Alþýðublaðið - 06.04.1962, Page 3
er nú a
ALGEIRSBORG og PARIS,
5. apríl.
Margt þykir benda til þess, að
þolinmæði Serkja í Alsír sé nii á
þrotum, en til þessa þykja þeir
hafa sýnt aðdáunarverða stillingu
þrátt fyrir ögranir og liryðjuverk
OAS-samtakanna. Þeir hafa liing-
að til hlýtt tilmælum útlagastjórn
arinnar um að sýna þolinmæði og
stillingu. En í Vestur-Alsír lögðu
þeir í dag til atlögu gegn evrópsk-
um mönnum eftir morðárás OAS-
samtakanna.
í dag voru tveir Serkir felldir í
Algeirsborg og þrír í Óran. OAS-
menn skutu á serkneska vegfar-
endur, og enn voru framin banka-
rán, bæði í Algeirsborg og Óran.
Alls munu OAS-menn hafa rænt
100 milljón frönkum í þessum
tveimur bankaránum, og hefur nú
flestum bönkum í Algeirsborg
verða lokað. Frá áramótum hafa
OAS-menn rænt sem svarar344
millj. ísl. kr. úr bönkum. Enginn
bankaræningi hefur verið hand-
tekinn.
í Óran hafa 250 evrópskir menn
flúið borgina síðan flugherinn tók
að sér stjórnina á flugvelli borg-
arinnar, þar sem nú er hafður
strangur hervörður og flutt til
Frakklands. Áður þorði fólk ekki
að flytja burt úr borginni af ótta
við OAS, sem gáfu út sérstök vega
bréf handa þeim sem vildu flytja-
úr landi.
í bænum Sidi Bel Abbes í Vest-
ur-Alsír skutu OAS-menn á Serki
á markaðstorgi bæjarin's í dag.
OAS-mennirnir skutu úr biffeið-
um sínum, og Sidi Bel Abbes er
ein höfuðbækistöð frönsku útlend-1
ingahersveitarinnar.
Serkirnir trylltust og þutu þús
undum saman til hverfis evr-
ópskra manna í bænum. Þeir vörp
MUIMMWiWmMMMMUUWl
ÞETTA er vélbáturinn Vörð
ur í björtu báli út af Garð-
skaga síðdegis í gær. Áhöfn
in varð að forða sér í gúm-
bátinn, en var síðar tekin
um borð í Reyú frá Akra-
nesi Vörður s;ibk um klukk
an 11.15 í gæ,-kvöliíi eftir
miklar tilraunir til að slökkva
eldinn. Varnarliðið tók mynd
ina úr flugvél. — Sjá frétt
á forsíðu.
uðu sprengjum á veitingahús, þar
sem m. a. margir hermenn úr út-
lendingahersveitinni voru saman-
komnir, og beittu lagvopnum. —
OAS-menn vilja einmitt æsa
Sérki gegn Frökkum, svo að OAS
geti barist með franska hernum
gegn Serkjum.
Frakkar fagna friði I Alsír, en
fögnuður þeirra er bundinn trega
vegna þess, að þessi friður þýðir
án efa endalok frönsku útlcndinga
liersveitarinnar, segir í Parísar-
frétt frá UPI.
í'egar Alsírvandamálið er út-
kljáð verður útlcndingahersveitin
send burt frá Norður-Afríku og
dreift um hinar fáu nýlendur, sem
Frakkar eiga enn eftir. Hersveit-
in getur ekki snúið aftur til
Frakklands vegna þess, að 131
árs gamall sáttmáli bannar það,
en þótt sáttmáli þessi væri ekki
til væri liarla ósennilegt að de
Gaulle leyfði hersveitinni að vera
í Frakklandi sjálfu vegna þátts
hennar í hinni mislieppnuðu bylt-
ingu í Alsír 1960. Hersveitinni var
elcki leyft að taka þátt í hergöng-
unni á vopnalilésdaginn í fyrsta
sinn. En það sem herniönnum út-
lendingaliersveitarinnar sveið sár
ast var, að þeim var bannað að
4
Framhald á 14. síðu
DAMASKUS, 5. apríl:
ZAHREDDIN, yfirmaður sýr-
lenzka hersins sagði í Damaskus í
dag, að liann mundi skipa nýja
stjórn herforingja til þess að
leysa vandamál Sýrlands. Ilann
sagði, að allir hópar hermanna I
landinu styddu mennina í þessari
nefnd, en hún ætti m. a. að atliuga
möguleikana á því, að Sýrland
sameinist frjálsum Arabaríkjum.
Tilkynnt var í Damaskus í dag,
að aðeins tveir liðsforingjar hefðu
fallið í uppreisninni í Aleppo í
Norður-Sýrlandi í þessari viku.
Það væri rangt, að margir hefðu
fallið eða særzt í Aleppo. Það
hefðu verið egypzkar útvarpsstöðv
ar, sem aöallega hefðu flutt þessa
frétt, en tilgangurinn hefði aug-
ljóslega veriö sá, að fá Sýrlend-
iinga til þess að berjast gegn Sýr-
lendingum.
Forsætisráðherra Jórdaníu sagði
í Amman í dag, að Jórdanir hétu
Sýrlendingum því, að berjast við
hlið þeirra gegn utanaðkomandi á-
rás. Jórdanir hefðu ekkert hafzt
að meðan á uppreisninni í Aleppo
stóð, enda vildu þeir ekki hlutast
til um málefni Sýrlands.
Forsætisráðherrann kvaðst ætla,
að valdhafarnir í Kaíró hefðu á
einhvern hátt komið vandræðun-
um af stað í Aleppo.
Frá New York berast þær frétt
ir, að fulltrúi Frakka í öryggisráði
SÞ telji sig ekld hafa nægar sann
anir fyrir því hvort það hafa ver-
ið ísraelsmenn eða Sýrlendingar
sem hafi átt upptökin að landa-
mæraskærunum við Galílcuvatn I
fyrra mánuði. Deiluaðilar hafa
sakað hvorn annan um að eiga
upptökin, en Frakkar telja, að báð
ir séu sekir.
Háttsettur fulltrúi SÞ skýrði
öryggisráðinu frá því, að ekki
lægju neinar sannanir fyrir því,
að ísraelsmenn hafi verið árásar-
aðilinn, ísraelsmenn kváðust áður
hafa gert árás á virki Sýrlendinga,
en þaðan hefði verið skotið ó ís-
raelska fiskimenn á Galíleuvatni.
Nilson for-
sfjóri S.A.S.
Karl Nilson, undirforstjóri
skándínavíska flugfélags-
ins SAS hefur verið skipað-
ur forstjóri félagsins. Hann
var um margra ára skeið for
stjóri skrifstofu SAS í Ind-
landi,
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 6. apríl 1962 3