stykkishólms og það-
an vestur og norður um land
til Rotterdam og Hamborgar.
Goðafoss fór frá Fáskrúðsf.
30.8. til Hull Og Grimsby. —
Gullfoss fer frá Rvk kl. 17,00
á morgun 2 9 til Leith og K-
mh. Lagarfoss kom til Rvík
1.9. frá Hull. Reykjafoss fór
frá Rotterdam 30.8. til Rvk.
Selfoss fór frá New York 25.
8. væntanlegur til Rvk kl.
23,30 í kvöld 1.9. Tröllafoss
kom til Rvk 18 8. frá Hamb.
Tungufoss fer frá Siglufirði
2.9. Jil Gravarna, Lysekil og
Gaufaborgar.
MESSUR
Elliheim'ilið: Guðsþjónusta
kl. 10 árd. Heimilisprestur-
inn
Háteigsprestakall: Messa í há
tíðasal Sjómannaskólans kl.
11 fh Séra Jón Þorvarðs-
son.
Óháði söfnuðurinn: Messa kl
2 e h. Séra Sveinn Víkingur
Hallgrímskirkja: Messa kl
11 f. h. Séra Jakob Jónsson
Laugarneskirkja: Messa kl
11 f. h. Séra Garðar Þor-
steinsson
Frikirkjan í Hafnarfirði: —
Messa kl. 10,30. Séra Krist-
inn Stefánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. —
Séra Þorbergur Kristjáns-
son frá Bolungarvík, mess
ar.
Minningarspjöld
Heilsuhælissjóðs Náttúru
lækningafélags íslands fást 1
Hafnarfirði hjá Jóm Sigur-
geirssyni, Hverfisgötu 13B
sími 50433
HVER er maðurinn?
Hpnn er enginn annar en
hinn fjarstýrði Sovétleppur
Kastró einræðisherra Kúbu.
: Í.Æ
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer
til Glasg og
Kmh kl. 08,00
í dag. Væntan-
leg aftur til R-
víkur kl 22,30
í kvöld. Flug-
vélin fer til
Glasg. og Kmh
kl 08,00 í fyrramálið. Ský-
faxi fer til Oslo, Kmh og
Hamborgar kl. 10,00 í dag.
Væntanleg aftur til Rvk kl.
18,00 á morgun. — Innan-
alndsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Egilsstaða, Húsavíkur,
ísafjarðar, Sauðárkróks, —
Skógasands og Vestmanna-
eyja (2 ferðir). — Á morgun
er áætlað að fljúga til Akur
eyrar (2 ferðir), Fagurhóls-
mýrar, Hornafjarðar, ísafjarð
ar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.:
Laugard 2. sept. er Þor-
finnur karlsefni væntanlegur
frá Hamborg, Kmh og Gauta
borg kl. 22,00. Fer til New
York kl 23,30.
Lis^asafn Einars Jónssonar:
Frá og með 1. september
verður safnið opið sunSu-
daga og miðvikudaga kl.
1.30 til 3 30
Þjóðminjasafn'ið: er opið frá
og með 1. september á
sunnudögum, þriðjudógum,
fimmtudögum og laugar-
dögum frá kl 13.30 til 16.
uistasafn Einars Jónssonar
fr opið daglega frá kl. 1.30
il 3.30.
Laugardagur
2. september:
12,55 Óskalög
sjúklinga (Bryn
dís Sigurjónsd.)
14,30 í umferð-
inni (Gestur Þor
grímsson). 14,40
Laugardagslög-
in. 18,30 Tóm-
stundaþáttur
barna og ungl-
inga (Jón Páls-
son) 20,00 Tón
leikar: Forleik-
ur af óperunni „Parsi£ai“ eft-
ir Wagner. 20,20 Upplestur:
,,Addisabeba“ smásaga eftir
Jökul Jakobsson (Gísli Hall-
dórsson leikari). 20,45 Laug
ardagstónleikar. 21,20 Leikrit
„Róðrarferð á Signu“ eftir
Morvan Lebesque, í þýðingu
Hjartar Halldórssonar. Leik-
stjóri: Indriði Waage. 22,10
Danslög 24,00 Dagskrárlok.
Síðasta hóp-1
ferð .Útsýnar'
HÓPFERÐ ferðafélagsins
Útsýn um Mið-Evrópu er ný
lokið og hefst síðasta ferð Út-
sýnar 8. sept. nk. 22 daga ferð
um ítalíu og Bláströnd Frakk
lands.
í síðustu hópferðinni verður
fyrst flogið til London og höfð
eins dags viðdvöl, síðan haldið
tii ítalíu, en september er tal
ir.n bezti ferðamannamánuður
inn þar. Frá Milano er haldið
til Feneyja og vötn N—ítalíu
skoðuð, Lago Maggiors, Lago
di Camo, þá er höfð viðdvöi
við Gardavatn. Frá Feneyjum
er síðan haldið til Flórers og
Rómar, þar sem g:st verður
5 nætur og loks suður til Na-
poli, Amaifi, Sorrento, Cap-
ri. Á norðurleiðinni er stanzað
í baðstaðnum Viareggio Pisa,
gist í Ger.úa og loks ekið eftir
ítölsku og frönsku Riviera, um
San Remo, Mont Carlo og
Nizza.
Frá Nizza er haldið heim-
leiðis 29. september, og munu
síðustu forvöð að tryggja sér
miða.
Bátur alelda
Framh. af 1. srðu.
stukku um borð í hann Var bát
urinn þá farinn að loga stafna
á milli.
Nú víkur sögunri til lands.
Skömmu eftir að eldur var far
inn að loga upp úr bátnum,
urðu bændur á bæjum í ná-
grenni Stykkishólms varir við
hverr.ig komið var. Hringdu
þeir þá og létu vita um bátinn
og v^r þegar sendur bátur á
vettvang. Tók hann mennir.a,
sem þá voru komnir upp á
Hnífsey, og biðu þar. Enginn
þeirra hafð; brennzt, en -ahir
voru þeir lerkaðir af reyk og
erfiði við að reyna að slökkva
eldinn.
Það mun hafa liðið klukku
stund frá því að eldsins varð
vart, og þar til mennirnir yf
irgáfu bátinn. Eirs og fyrr
segir, hófust sjópróf í málinu
strax í gær, er mennirnir
komu til Stykkishólms. Ekki
er kunnugt um upptök eids-
ir.s. en skipverjarnir töldu
líklegast, að kviknað hefði í út
frá rafmagni.
Vélbáturinn Ármann er
smíðaður árið 1947, og er einn
af hirum svokölluðu Lands-
smiðjubátum. Hann var á hand
færaveiðum í sumar, en var á
leið til Stykkishólms frá Rvík
til að fara þar í slipp.
Er fréttamenn Alþýðublaðs-
ins fiugu yfir bátinn um kl. 6
í gær, lá hann á hliðinni í fjör
unni við eyr,a og logaði allur.
Allt var brunnið ofan af hon-
um, stýrishúsið og þilfarið og
loguðu eldar eftir honum endi
lörgum að innan. Það er óþarfi
að taka það fram að hann er
gersamlega ónýtur —ár—.
HUNGRIÐ
Framhald
ast. Um aldamótin 1900 var mannfjöldinn orðinn
1,500 milljónir, og á 60 árum þar frá ihafði mann-
fjöldinn enn tvöfaldast, var orðinn 3000 milljónir.
Með því að fólksaukningin verði 50 milljónir
á ári, næstu árin, munu ekki líða nema 35 ár unz
mannfjöldinn hefur enn aukizt um helming, og
allar líkur benda til þess, að 6000—7000 milljónir
muni búa á jörðinni árið 2000.
I raun og veru er hungrið fylginautur fátæktar-
innar, þar sem er fátækt er líka hungur. Með því að
slá því föstu að fátækt sé aðalorsök hungursins,
verður það um leið ljóst, að til þess að geta bar-
izt gegn hungrinu með árangri verðum við að segja
fátæktinni stríð á hendur. Margir eru svartsýnir
á getu vanþróuðu landanna til að vaxa yfir núver
I andi kjör sín. Þeir benda á erfitt veðurfar, lítil
auðævi í jörð, auðnir og sanda. Þeir benda á hina
öru fólksfjölgun á landi, sem þegar er alltof þétt
býlt, þeir benda á vandkvæði á því að safna þeim
þjóðarauði, sem nauðsynlegur er, fátæklegar út
flutningsafurðir og iitla von um aðrar betri og
; hæfari.
En allar þessar ábendingar falla ómerkar ef
við hugleiðum hvernig ástandið var hér í Evrópu
fyrir 200 árum, áður en hún hófst úr fátækt til
velmegunar og áhrifa og sú spurning rís: var Ev~
rópa betur stödd árið 1750 ‘heldur en mörg van-
þróuðu ’ríkin eru í dag.
Menntunarskortur, sjúkdómar og skuldabasi
samfara úreltri þjóðfélagsbyggingu hafa haldið
þjóðum hinna vannærðu landa í ókæmi og sljóum
eins dags þönkum og hafa komið í veg fyrir þá
framtakssemi sem skapar vaxandi þjóð.
Enginn neitar því að það verkefni verður örð
ugt að brjótast í gegn um þennan hring fátæktar,
næringarskorts og lítilla afkasta — en það er hægt,
og það verður að gerast, á því velta örlög alls
mannkynsins.
Samvinnuskólinn Bifröst
Inntökupróf í Samvinnuskólann verða haldin
í Menntaskólanum Reykjavík dagana 19. —
22. sept. Þátttakendur mæti til skrásetning
ar í Bifröst — fræðsludeild, Sambandshúsinu
mánudaginn 18. september.
Skólastjóri.
Áskriftarsíminn er 14901
14 2. sept. 1961 — Alþýðublaðið