Alþýðublaðið - 28.06.1962, Side 13
UNICEF — Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna er ein þeirra
stofnana, sem mikilvægustu hlut-
verki gegnir allra þeirra stofnana,
sem settar hafa verið á fót að
tilhlutan SÞ.
Verkefni hennar eru ótæmandi
og verksvið hennar — öll veröld-
in, en þó einkum þær þjóðir,
sein skemmst eru komnar á veg
þróunar og mannsæmandi lífs.
Við, sem getum veitt börnum
okkar skélagöngu, nægan mat og
gott húsaskjól, gerum okkur tæp-
ast ljóst hvað við er að eiga fyrir
þessa stofnun.
Mikill meirilrluti allra þeirra-
barna í heiminum, sem að réttu
lagi ætti að vera í skóla eða þá
aðeins við það að leika sér eðli-
lega og frjálst eins og barna e;
siður og börn hafa þörf á, er bund
inn við vinnu tímum saman hvern
dag, allt frá því þau eru G—8 ára
gömul og jafnvel yngri.
Víöa um heim eru börn við
vinnu, sem aunars siaðar þykir
hæfileg fullorðnum. Við getum
hitt fyrir börn, sem vinna
steinhögg, í námum, í verksmiðj-
um, á akrinum eða í skrifstofun-
um.
Ótrúlegt magn þeirrar vöru,
sem seld er á heimsmarkaðinum
gæti sannelikans vegna sem bezt
borið stimpilinn „made by childr-
en“ (unnið af börnum).
Sú staðreynd er einn af smán-
arblettum þeim, sem erfiðast er
að þvo af mannkyninu.
Unicef hefur safnað skýrslum
nm þetta efni frá allri heims-
byggðinni og stofnunin reynir
síðan eins og hún getur og vinna
gegn þessari þróun og milda hörð
ustu agnúana eins og henni er
unnt með því að takmarkaða fjár-
magni, sem hún hefur yfir að
ráða.
í samvinnu við aðrar stofnanir
SÞ leggur hún á ráðin um livern
ig bæta megi kjör fjölskyldna
þeirra sem versta aðstöðu hafa
þannig að börnin fái að njóta sem
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. júní 1962
. U lii.íi