Alþýðublaðið - 01.03.1962, Síða 2
K stjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Bfbrgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Neytendur og verzlunin
3 VERÐLAGSMÁL hafa verið óróleg hér á
landi um langt skeið, eins og vænta má í verð-
tíólgulandi. Þegar verðlag hækkar stöðugt í tvo
áratugi, en fólk hefur jafnframt vaxandi pen-
rað, hættir neytendum til að gefast upp við að
þera saman og verzla í næstu húð, hvort sem hún
sjslur háu eða lágu verði.
Alþýðublaðið hefur undanfarna daga gert
nokkrar athuganir á verðlagi. Hafa þær verið
gerð frá neytandans sjónarhól. Blaðamenn hafa
gengið búð úr búð og 'borið saman. Niðurstaðan
af þessu varð sú, að fljótlega kom í ljós mikill
verðmunur og þar með staðfesting á því, að sam-
anburður borgi sig fyrir neytandann. Þar að auki
rákust blaðamenn fljótt á dularfull verðfyrir-
brigði, sem reyndust stafa af því, að viðkomandi
vara var smygluð.
Alþýðublaðið vill í tilefni af þessum málum
segja þetta: Athugunin er ekki gerð af almennu
vantrausti á kaupmönnum, kaupfélögum eða
•\|erzlunarfólki. Síður en svo. Rannsókn blaðsins,
til dæmis á matvörum, leiddi í ljós, að meirihluti
verzlana er 'heiðarlega og vel rekinn. Frá þessu
sögðum við undir allstórri fyrirsögn.
Hins vegar eru undantekningar á þessu sviði
eins og öðrum. Þær verzlanir eru til, sem misnota
hvert tækifæri til að smyrja á vöruna. Upplýs-
ingar Alþýðublaðsins um þessi mál hljóta því að
vera stuðningur við hinn heiðarlega meirihluta
verzlana, en hvimleiðar þeim fáu, sem hafa
elæma samvizku.
Rétt er að minnast þess, að undanfarnar
gengislækkanir og lækkun á tollum margra vöru-
tegunda hafa allmikil áhrif á verð, sem enn er á
boðstólum. Þegar slíkir viðburðir gerast, getur
vara tollafgreidd í gær verið á allt öðru verði en
sams konar vara afgreidd í dag. Þetta skerðir þó
ékki rétt neytandans til að leita fyrir sér og er
jafn sjálfsagt að hann geri það.
í þessum málum gætu verzlanir gert ýmis-
legt, sem mundi bæði hjálpa neytendum við sam-
anburðinn og létta afgreiðslufólki starfið. Má
i?efna betri verðmerkingu á vörum, bæði í búð-
únum sjálfum og sýningargluggum. Þá mætti
•áuglýsa meira með verði vörunnar, og verður að
telja þá til fyrirmyndar, sem það gera. Hlýtur
það raunar að vera gamall vani frá árum vöru-
skortsins, að verzlanir skuli ekki auglýsa meira
með verði vörunnar.
r______________________________
Auglýsingasíminn er 14906
*
1. marz 1962 — Alþýðublaðiff
Verzlunarbanki íslands h.f.
BankaStræti 5 — Sími 2-21-90.
Frá og með 1. marz 1962
breytist afgreiðílutími Verzlun-
arbanka íslands h.f. þannig, að
hádegi er afgreiðsla bank-
anc oftirloiirSic opnilð kl.
Afgreiðslutími bankans er því: Kl. 10—'12,30 og 13,30—16; kl. 18—
19 fyrir innlánsviðskipti eingöngu. Laugardaga kl. 10—12,30.
kl. 13.30
í stað kl. 14, eins og verið hefur,
en að öðru leyti er afgreiðslutími
bankans óbreyttur.
HANNES
Á HORNINU
★ Einn fullur á dag
umferðinni.
sem ekki cr rétt að sleppa eða taka
á með mjúkum lófum, og ölvun
við akstur er slíkt afbrot.
honum eins og ódýrir bófaflokkar
erlendis.
ÉG HELD að það ætti að
taka upp birtingu nafna þeirra,
sem teknir eru og dæmdir fyrir
ölvun við akstur. Blöðin og dómar-
arnir verða að taka ákvörðun um
þetta. Ég hygg, að mörgum mundi
þykja að áhættan yxi svo mjög við
slíkt, að viturlegast væri að eiga
ekki ncitt á hættu — og fara því
ekki undir stýri á bifreið eftir að
hafa bragðað áfenga drykki.
★ Óhugnanleg stað-
reynd.
★ Eigum við að birta
nöfn þeirra.
★ Refsingar þyngdar.
SAMKVÆMT upplýsingum
umferðalögreglunnar hefur einn
maður á dag verið fundinn sekur
um ölvun við akstur síðan um ára-
mót. Sumir þessara manna hafa
valdið slysum og árekstrum og þar
með miklu tjóni. Blöðin segja, að
ölvun við akstur fari vaxandi. Ég
vil ekki trúa því fyrr en ég tek
á. Ætli að þessi hræðilega mörgu
upplýstu brot stafi ekki af því
að lögreglan gengu betur fram en
áður hefur verið. Samt sem áður
er þessi staðreynd óhugnanleg.
ÉG HEF OFT gert þessi
mál að umtalsefni. Síðast ræddi
ég um þau af tilefni ummæla í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
þar sem rætt var um það, að birta
nöfn þeirra mauna, sem sekir
verða fundnir um ölvun undir
stýri. Ég álít að þetta komi til
mála. Hér er um svo hræðilegan
ásetningarglæp að ræða, að ekki
dugar að sýna neina linkind, og
mér finnst að reynslan sanni það,
að vettlingatök duga ekki í svona
málum.
SUMIR MENN halda því
fram, að undir öllum kringumstæð-
um sé rétt að taka vægilega á af-
brotum. Það geti orðið til þess að
þeir, sem afbrotin fremja sleppi
sjálfir frá þeim óskaddaðir, en
sjálf refsingin skiiur stundum eft-
ir varanleg-mein. Þetta getur ver-
ið rétt, en það cru til viss afbrot,
ÞAÐ ER stórfurðulegt, að
menn, sem hafa neytt áfengis og
vita fullvel, að þeir hafa við það
misst hæfni til að aka bifreið, skuli
samt sem áður setjast undir stýri
og aka henni. Hér er um svo
dæmalaust kæruleysi að ræða, vit-
andi vits, að það nær ekki nokk-
urri átt ef þjóðfélagið beitir þá
hina sömu ekki þeim refsingum,
sem þeir hafa sannarlega unnið til.
REFSINGARNAR v o r u
þyngdar. Þær voru allt of léttar.
Ég þakka lögreglunni fyrir vask-
lega framgöngu. Mér er til dæmis
sagt, að sala áfengis í bifreiðum
hafi minnkað mjög mikið eftir að
Guðmundi Hermannssyni var falin
stjórn þeirra mála, en hann gekk
vasklega fram. Varð hann þó fyr-
ir glæpsamlegum ásóknum af
hendi ósvífinna lögbrjóta, sem
jafnvel mynduðu samsæri gegn
SÍÐASTA skýrsla lögregl-
unnar um það, að einn maður
hafi að meðaltali verið tekinn á
dag síðan um áramót fyrir ölvun
við akstur, er svo ljót, að við verð-
um að taka upp nýjar ráðstafanir
gegn þeim.
Hannes á horninu.
Verzlasiir.
Atvintiyrekendur.
Látið færa bókhald
yðar reglulega f
VÉLABÓKHALD
SÍMI 17333.
(Q) Árshátið Dagsbrúnar
verður í Iðnó næstk. laugardag 3. onarz og hefst kl.
7,45 með borðhaldi.
íslenzkur matur á borðum.
Leikararnir Róbert Arnfinnsson og Rúrik
Haraldsson skemmta.
Danssýning. — Dans.
Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu Dagsbrúnar. Tekið
á móti pöntunum í síma 13-724.
Nefndin.
«>