Alþýðublaðið - 06.04.1962, Page 2
Mtstjórar: GisLl J. Ástþórsson (áb.) og Benedlkt GrSndal. — ASstoSarritstjóri:
Björgvin GuSmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
14 906. — ASsetur: AlþýðuhúsiS. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
B—10. — ÁskriftaFgjald kr. 55.00 á mánuöi. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef-
andi: Aipýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Skráning sjómanna
VIÐ UMRÆÐUIl á alþingi undanf ama daga hef
ur verið upplýst, að lögskráningu sjómanna á fiski
skip sé mjög ábótavant. Er hér um alvarlegt mál að
ræða, sem taka verður föstum tökum, enda eru
mikilvægir hagsmunir sjómanna sjálfra og fjöl-
skyldna þeirra í veði.
Þess er skammt að minnast, að heil skipshöfn fórst
án þess að 'hún væri löglega skráð á skip sitt. í
annan stað hefur borizt frá íslenzkum ræðismanni
í Þýzkalandi alvarleg kvörtun um að íslenzkir sjó-
tmenn séu yfirleitt ekki rétt skráðir, hafi ekki til
skilríki og komist því oft í hin mestu <vand
ræði í framandi landi, þar sem nákvæmni er kraf-
izt, en menn skilja ekki íslenzkan trassaskap.
Þá mun vera algengt, ef sjómenn ganga úr skip-
rúmi á miðri vertíð, að tekinn sé annar maður án
þess að hugsað sé um lögskráningu hans. Þannig
•erudæmin óteljandi um<vanrækslu skráningarinn-
ar.
Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi þess
efnis, að við lögskráningu skuli leggja fram skilríki
fyrir þeim tryggingum sjómanna, sem tilskildar
eru í kjarasamninum. Augljóslega er þetta ákvæði
4ítil trygging, ef skráning verður í framtíðinni van
rækt eins og hingað til.
Vörn eða voði?
KOMMÚNISTAR endurtaka í sífellu þann áróð-
ur sinn, að þátttaka íslendinga í Atlantshafsbanda-
laginu kalli kjamorkuárás yfir þjóðina og sé henni
fvoði en ekki vörn. Þetta er fjarstæða af eftirfar-
andi ástæðum:
1) ísland hefur hernaða-rlega stórþýðingu í átök-
um milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Reykjavík er á miðri línu milli New York og
Moskvu.
2) Væri ísland hlutlaust og varnarlaust, þegar ó-
friður brytist út, mundu styrjaldaraðilar
þreyta kapphlaup um að ná landinu. Hlutleysi
og varnarleysi eru öruggasta leiðin til að gera
ísland að vígvelli.
3) Sá, sem byrjar kjamorkustyrjöld, mundi fyrst
og fremst ráðast á kjarnorkustöðvar hins aðil-
ans. Hér á íslandi eru engin kjarnorkuvopn eða
aðstaða t:l árása. Þess vegna er öryggi íslend-
inga bezt tryggt með því að hafa landið varið
- en kjarnorkuvopnalaust.
4} Samtök og styrkur Atlantshafsbandalagsins
I halda kommúnistum í skefjum og tryggja
1 ? heimsfriðinn. ísland er mikilvægur hlekkur í
I þessari varnarkeðju — og Íslendingum vörn í
keðjunni í heild.
*
2 *6. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HANNES
A HORNINU
★ Bréf, sem vakið hefur
athygli.
★ Eru sjávarafurðir okk-
ar eitraðar?
★ Bréf af tilefni erindis í
útvarpinu.
BREF LOGREGLUMANS, sem
ée birti í gær, hefur vakið mikla
athygli. Þó sagði hann ekki frá
öðru en því, sem allir vita. Sívax
andi vandræði stafa af taumlausu
áfengisflóði og vxandi deyfilyfja
notkun. Ég hef áður sagt það, að
ég efst um að nokkur æska sé í
eins mikilli hættu vegna deyfi-
lyfja og okkar æska, og er síðar
hægt að rekja ástæðurnar fyrir
því. Bráðlega birti ég annað bréf
um líkt efni: örvæntingu fjöl
margra heimila út af útivist og
lauslæti telpna. Það bréf er frá
föður.
J.H.G. SKRIFAR: „Það var rétt
hressileg demba, sem Óttar nokkur
Hansson, fiskiðnfræðingur, liellti
yfir vesalings þjóðina sína í þætt
inum um fiskinn í útvarpinu 30.
marz sl. Erindi hans fjallaði um
hreinlætisástandið í fiskiðnaðinum
og voru lýsingar hans svo ógn-
þrungnar og hryllilegar, að fiskát á
íslandi hlýtur hér eftir að flokkast
undir vísvitandi tlraunir til sjálfs
morðs og útflutningur á ísl. fiski
að teljast til vandlega skipulagðra
ráðin bót á þeim dæmafáa óbrifn-
fjöldamorða, nem skyndilega verði
aði, sem maðurinn sagði, að fisk
framleislan velti sér í frá fyrstu til
síðustu handar.
EN ÞAÐ VAR nú ekki að heyra
á piltinum, að leiðin til úrbóta
á því sviði væri auðhlaupin. Manni
skildist helzt, að fyrsta skrefið í
hreinlætisáttina væri hvorki meira
né minna en víkj frá störfum öllum
hreppsnefndum og bæjarstjórnum
í landinu og síðan sjálfri ríkis-
stjórninni!
ÞESSI FISKIÐNFRÆÐINGUR
virtist hafa gert þá „vísindalegu"
uppgötvun, að ráðmenn bæjar- og
(sveitarfélaga væru mjög íhalds
samir á vatn til iiskvinnslustöðv-
anna, og af og frá að þeir fengjust
til að láta af hendi gott og heil
næmt vatn, enda hilltust þeir til
að seilast eftir yfirborðsvatni úr
vatnsbólúm, sem jafnframt væru
baðstaðir fyrir búsmala og veiði-
bjöllu! Og ríkisstjórnin fengist
ekki einu sinni til að lækka tollá
á handþurrkupappír, svo að hann
yrði fluttur inn handa starfsfólki
frystihúsanna, til þess >að það
mætti þurrka sér um hendurnar
eftir að hafa farið á salerni.
ÞAö MÁ SJÁLFSAGT leiða
mörg rök að því, að þrifnaði á ís
landi hafí löngum verið ábótavant.
Þó liggur í augum uppi, að á því
sviði hafa orðið stórstígar og al
mennar framfarir á síðari árum.
En þrátt fyrir það munum við
samt standa nokkuð að baki þeirra
þjóða, sem lengst eru komnar í
hreinlæti, og má e.t.v. þar til nefna
matvælaframleiðluna fyrst og
fremst. Skýrslur um barnadauða
á íslandi virðast þó ekki bend til
þess, að þjóðin Iifi á mjög bráð
drepandi óhreinindum nú á ofan-
verðri 20. öld.
MEÐ ÞESSUM LÍNUM skal síð
ur en svo amast við því, þótt lærð-
ir menn á sviði heilbrigðismála og
matvælaframleiðslu brýni fyrir
þjóðinni nauðsynlegt hreinlæti.
Þvert á móti telur sá, sem þessar
línur ritar, að sú skylda hvíli á
þeim mönnum, að þeir láti ekkert
tækifæri ónotað til að fræða al
menning um þessi mál og hjálpi
þjóðinni með góðum ráðum og
leiðbeiningum til að ráða bót á
því, sem miður fer.
ÞAÐ ER ALLS EKKI NÓG a»
sitja með sveittan skallann á rann
sóknrstofum í Reykjavík og remb
ast þar við að telja milljánir af
misjafnlega banvænum gerlum og
hlaupa síðan endrum og e ns más
andi og blásandi í útvarpið meS
hroðalegar lýsingar á ástandinu
kryddaðar sleggjudómum um menn
og málefni. Gerlafræðingar og
fiskiðnfræðingar í þjónustu ríkis
ins og atvinnuveganna ættu t.d.
að leggja oftar land undir fót og
heimsækja í eigin persónu byggðar
lögin. íj
BÆJAR- OG SVEITARFÉLÖG
sem eru svo ógæfusöm að eiga
enga Gvendarbrunna, mundu áreið
anlega taka þeim vel. Þau mundu
fagna því, ef slíkir menn gætu
bent á færa leið til að íyrirbyggja
eoly-gerla í yfirborðsneyzluvatni,
Framhald á 12. síðo.
Spur
Cola
er
belra
cola
Spur
Cola
er
nyjum
umbúðum
H.í. Olgerðin
Skallagrímsson
Reykjavík