Alþýðublaðið - 28.06.1962, Blaðsíða 16
✓
FENGU 4800
MÁL í GÆR
Siglufirði í gær.
ÁTTA bátar fengu 4800 mál í
dag á vestursvæðinu. Aflahæstur
var Heiga RE með 1300. Margir
bátar voru tneð 6—800 tunnur.
Þessir bátar voru búnir að fá
«fla, er við höfðum samband vlð
eíldarleitina kl. 10 í kvöld:
Helga RE 1300, Ásgeir RE 500,
«elga Bj. HU 600, Guðbjörg ÍS
300, Reynir AK 700, Guðbjartur
Kristjáns. 800, Birgir SU 600, Rán
fS 600.
Ægir hefur nú fundið meiri síld.
Norski flotinn er að færa sig vestur
eftir.
Raufarhöfn, 27. júní.
í GÆRKVÖLM voru saltaðar
hér eitt til tvö hundruð tunnur á
söltunarstöðinnl Óðinn h.f. Sild
þessi var úr Hrefnu frá Akureyri.
í dag kom Gullfaxi NK hingað
með 70—100 tunnur, sem fóru :
frystingu.
Mikil óánægja ríkir nú hér vegna
endurvarpsstöðvarinnar, sem Rík-
isútarpið lét setja hér upp í vor.
Stöðin bilaði skömmu fyrir hvíta-
sunnu, og er ekki hægt að segja
að fólk hér hafi haft almennileg
not. af útvarpi síðan.
MENN eru ekki á einu máli um,
hvað liðsflutningár kínverskra
kommúnista í Fukian-héraði
boða. Hugsa þeir sér nú rétt
einu sinni til hreyfings vegna
Formósu? Samkvæmt einni til-
gátu er þó hér frekar um var-
úðarráðstöfun þeirra að ræða
gagnvart sínu eigin fólki. Setu-
Iið þeirra í Fukien teiur sig
ótryggt og óttast jafnvel upp-
reisn almúgans vegna hungurs
neyðar. Myndin: Nýting vinnu-
aflsins undir stjórn kommún-
ista.
ENGIN SÍLD TIL
SEYÐISFJARÐAR
Seyðisfirði, 27. júní.
ENGIN síld hefur enn þá borizt
hingað, en unnið er að undirbún-
ingi síldarmóttöku af fullúm
krafti.
EIGENDUR hálflendunnar að
Laxnesi í Mosfellssveit hafa nú
selt nokkurn hluta eignar sinnar
undir bústaði, ýmist sumarbústaði
eða heils árs bústaði. Margir hafa
verið um boðið að kaupa þarna
lóð og ber margt til. Þarna eru fög-
ur húsastæði, ýmsum, er eiga bif-
reið, finnst staðurinn í mátulegri
fjarlægð frá höfuðborginni, og loks
fást þarna rúmgóðar lóðir, sem
margir vilja gefa mikið fyrir. Síð-
ast en ef til vill ekki sízt er sótzt
eftir lóðunum vegna þess að þarna
býr skáldajöfurinn Laxness, sem
reist sér Glúfrastein í Laxness-
landi fyrir nokkrum árum til þess
að geta verið í friði.
Unnið er að skipulagningu á
þessu svæði, en vitað er, að þarna
verður rúm fyrir allmörg hús.
Nokkur styrr hefur staðið um það,
hverjum ætti að selja, því að Mos-
fellssveitarmenn vilja ógjarnan fá
hvern sem er í nálægð við sig. Það
hefur viljað við brenna um sum-
arbústaðalönd, að þar sem upp
átti að rísa fyrirmyndarbyggð hef-
ur sprottið upp fjöldi bústaða, þar
sem eigendurnir hirða lítt um út-
ganginn og verða þannig viðkom-
andi sveitarfélagi til byrðar og ang
urs. Þetta vilja Mosfellinar ógjarn-
an fá yfir sig, og hefur því verið
mikið um það rætt þar efra að fá
fasta búendur í þau hús, sem þarna
verða reist.
Ef þarna rís upp nýtt íbúðar-
Innvegin mjólk
130 þús. lítrar
á Selfossi
Selfossi, 27, júní
INNVEGIN mjólk hjá mjólkurbú-
inu komst upp í 130 þús. og 500
lítra (134 þús. og 400 kg.) í gær.
í fyrra var mjólkin mest 25.
júní, 120 þús. litrar.
Um 38 þús. 1. fara til neyzlu.
Úr mjólkinni er unnið mjólkur-
duft, ostar, skyr og smjör.
hverfi, fer að þrengjast um þá, sem
flúðu þangað til að fá að vera í
friði.
Flytja þarf
inn áhurð
SÉRFRÆÐINGUR sá, sem kom
frá Evrópu til að rannsaka bilun
þá, sem varð í Áburðarverksmiðj-
unni í s. 1. viku, hefur nú lokið
athugun sinni. Búa þarf til nýjar
spólur erlendis fyrir liinn bilaða
straumbreyti, og mun það taka um
6 vikur.
Raforkumálastjórinn hefur hins
vegar séð sér fært að lána Áburðar
verksmiðjunni spenni, sem að vísu
er öðru vísi og minni en sá, sem
bilaði, og er nú unnið að sérstök-
um tengingum hans við rafkerfi
verksmiðjunnar, og standa vonir
til, að unnt verði að liefja fram-
leiðslu í verksmiðjunni aftur með
sem næst hálfum afköstum í lok
þessarar viku og vinna þannig, þar
til viðgerð hefur farið fram á hin-
um bilaða spenni.
Þá hefur Áburðarverksmiðjarr
fest kaup á nokkru magni köfnun-
arefnisáburði erlendis, sem mu 1
koma til landsins fyrir miðjan júlí,
til að tryggja ,að ekki komi til, að
slíkan áburð skorti á þessu vori,
enda þótt verksmiðjan sé þegar
búin að selja meira magn köfnun-
arefnisáburðar en notendur höfð i
pantað til notkunar á þessu vori.
Með því að mjög er gengið á
kjarna-birgðir þær, sem fyrir hendi
voru, þegar bilunin varð í s. 1.
viku ,mun kaupendum, sem þarfn-
ast kjarna, nauðsynlegt að hafa
samband við verksmiðjuna á næstu
dögum, áður en þeir senda bíla til
að sækja kjarna. Engar takmarkau
ir eru hins vegar á afgreiðslu ann-
arra áburðartegunda.
(Fréttatilkynning frá
Áburðarverksmiðjunni h.f.)
HLERAÐ
Tékkar unnu 14-1
★ TÉKKNESKA liðið, sem hér var
á döguuum lék tvo leiki í Dan-
■nörku á leiðinni heim. — í Rand-
ers sigruðu þeir úrval með 5:0. í
liinum le'!:nuni unnu þeir 14:1.
Stöð þessi er til húsa á póst-
húsinu hér. Það sem verra er í
þessu máli er það, að hér virðist
ekki vera neinn, sem ber ábyrgð
á stöðinni, eða sem telur sig hafa
nokkrum skyldum varðandi hana
að gegna. Fólk hér er afar óánægt
með þetta ástand og vona menn að
úr þessu rætist innan skamms.
— G. Þ. Á.
Bátar, sem voru á leið norður í
dag fundu töluverða síld í Seyðis-
fjarðardýpi og einnig út af Digra-
nesi og Héraðsflóa. Síldin var á
áttatíu til hundrað faðma dýpi og
bátarnir áttu ekkert við hana vegna
þess hve djúpt hún stóð.
Hér fyrir utan er nú kominn
talsverður strekkingur og þó
nokkur sjór. G. B.
Ef til vill vex mjólkin eitthvað
ennþá. í vor óx mjólkin ekki eins
fljótt og undanfarin ár vegna kuld
anna.
Einstaka bændur eru farnir að
slá. Vegna vorkuldanna kemur ekki
eins vel upp í görðum og áður. Af
sömu ástæðu hefur rúningur sauð-
fjár verið með seinna móti.
J. K.
Blaðið liefur hlerað
Að félagið, sem Þórólfur Beck
leikur með í Skotlandi (St.
Mirren), láti tryggja hann fyr-
ir 15 þúsund sterlingspund f
hverjum leik, sem hann leik-
ur hér.
N