Alþýðublaðið - 06.04.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.04.1962, Blaðsíða 4
 Guöni Guðmundsson: ERLEND TIÐINDI GAGNSEMI Sameinuðu j»jóð anna hefur verið mjög íil um ræðu í Bandaríkjunum undan- farið og sitt sýnzt hverjum. Stjórnmálamenn hafa tekið til máls með og móti Sþ, en þó mun það vera staðreynd sam- kvæmt skoðanakönnun, að að- eins um 5Vc almennings í Banda ríkjunum vilji, að landið fari úr samtökunum. Þesg deila, ef kalla má hana svo, er ekki ný af nálinni. Það er vitað, að Dean Acheson, fyrr verandi utanríkisráðherra í for- setatíð Trumans, hafði ekki sér iega háar hugmydir um Sþ í' ráðherratíð sinni og hefur það tæplega enn í dag, hann er eins- konar óopinber ráðunautur , demókratafl. uin utanrikismál. Þó að það sé tekið með í reikn inginn, að viðhorf smáþjóða til alþjóðasamtaka hljóti að vera önnur en stórþjóða, þá hlýtur það að koma borgurum smá- þjóða á óvart, að stjórnmála- menn, sem fyrst og fremst eru kenndir við frjálslyndi og víð sýni, skuli ganga fram fyrir skjöldu í andstöðu við Sþ. En þetta hefur einmitt gerzt vestra nú upp á síðkastið. Henry Jackson, öidungadeild- arþingmaður frá Wasliington- ríki, hélt fyrir skömmu ræðu í Blaðamannaklúbbnum í JVas bhigton D.C., þar sem hann réð f.st alliiarkalega á samtökin og kvað stjórn Kennedys forseta hafa fallið í sömu gröf og stjórn Eisenhowers, nefnilega að telja Sameinuðu þjóðirnar miklu veigameiri en ástæða væri til. f ræðu sinni sagði Jackson m.a.: „Þó að við höfum ekki talað mikið um það upp á siðkastið, er sannleikurinn sá, að bezta vonin um frið og freisi er ekki hjá Sþ. Sannleikurinn er raun verulega þveröfugur. Bezta von Sþ liggur í varðveiziu friðarins og friðurinn er kominn undir styrknum og einingunni innan Atlantshafsbandalagsins og dugnaði diplómata okkar.“ Það er svo sem nokkúð víst, að efasemdirnar um Sþ eru ekki aðailega meðal bandarískra stjórnmálamanna, heldur ná þær miklu víðar og stafa senni lega aðallega af þeim hlutfalls breytingum, sem orðið hafa undanfarið í samsetningu sam takanna vegna hins mikla f jölda nýrra ríkja, sem hlotið hafa sjálfstæði í Afríku og öll fengið aðild að samtökunum. Tvö at- riði önnur hafa líka haft veru leg áhrif í þessa átt.. Annars vegar Kongó-málið og hins veg ar Belgrad-ráðstefna hinna hlut lausu. Kongómálið olli því fyrst og fremst, að ýmis hægri öfl, sem hliðholl voru Tshombe í Kat- anga, hófu hávær mótmæli út af afskiptum Sþ og sömuleiðis fengu aðrir aðilar bakþanka út af því í því máli lentu Banda- ríkjamenn í nokkurri andstöðu við bandamenn sína í Evrópu — Ráðstefnan í Belgrad gerði sig hins vegar seka um að fordæma vesturveldin með miklu meiri ofsa en kommúnistaríkin, og er ekki óeðlilegt að draga af því þann lærdóm, að a.m.k. veru- legur hluti hinna hlutlausu og nýju ríkja standi nær kommún istum. Þegar tekið er tillit til þeirrar „saltpoka-aðstöðu", sem þau liafa, er ekki óeðlilegt, að nokrar efasemdir geri vart við sig. Á það hefur verið bent, að ýnisir framámenn í heimi hér séu af öllu þessu farnir að. gera lítið úr því, sem kallað hefur verið „almenningsálitið í heiminum“ og m.a. taldi Jack son í ræðu sinni að menn skýldu sér oft bak við þetta hugtak, þegar þeir væru komnir í rök- þrot. Ennfremur er með réttu bent á þá staðreynd, að þetta hugtak beið nokkurn hnekki, þegar Asíu- og Afríkuríkin hjá Sameinuðu þjóðunum skrifuðu undir þá kenningu Indverja i sambandi við hernám Goa, að til væru „réttlát stríð“. Er eng inn vafi á, að sú samþykkt Sþ liefur haft verri afleiðingar fyr ir Sþ, en flest annað, sem fyrir þær hafa kolnið. Það skyldi þó enginn ætla, að Jackson sé sá eini vestan hafs, sem látið hafa í ljós skoð un á þessum málum. Viðbrögðin við ræðu hans létu ekki bíða eft ir sér. Það var Hubert H. Hump hrey, öldungardeildarmaður frá Minnesota, sem brá einna harð ast við. í sjónvarpsræðu 1. apríl sakaði liann Jackson raunveru- lega um að baka öryggi Banda- ríkjanna verulegt tjón með gagnrýni sinni á þeim áhrifum sem Sþ hafi á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Hann minntist ekki á Jackson með nafni, en augljóst var, að hann átti við hann, því að hann ræddi ýmis sömu atriðin, sem komið höfðu fram í ræðu Jacksons, í sama sjónvarpsþætti tók Stevenson, sendiherra Bandaríkjanna lijá Sþ, mjög í sama streng og Hump hrey, þó að hann væri ekki eins harður í horn að taka. Það er enginn efi á því, að það er í raun og veru gott að fá þessar umræður um viðhorf ið til Sþ fram í dagsljósið, þó að þær kunni ef til vill að skaða Bandaríkin eitthvað um stund. The New York Times bendir réttilega á, að hinum látnu for ingjum flokks Jacksons, Wilson og Roosvelt, mundi hafa kom ið orð hans spánskt fyrir sjónir mönnum, sem hvor um sig tengdu svo miklar vonir við Þjóðabandalagið og Saineinuðu þjóðirnar. Kennedy forseti virðist enn ekki hafa tekið af skarið um afstöðu sína til orða Jacksons. Á blaðamannafundi sínum í s.I. viku varði hann Sþ af miklum ákafa, en sagði jafnframt, að ekki væri nein óeining milli sin og Jacksons. Það má hins vegar búast við því, að umræð ur þessar skýri nokkuð viðhorf in til Sþ, og lítil ástæða virðist vera til að ætta annað, en tengsl in styrkist frekar en liitt. Þau ummæli Jacksons, að Bandaríkjamenn geti betur starfað innan NATO eru að sjálf sögðu vitleysa, því að hvar verð ur annars staðar náð beint til 103 þjóða en einmitt hjá Sþ. LIST OG MENNT I YMSLHVI LÖNDUM ^YZKI myndhöggvarinn Ewald. Mataré (sjá mynd) hélt upp á 75 ára afmælið sitt 25. febrúar s. 1. Hann var málari áður en lann sneri sér að liöggmyndalist, sém' hann auðgaði með skörpu formi og hugmyndaríkum skreyt ingum. Höggmyndarinn, sem fæddist í Aachen, vakti snemma á sér at- 4 6. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ hygli fyrir dýralíkneski, sem einkum sýndu ketti, kýr og hesta í hvíld. Dýrin eru mótuð í suð- ræna viði eða stein og umkringd leyndardómum. Ewald Mataré varð hvorki fyrir áhrifum frá né afvegaleidd- ur af expressionismanum, sem fór eins og eldur í sinu um Þýzka- land um þetta leyti. Hann leitaði að og fann sinn eiginn stíl, sem síðar var lýst. sem „töfra-raunveruleiki“. Hann ferðaðist um Norðurlönd og fékk ágæta dóma fyrir ýmsar sýning- ar sínar og loks árið 1932 hlaut liann stöðu, fyrirlesara við Lista- liáskólann í Diisseldorf. Þar sem liann neitaði að gang- ast undir afskipti Hitler-stjórnar- / Þar að auki bjó liann til á vinnustofu sinni tréskurðarmynd- ir, veðurvita og medalíur, sem bera hugmyndaauðgi hans glæsi- legt vitni. Myndin er af styttunni „Fön- ix“, sem er skreytt útflúri. Hún var í öndvegi á sýningu á utan- hússlist í Hamborg 1953, en prýð- ir nú stóra skrifstofubyggingu. innar af málefnum listarinnar varð hann að segja lausri stöð- unni 1933. Næstu árin bjó hann í kyrrþey og helgaði sig einkum írúarlegri list. Það var ekki fyrr en 1945, að hann varð háskólakennari i Diiss- eldorf og eftir styrjöldina hefur liann skapað mörg framúrskar- andi listaverk.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.