Alþýðublaðið - 18.01.1962, Page 5
HRAKFARIR KOMMÚNISTA
Á FUNDI VARÐBERGS
FUNDUR Varðbergs í
Hafnarfirði í fyrrakvöld var'ð}
geysifjölmennur og vel heppn
aður. Hlutu ræður frummæl-
enda mjög góðar undirtektirj
og greinilegt var, að mikill á- j
hugi er fyrir bví í Hafnarfirði
að efla vestræna samvinnu.'
Kommúhistár Jiöfðu Kaft nokk 1
urn liðssafnað fyrir fundinn
og hugðust greinilega gera til[
raun til þess að ná yfirtökun-
um á fundinum. En sú til-
raun þeirra mistókst gersam
lega og fóru þeir hinar mestu
hrakfarir á fundinum.
Formaður Varðbergs, Guð-
mundur Garðarsson, setti
fundinn og bauð fundarmenn
velkomna. Skýrði hann frá því
að fundurinn værj liður í
fundarherferð Varðbergs um
allt landv Sagði hann, að fundir
þessir væru aíls stáðár með
sama sniði, umræðufundir, en
engar ályktanir gerðar. Síðar
tóku frummælendur til máls.
Fyrstur talaði Björgvin
Guðmundsson. Ræddi hann í
Upphafi máls síns klofning
hinnar alþjóðlegu verkaiýðs-
hreyfingar í kommúnista og
jafnaðarmenn og ástæðuna
fyrir þeim klofningi. Komm-
únistar hefðu viljað fara bylt-
ingarleiðina til þess að ná völd
um, en jafnaðarmenn lýðræðis
leiðina. Ræðumaður sagði, að
síðar hefðu kommúnistar að
vísu dregið yfir sig lýðræðis-
Iijúp og í orði talað fagurlega
um lýðræðið en þrátt fyrir
það, hefðu þeir aila tíð verið
fylgjandi valdbeitingu, ein-
ræði og kúgun. Björgvin sagði
að á sama hátt og kommúnist
ar hefðu viljað beita valdi
innan ríkjanna, hefðu þeir og
viijað beita þvingunum, hótun
um og vopnavaldi í samskipt-
um þjóðanna. Hefði þetla kom
ið vel í Ijós í heimsstyrjöld-
inni síðari og upp úr henni er
kommúnistar hefðu í skjóli
rúSsneskra vopna hrifsað til
sín völdin í Eystrasaltsríkjun
um og mörgum ríkjum Austur
Evrópu. Og með vopnavaldi
hefði fólkinu í ríkjum þessum
verið haldið í skefjum. Upp-
reisn alþýðunnar í Ungverja-
landi' ög Austur-Berlín hefði
verið bæld niður með aðstoð
'rússneskrá' bryndreka.
Björgvin sagði, að íslenzkir
kommúnistar hefðu alltaf lagt
blessun sína yfir ofbeldisstefnu
hins: alþjóðlega kommúnisma.
Einar Olgeirsson hefði sagt í
síðustu áramótagrein sinni, að
Sósíalistaflokkurinn væri með
sósíalismarium í Sovétríkjun-
um, Kína og Austur Evrópu-
ríkjunum. Þannig legðu ís-
lenzkir kommúnistar blessun
sína- ýfir öll þau ódæðisverk,
sem unnin hefðu verið í nafni
sósíalismans í löndum þessum.
Björgvin sagði að valdarán
kommúnista í Auslur-Evrópu
hefði opnað augu manna í V-
Evrópurikjunum fyrir því að
þau yrðu að bindast samtök-
um sín á milli í því skyni að
sporna gegn útþenslu kommún
ismans. Þess vegna hefði At-
lantshafsbandalagið verið stofn
að. íslendingar hefðu gerzt að-
ilar að því vegna þess, að þeir
hefðu séð örlög smáríkjanna
við Eystrasalt og í Austur—
Evrópu og vegna þess að þeir
hefðu enga möguleika haft á
því að verja frelsi sitt sjálfir,
ef hinn kommúnistíski hramm
ur -mundi seilast til valda hér
á landi. Hefðu íslendingar
vissulega stigið rétt skref með
aðild að NATO. Og staðreynd
væri það, að síðan NATO var
sto^nað, hefði friður haldizt og
r kkert ríki Evrópu glatað
frelsi sínu.
Björgvin sagði, að meðan ís-
lenzkir kommúnistar ynnu að
því að grafa undan lýðræði og
frelsi íslands, yrðu allir unn-
endur frelsis og lýðræðis hér
á landi að vera á varðbergi.
Sýna yrði þjóðinni fram á tví
skinnunginn og blekkingarn-
ar, sem væru einkenni starf-s-
aðférðá kommúnista. Og ef það
væri gert, mundu þeir tapa
fylgi._
Heimir Hannesson talaði'
næstur. Brá hann upp mynd af
stjórnarfarinu í Auslur-Evróp
Framhald á 15. síttu
rtWMWWWMWWWWWMWM
AÐ undanförnu hefur
Leikfélag' Kópavogs sýnt
sakamálalé’kntið „Gildr-
an“ eftir Robert Thonias,
. við mikla aðsókn. Næsta
og 11. sýning verður í
Kópayogsbíó í kvöjd. Leik
stjóri er Benedikt Árna-
son. Mynd n sýnir Pétur
Sveinsson og Auffi Jóns-
dóttur í .hjutverkum sm-
um.
WWWWHWWMWWWWWM
Sements-
geymar í
Ártúnshöfða
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum 5. janúar síðastl.
að gefa Sementsverksmiðju
ríkisins kost á landi í Árlúns-
höfða.
Sementsverksmiðjan fær kost
á þessu landi undir sements-
geyma og fleira eftir nánari
I útvísun borgarverkfræðings og
, hafnarstjóra og skilmálum, er
þeir setja. Greiðsla gatnagerð-
argjalds er áskilin.
AKBORÐSHL
Stykkishólmi í gær.
Varðskipiff Þór kom með <
Skjaldbreið hingað um k!. 8 í
morgun. Var Skjaldbreið lagt!
hér við bryggju, og síðan '■
byrjað að reyna að dæla úrj
henni og rannsaka skemmd- i
irnar. Froskmaður af Þór fór i
niður, og fann hann gai á fcafc
borðshlið skipsins, sem er um
faðmur á lengd. Einnig cr þa3
dældað við slingubrettið.
Strax eftir að Skjaldtreið
kom hingað voru settar fjórar
dælur um borð, og reynt að
létta skipið með því aö dæla
úr lestinni. Ekki tókst þa'ð bet-
ur en svo, að vatnsborðið læklc
aði lítið sem ekkert. Var þá '
gef'zt upp við það og mun vera
ætlunin að setja eitthvað fyrir
gatið meðan dælt er úr lest-
inni.
Skömmu eftir að Skjaldbreið
lagðisl að bryggju, stöðvuðust
vélar hennai’, en aðalvéiinni
hafði verið haldið í gángi til að
dæla úr vélarrúminu, en t.ölu-
verður sjór komst í vélarrúm-
ið eftir strandið.
Þegar skipið var dregið hing
að inn flæddi sjór yfir þiifarið,
og skipið rásaði til og fiá í tog
inu, og gátu skipsmenn litla
stjórn haft á stýrinu, þar scm
skipið lá svo djúpt.
Farþegarnir tveir, sem cftir
voru um borð, komu strax í
land, en áhöfnin var eftir um.
borð, og mun ásamt Þórsmönn
um vinna við björgunina. Sá
hluti áhafnarinnar, sem fluttur
var id Grafarness mun vcra
þar enn í góðu yfi.-læt'. Asg.
Alþýðublaðið — 18. jar. 1562 g