Alþýðublaðið - 18.04.1962, Page 1
43. árg. — ÞriSjudagur 18. apríl 1962 — 91. tbl.
Friösamleg
þinglok
» lauk í gær störfum
jínum, nema hvað þinglausnir fara
?ram í dag. Afgreidd voru sí&uaia
máiin, þar á meðal lög um samn-
ingsrétt opinberra starfsmanna, líf-
eyrissjóð sjómanna og skráningu
sjómanna. Voru reknir hnútar á
deiluatriði í öllum málum, sem ætl
u ar áð Ijúka, og tókst það með
friði og spekt.
Að loknum störfum kvöddu deild
arforsetar þingmenn, en forustu-
nenn stjórnarandstöðunnar. — í
neðri deild þakkaði Einar Olgeirs-
son „hinni ungu og fögru konu“,
sem þar hefur verið forseti fyrir
réttláta og röggsama stjóm deild-
arinnar. Þinglausnir verða í sam-
einuðu þingi í dag.
Snævarr for-
seti Þjóðvina-
félags
AÐALFUNDUR Hins íslenzka
þjóðvinafélags var haldinn á Al-
þingi í gær, og var Ármann Snæ-
varr háskólarektor kjörinn forseti
þess, en Bjarni magister Vilhjálms
son varaforseti.
Dr. Trausti Einarsson flutti
skýrslu um störf félagsins, og
minnzt var hins látna formanns
þess, Þorkels Jóhannessonar rekt-
ors. í stjórn voru kjörnir auk fyrr-
nefndra þeir Halldór Kiljan Lax-
ness, Matthias Jóhannessen og
Gísli Guðmundsson .Endurskoðend.
ur voru kjörnir Jóhann Hafstein
og Stefán Pjetursson.
Vesturbæmgar
EINS og við sögðum frá um
daginn hlaut bandaríska kvik-
myndin „Vesturbæjarsaga“
hvorki meira né minna en 19
Oscarverðlaun. Myndin sýnir
viSb'rögS tveggja verðlauna-
hafa, kossar og gleðióp.
NEÐRI DEILD Alþingis sam-
þykkti í gærdag frumvarpið um
samningsrétt opinberra starfs-
manna, og afgreiddi það til ríkis-
stjórnarinnar sem lög. Þar með
hefur samningsréttur hinna opin-
beru stafrsinanna verið lögfestur
og samtök þeirra liafa fengið veiga
mikla réttarbót. Er þetta mesti sig-
ur, sem samtökin hafa unnið til
þessa.
Samkvæmt lögum liefjast samn-
ingaviðræður milli BSRB og full-
trúa f jármálaráðuneytisins 1. ágúst
í sumar ,og cr búizt við að þær taki
nokkurn tíma. Náist ekki samkomu
Iag niilli aðila, gengur málið sam-
kvæmt hinum nýju lögum til sátta-
semjara og síðan til kjaradóms,
sem úrskurðar, ef allt annað þrýt-
ur.
Gunnar Thoroddsen fjármála-
ráðherra sagði á þingi í gær, að eitt,
höfuðverkefni í samningunum!
mundi verða að fjalla um, hvernig |
skipa skuli liinum ýmsu störfum'
í flolcka og livert launahlutfaB *
flokkanna eigi aö verða í næsíu ■ *
EKKI LÍTIÐ KÖLD, ÞESSI
NÆST þegar þér verður kalt, skaltu hugsa til stúlkunnar
að tarna. Þetta er reyndar tómstundagaman liennar, sem mynd
in sýnir, þ. e. að bíða þangað til hann er kominn á með
almirilegu frosti, yelja sér snoturt vatn undir ís, höggva gat á
ísinn — og kafa eftir fiskum. Sú ískalda heitir Judy og er
Kanadamær. Og hún heldur því fram, að þetta sé skemmtileg
ur leikur!
fraintið. Er almennt gert ráð fyrir,
að á þessu sviði verði heildar-
endurskoðun. Þótt ráðhefra liafi
ekki sagt það berum orðum, er al-
mennt búizt við, að hinir nýju
samningar, hinir fyrstu í sögu þjóð
arinnar milli opinberra starfs-
manna og ríkisins, leiði til kjara-
bóta fyrir starfsmennina.
Síðustu daga hafa ýmsir hópar
opinberra starfsmanna, sérstaklega
hinir langskólagengnu, gert kröfur
um Icaupiiækkanir eða sagt upp
störfum með nokkurra iriánaða fyr-
ii-vara. Meðal þeirra eru sjúkra-
húsalæknar, fiskifræðingar
ýmsir fleiri.
Segja má, að samstaöa hafi ver-
ið á Alþingi um afgreiðslu frum-
varpsins um samningsréttinn. Lýð-
ræðisflokkarnir þrír stóðu alveg
að málinu, þar sem það var nið-
urstaða af samræðum milli ríkisins
og BSRB. Hins vegar lögðu kom-
múnistar fram víðtækar breytinga-
tillögur, sem hefðu gersamlega
umturnað málinu, ef þær liefðu
hlotið samþykki þingsins. Þegar
þær liöfðu verið felldar, sátu þeir
hjá við endanlega afgreiðslu máls-
VEGIR eru nú víðast hvar orðnir
færir bílum á ný eftir skemmdir
þær, er víða urðu á vegum af völd
um flóðanna um helgina. Aðeins
á éinum stað eru vegir enn ófærir
vegna flóða, en það er við Álf„ta-
vatn.
Að sögn Vegamálaskrifstofunnar
var vegurinn upp að Sogi enn í gær
enda lá hann undir vatni á nokkru
algerlega ófær með Álftavatni,
svæði. Enn er mikið vatn í Ölfusá-
en hún flæðir ekki lengur yfir
bakka sína.
Mikið tjón varð á veginum með
Hólmsá upp að Lækjarbotnum, en
nú er að mestu lokið viðgerðum á
honum, nema við Lögbergsbrekk-
una, þar sem vegurinn fór mjög
illa.
Allir vegir eru annars færir
sunnanlands, nema hvað vegir eru
illfærir ofarlega í Biskupstungum
vegna bleytu en frost er nú að fara
úr jörðu. Norðurlandsvegur er
blautur af sömu ástæðum og verst
ur í Skagafirði. Leiðin fyrir Hval-
fjörð er sæmileg en nokkrar bleytu
er vart á Snæfellsnesveginum.
Búið er að opna veginn inn Gils-
fjörð, en hann hefur verið lokaður
undanfarna mánuði vegna snjóa.
Hefur vegurinn nú verið mokaður
og er Vesturlandsvegur því fær
inn í Króksfjörð.