Alþýðublaðið - 08.06.1962, Side 10
Judo-deild Ármanns
gefur út Judo-blað
STJÓRN Judo-deildar Ármanns
hefur ákveðið að hefja útgáfu
blaðs, sem fiytur fróðleik og frétt
ir um íþróttina og er fyrsta tölu-
blað komið út. Judo er af’ mörg-
um misskilin íþrótt. Henni er rugl-
að saman við japanskar glímur,
sem eru hættulegar. Blaðið á því
einnig að leiðrétta rangar skoð-
lUwtwmmwMMMW
34 á sjúkra-
lista í Chile
Eins og getið hefur verið
um hér á síðunni hafa marg-
ir orðiff fyrir meiðslum á
heimsmeistarakeppninni í
Chile eða alls 34 í hinum 16
liffum. Spánverjar hafa flesta
á sjúkralista effa alls sex.
Meffal þcirra sem meiffst
hafa eru Suarez, del Sol og
Martinez.
Rússinn Dubinski fótbrotn-
affi, en affrir hafa meiffst
illa, t. d. Argentínumaffurinn
Bellen, meff tvö brotin rif-
bein, ítalinn Maschio er nef
brotinn og svo mætti lengi
telja. Sá, sem sparkaði í
Rússann Dubinski, sem fót-
brotnaði, Júgóslafinn Mujics,
hefur fengiff sína refsingu.
Hann var strax sendur heim
til Júgóslavíu.
nMWMMWMMMtHIMMWHM
Pelé verður
frá í 10 daga
Knattspyrnusnillingurinn Pele,
sem meiddist í leiknum gegn Tékk
um verður að hvíla í 10 daga Brazi
líumenn eru mjög svartsýnir út
af þessu og segjast ekki sigra í
HM án hans eða svo segir félagi
hans Didi.
anir á Judo. Fyrirmynd blaðsins
er blað Budokwai, London. Það-
an er og mun ýmis konar efni
fengið. Fyrirhugað er, að blaðið
standi undir sér fjárhagslega, en
ákveðið er að fleiri blöð komi
út.
Af efni þessa blaðs, sem nú er
komið út má nefna: Almennar
upplýsingar um Judo, Leiðbein-
ingar fyrir byrjendur, grein eftir
Sigurð Jóhannesson, heimsókn í
Budokwai, Judo í nokkrum iönd
um, heimsmeistaramót í Judo o.fl.
Blaðið er prýtt fjölda mynda og
er til sölu í bókaverzlunum.
MIKIÐ er nú um frjálsíþrótta-
mót í Evrópu og víffa annars
staffar og árangur mjög góður.
Hér munum viff nefna beztu af-
rek á nokkrum mótum.
Frakkar hafa náff gófftmi ár-
angri, Jazy sigraði í 2000 m. á
móti í Mautes-de-Jolle á tíman-
um 5:12,4, en Bogey varff annar
á 5:17,8. Dugarreau stökk 2,03 í
hástökki. Sevestre kastaði spjóti
75,40.
Fyrsti Asíu-búinn hefur varp-
aff kúlunni lengra en 17 metra,
það gerffi Kínverjinn Bo Yung-
heien á móti í Peking, 17,09.
ARlCA, 7. júní (NTB-AFP)
AÐEINS 8 til 9 þúsund áhorfend-
ur sáu olympíumeistarana frá Júgó
slavíu gjörsigra Kolumbíumenn
hér í kvöld með 5 mörkum gegn
engu. Kolumbíuliðið byrjaði leik-
inn frísklega en smám saman náði
Júgóslavía betri og betri tökum á
spilinu og undir lokin var um al-
- -♦gjöra sýningu að ræða. Þar með
Fram-Valur
ieika í kvöld
í kvöld heldur íslandsmótið á-
áfram í I. deild og þá mætast Val-
ur og Fram. Má vafalaust búast
við mjög skemmtilegum leik og
tvísýnum, því að mikið er í húfi
fyrir bæði liðin.
Pelé leikur enn — en ekki knattspyrnu heldur á grammófóninn.
| Myndin er tekin á sjúkrahúsinu í grennd viff Vina del Mar.
leru Júgóslavar öruggir um að
■verða áfram í keppninni.
Rancagua 7. júní (NTB-AFP)
ENGLENDINGUM tókst með
jnaumindum að tryggja sér annað
' sætið í ,,Rancagua-riðlinum“ með
því að ná jafntefli í leiknum gegn
Búlgaríu í kvöld 0-0. Bæði Argen-
tína og England eru með 3 stig, en
markahlutfall Englands er aðeins
betra.
Argentínumenn hvöttu mjög
búlgarska liðiö, en það dugði ekki.
þrátt fyrir góð marktækifæri tókst
hvorugu liðinu að skora og gr°iiu
legt var að Englendingar lögðu á
það mikla áherzlu að hljóta a.m.k.
annað stigið. Beztir í enska liðinu
voru Armfield og Flowers.
Santiago 7. júní (NTM-AFP)
Leikur ítala og Svisslendinga bar
þess greinilega merki, að hvorugt
lið lék af miklum áhuga, þar sem
hvórugt hafði möguleika til að
komast áfram. Sigur ítala var sann
gjarn og Svissneska liðið var með
danfasta móti. Mora og Bulgarelli
skoruðu mörkin.
Vina deí Mar 7. júní (NTB-AFP)
MEXÍCÓ tryggði sér fyrstu stig
in í HM með því að sigra „sensat-
ions-liðið“ Tékkóslóvakíu í kvöld
með 3 mörkum gegn 1. í hléi var
staðan 2-1. Tékkár skoruðu mark
sitt er aðeins 30 sek. voru af leik,
en svo ekki söguna meir. Tékkar
tóku lífinu greinilega með ró, því
að engu máli skipti fyrir þá um
áframhald liðsins í keppninni, þó
að liðið tapaði leiknum. Tékkar
léku með fulit lið að undanskildum
einum manni. Næstu leikir HM
fara fram 10. júní, en undanúrslit
verða 13. júní.
„Heimslið" að
íoknum 2 um
ferðum í Chile
Eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar í Chile völdu í-
þróttablaðamenn svokallað
heimsliff. Það var skipaff sem
hér segir :
Carbajal, Mexícó
Armfield, England
Maldini, Ítalíu
Schnellinger, V-Þ
Sainz, Argentínu
Netto, Sovét
Stibranyi, Tékkóslóvakíu
Ivanov, Sovét
Pele, Brazilíu
Rivera, Ítalíu — og
Sanchez, Chile.
Sennilega á þetta eftir
breytast, þegar líður á keppn
ina.
*
MHmiMMMMWMHHMMW
Ritstjóri: 0RN EiÐSSON
'l 10 S. júní 1962 4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ