Alþýðublaðið - 21.12.1961, Síða 2
■UtsÍjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Cjöœvin Guðmimdsson. — Símar: 14 900 — 14 002 — 14 903. Augiýsingasíml
14 9(ÍS. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðubláðsins, Hverfisgötu
-10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgel-
andi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
! ' i M
Varasöm vöruskipti
VIÐSKIPTI íslendjnga við Tékka hafa verið til
urhræðu í dagblöðunum, og koma fram ýmsar
.skoðanir á þeim. Hér hefur verið um hrein vöru~
skipti að ræða, og er því fróðlegt að sjá, hvernig
um þau er skrifað.
Undanfarin ár hafa íslendingar heimtað af Tékk
um hærra og hærra verð fyrir ýmsar afurðir og
: Tékkar fallizt á að borga það, unz þeir keyptu
margar vörur okkar yfir heimsmarkaðsverði. Síð-
■ an hafa þeir jafnóðum hækkað verðið á tékknesku
: vörunum, sem við kaupum í staðinn, svo að þeir
sleppi sjálfir skaðlausir.
Kú segir Þjóðviljinn, að það sé aðeins „fyrir-
komulagsatriði)£i hvert verð er notað í vöruskiptum
milli þjóða. Við gætum eins samið við Tékka um
að þeir gefi okkur skófatnað og hreinlætistæki, ef
; við gefum þeim fisk.
Málið er ekki svona einfalt. Þegar Tékkar
i keyptu afurðir okkar fyrir meira en heimsmark-
aðsverð, fengu fiskútflytjendur á íslandi þá hækk
un í sinn vasa. En Tékkar greiddu ekki þessa
hækkun sjálfir. Þeir hækkuðu verðið á tékknesku
vörunum, sem þeitr seldu okkur, og urðu íslenzkir
neytendur að greiða þá verðhækkun. Með þessum
viðskiptamáta hefur „alþýðustjórnin“ í Tékkósló-
vakíu greitt íslenzkum kapítalistum milljónir
króna í verðhækkun á fiski, en tekið þessar millj-
<5nir af íslenzku alþýðufólki með því að hækka
verðið á tékknesku vörunum, sem við verðum að
kaupa, ef nokkur viðskipti eiga að vera.
Slíkur verzlunarmáti gæti gengið, ef bæði ríkin
hefðu þjóðnýtt alla verzlun og gæ’tu millifært, svo
að allir hefðu eðlilegt verðlag. En gagnvart landi
eins og íslandi hefur þetta óneiltanlega verið auka
skattlagning á íslenzka alþýðu til að Tékkar gætu
borgað útflutningshringnum hærra verð fyrir fisk
! inn.
Það er því herfilegur misskilningur, þegar Þjóð
viljinn segir, að það sé „fyrirkomulagsatriði“,
íivaða verðlag ríkir í vöruskiptum okkar við
Tékka. Og hafi tékknesk yfirvöld áttað sig á gangi r
' þessa máls, þá kæra þau sig kollótta um hag al-
! þýðu hér uppi á íslandi. Það er að vísu hlutverk
1 annarra að gæta hagsmuna íslenzkrar alþýðu, en
1 sýnilega gerir Þjóðviljinn það ekki, ef kommún-
! istaríki á í hlut.
Fyrir utan þetta verðlagsatriði, sem sjálfsagt er I
að' breyta, hafa vilðskiptin við Tékka verið mikil
og að mörgu leyti góð. Er sjálfsagt að efla þau — 1
en á heilbrigðari grundvelli en hingað til.
Togi Ramacharaka: Yoga-
heimspeki. Þýðandi Stein-
unn Briem. Útg.: Prent-
smiðjan Leiftur, Rvk.
ÖLLUM þeim, er unna aust-
rænum fræðum — og þeir eru
margir hér á landi — er mik-
ill fengur í bókinnj Yogaheim-
speki eftir Ramacharaka. Hér
er um að ræða einkar greinar-
jgott yfirlit y£ir heimspeki
yogafræðanna austrænu, svo
að menn geta nú hér á landi
séð svart á hvítu, hvað dul-
ræn fræði AusturJanda fjalla
um,
Þessi bók er m’kill fengur
vegna þess, að hún er skýr og
efnismikil og þar að auki mjög
einföld og auðskilin þeim, sem
er að byrja að kynna sér youga
og dulvísindi. Bókin skiptist í
fjártán kaEla, þar sem fyrir er
tekin innri gerð mannsins, —
önnur tilverusvið, og andleg
framþróun frá sjónarmiði
hinna austrænu dulvísinda og
að lokum gert grein fyrir and-
legri þjálfun youganna.
Áhugi á dulrænum fræðum
er í örum vexti liér á landi, og
sést það glöggt á því, hve mik-
ið kemur út í ár af slilcum bók-
menntum. Að öllum öðrum
bókum.ólöstuðum er hér um að
ræða eitt bezta byrjendarit,
sem völ er á til þýðingar í
þessum fræðum.
Frú Steinunni Briem v rðisf
hafa tekizt þýðingin igætavei.
Þótt fljótt á litið virðist bókin1
auðveld, krefjast ýmis tilvik í
henni grandgæfilegrar athug-
unar í þýðingu. Þýðing fræði-
heita er vandaverk. En Stein-
unn leysir vandann með prýði.
f lokin langar mig svo til aðl
varpa fram þeirri spurningu,
hvort útgefanda og þýðandai
þyki ekkj við eiga að komai
næsta ár með bókina ..Advanc^
ed Course, in Yougi Philoso-i
phy“ eftjf sama höfund. Og
ég get heldur ekki stillc mig
um að vekja athygli á tve.murj
öðrum: ,,Raja Yoga“ og ,,Gnanl
Yoga“. t
Sigvaldi Hjáhnarsson.
Á íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn
j
ó
I
a
b
ó
k
■
i
n
r
1
eftir Björn Th. Björnsson.
FjöSskrúðug
Skemmtiieg
FréðSeg
SVlyndskreytt
íslenzk þjóðarsaga í erlendu
umhverfi um 500 ár.
Heimskringla
£ 21. des. 1961 — Alþýðublaðið