Alþýðublaðið - 13.09.1961, Side 2
t StUtJórar: Glsll J. Astþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi rtt-
stjómar: IndriSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjórl: Björgvin Guömundsson. —
Bimar: 14 900 — 14 901 — 14 90? Aug'ýsingasimi 14 906. — ASsetur: Alþýöu-
i tasiB. — Prentsmiðja Alþýðubiaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald
kr. o,00 á mánuði. I Jausasölu kr. 3,00 eint. Otgefandi Alþýðuflokkurinn. —
Fra væmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Snæfellsnes
SNÆFELLSNES er land mikilla möguleika. Á
sunnanverðu nesinu er hægt að margfalda búskap
á ræktuðu landi, og mun koma að því, þótt síðar
verði, að þar standi býli við býli. Á norðanverðu
:nesinu eru útgerðarbæir hver við annan, Sand
ur, Ólafsvík, Grundafjörður og Stykkishólmur.
iÞaðan er stutt á hin fengsælustu fiskimið og að
ötaða öll til útgerðar og fiskvinnslu hin bezta.
Sjálft nesið er hálent og illt yfirferðar, enda þótt
máttúrufegurð sé þar stórbrotin. Miklar torfærur
eins og Ólafsvíkurenni, Búlandshöfði, Hraunfjörð
ur og Berserkjahraun hafa skilið þessar byggðir
í sundur, og hafa sumar þeirra verið einangraðar
mjög, ekki sízt Grundarfjörður.
Nú ha'fa verið gerð stó/átök til að bæta sam-
•göngur á Snæfellsnesi. Mjósundsbrú var vígð síð
astliðinn sunnudag, og innan skamms verður lok-
i ið Búlandshöíðavegi. Er þá Ennið eitt eftir til að
fært sé allan ársins hring á milli kaupstaðanna,
og munu þessar samgöngubætur koma að miklum
j.iotum. Mannvirki, hafnir, skip, hvers konar þjón
usta og sjálft vinnuafl fólksins mun nýtast betur
: á svæðinu öllu við þessar bættu samgöngur.
j Þessu til viðbótar verður Snæfellsnes í vax-
andi mæli ferðamannaland. Þegar hringurinn um
, iiesið opnast, munu þúsundir manna leggja þang-
að leið sína og sjá undralönd náttúrufegurðar og
■ : jölbreytni.
Kornrækt og holdanaut
! 'VIIKLAR TILRAUNIR með kornrækt bera nú
fpann ávöxt, að íslendingar taka á þessu hausti inn
fyrstu verulegu kornuppskeru sína. Trúin á þessa
ræktun er nú fyrir hendi, fé hefur verið lagt til
. i'ramkvæmda og Rangárvellir eru að verða fyrsta
Jíomræktarsvæði landsins á síðari öldum.
f; Þetta er ánægjuleg þróun, sem eykur fjöl-
’ Áareytni í landbúnaði og ætti að draga úr innflutn
. ngi á fóðurvönam. Hún mun efla trú fólksins á
: landinu og ræktun þess. Kornuppskeran er nýr
ídgur yfir auðn og uppblæsti, sem ógna byggðinni.
Skammt frá hinum víðlendu kornökrum er að
: !anna fyrsta vísi að holdakyni nautgripa í landinu.
Virðast nú flestir komnir á þá skoðun, að íslend-
xngar þurfi .að eignast holdakyn til að efla kjöt-
framleiðsluna, enda þótt gæta verði fyllsta örygg-
ís við innfutning gripa eða sæðis.
1 Áskriftarsími
A/Jbýðu6/oðs/ns
' er 14901
SKÓUTSALAN
Laugavegi 20.
Seljum á mjög lágu verði ýmisko nar skófatnað, svo sem bomsur —
inniskó — barnaskó — karlman naskó og kvenskó.
Enn fremur lítið magn af góðum nælonsokkum á 35 kr. parið.
Útsaiasi stendur aðeins fáa daga ennþá.
SKÓBÚÐ REYKJAVÍKUR
Laugavegi 20.
HANNES
Á HORNINU
★ Fréttamaður með
karlakór til Rússlands.
★ En enginn með Frið-
rik Ólafssyni stór-
meistara.
★ Skákíþróttin vinsælust.
★ Fréttahungur.
ÁHUGAMAÐUR skrifar:
„Blöðin birta eina og tvær síður
á dag um íþróttir — og finnst
mörgum meira en nóg um. Að
sjáifsögðu þarf að scgja frá í-
þróttafréttum, en að glenna þær
yfir svona mikið pláss nær ekki
nokkurri átt og þykir mér Al-
þýðublaðið sízt betra cn hin blöð
in i þessu efni. Útvarpið hefur
sérstakan starfsmann til þess að
sjá um íþróttafréttir og talar
hann oft á v’ku hverri árið um
kring um það efni. Hann er vin-
sæll í starfinu og segir vel og
skilmerkilega frá, en of mikið er
að gert.
er jafnvel ekkert um þetta tal-
að við hann áður en hann fer,
en símskeytin með beiðnum út-
varps og blaða látin dynja á mót
unum. Friðrik er eins og kunn-
ugt er nýlega búinn að vinna
mikinn sigur á svæðismóti. Þar
var hann efstur Sjálfur varð
hann við beiðnum um að senda
skeyti af því móti.
NÚ TEKUR hann þátt í harðri
orustu, þar sem hann berst við
marga frægustu skákmenn
heimsins. Ekkertvar hugsað um
það fyrirfram að afla frétta það-
an, og engar fregnir bárust af
mótinu fyrr en fjórar skákir eða
fimm umferðir höfðu verið tef-ld
ar Að líkindum stendur Friðrik
nú í því daglega að senda útvarp
inu hér skeyti um úrslit. Þetta
er alveg ófært.
NÝLEGA fór karlakór í söng-
för til Rússlands Einhver tregða
INTERPOL
FLYTUR
.ÉG EFAST um að nokkur
íþrótt sé eins vinsæl hér á landi
og skákíþróttin, að minnsta
kosti er áhuginn fyrir henni
miklu útbreiddari utan Reykja-
víkur en um hinar íþróttirnar.
Þessari göfugu íþrótt er lítill
sómi sýndur. Að vísu hefur út-
varpið skákþátt og blöðin birta
greinar um skák, en þegar skák-
mót eru háð erlendis, eru frétt-
ir af skornum skammti, koma
seint og illa, eða eru algerlega
vanræktar Þetta vekur sérstaka
ahygli þegar mesti og bezti í-
þróttamaður landsins, og um
leið annar frægasti maður, sem
Islendingar eiga, Friðrik Ólafs-
son stórmeistari, tekur þátt í
skákmótum erlendis.
OFT á það sér stað, að hann
verður sjálfur, meðfram hinum
erfiðu mótum sínum, að senda
hingað heim skákfréttir — og
Interpol, alþjóðalögreg’an
fræga, hefur nú neyðst til að
flytja aðalstöðvar sínar í París
í aðra byggingu, vegna þess
að þrigga hæða byggingin sem
hún hefur verð staðsett í, er
orðin of lítil fyiir ört vaxandi
skjalasafn. í því eru geymdar
meira en 125 þús. ljósmyndir
af glæpamönnum, fingraför, og
æviskrár fjölda glæpamanna
um allan heim. Glæpum fjölg-
ar en hitt, og hættulegir glæpa
■mun hafa verið á því, að senda
sérstakan fréttamann með kórn-
um og varð út af því mikill úlfa
þytur og réðist blaö kommún-
ista af því tilefni á útvarpið. —■
Algerlega var það þarflaust a5
senda fréttamann með kórnumí
því að af honum eru engar frétt
ir að segja, sem menn bíða eftir,
fyrr en hann kemur heim, og get
ur sagt frá förinni sjálfur.
ENGINN fréttamaður var.
sendur með Friðrik Ólafssynl
— og dvelur hann einn íslend-
ingur á mótinu og nú verður
hann að standa í skeytasending-
um. Svona erum við íslending-
ar Skapgerð skákmanna virðist
vera heldur lin, að þeir skuli
láta bjóða sér annað eins og
þetta. Þegar sérstakur frétta-
maður var sendur með karla
kórnum, var það fyrir einberan,
áróður. Það var miklu meiri á-
stæða til þess, að senda frétta-
mann með Friðrik Ólafssyni, —■
Menn spyrja frétta af mótinu,
en enginn spyr um fréttir a£
söngför karlakórsins um Sovét-
ríkin“
ÞETTA segir bréfritarinn —■
og ég verð að lýsa yfir því, að
ég er honum alveg sammála.
Hannes á horninu.
menn takmarka ekki lengur
starfsemi sína við eitt land.
Undanfarið hefur staðið yfir
ráðstefna fulltrúa þeirra 64
þjóða, sem eru í Interpol og
hefur Richard Jackson, yfir-
maður hjá Scotland Yard sagt
þar, að Interpol hafi aldrei
haft meiru að sinna en s. 1. ár,
auk þess sem búizt er við, að
þetta ár, sem nú er að líða,
verði enn annasamara.
2 sept. 1961 — Alþýðublaðið