Alþýðublaðið - 21.07.1962, Síða 2

Alþýðublaðið - 21.07.1962, Síða 2
fetjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AÖstoðarritstjóri: örgyin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími J906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu |l0. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- í andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannessom Hvað vilja Þingeyingar? ) ÞAÐ voru nýlega haldnir tveir athyglisverðir fundir fyrir norðan. Fyrri fundurinn var um orkumál Norðurlands, til þess haldinn að fylgja eftir kröfum Norðlend- inga um stórvirkjun við Dettifoss og alúminíum- iðnað þar í nágrenni. Enda þótt sérfróðir menn gæfu í skyn, að tormerki ryæru á slíkum fram- kvæmdum í næstu framtíð, ivildu fundarmenn ekki gefast upp, heldur fylgdu kröfum sínum eft- ir. Þarna voru m. a. mættir ýmsir Þingeyingar og stýrði einn þeirra fundinum. Síðari fundurinn var haldinn fyrir nokkrum dögum á Laugum að tilhlutan Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga og fjallaði um Efnahagsbanda •lag Evrópu. Mættur var norskur prófessor og tal- aði. Ekki var mál hans þýTtt, heldur þótti nóg að tfundarmenn fengju „endursögn£i af ræðunni. Eftir okkrar spumingar og eina ræðu var samþykkt, að mótmæla aðild íslands að efnahagsbandalaginu rvegna smæðar íslands, vanþróaðra atvinnuhátta og af fleiri ástæðum. Var skorað á samtök um land aflt að hefja virka baráttu gegn þátttöku í Efna- hagsbandalaginu. Ekki getur Alþýðublaðið 'fullyrt, hvort sömu menn hafi setið báða þessa fundi. Sé svo, hafa þeir annað hvort lítið hugsað um þau mál, sem þeir tala mest um, eða gert sig seka um ljótan tví- fikinnung. Þa'ð er vitað mál, að íslendingar geta ekki næstu áratugi reist stóriðju til alúminíumfram- leiðslu af eigin rammleik og þurfa til þess samstarf við aðra og erlent fjármagn í einhverri mynd. Nú er langmestur markaður fyrir alúminíum í Vestur Evrópu, og án sölu þangað, er verksmiðja hér vart hugsanleg. Efnahagsbandalagið hefur ákveðið 9% toll á alúmíníum, svo að slík verksmiðja verður ekki samkeppnisfær, nema íslendingar eigi aðgang að markaði bandalagsins tollalaust að mestu. Til þess þarf ekki fulla aðild að bandalaginu, en ein- hvers konar tengsl, sem tryggja hagsmuni okkar, sérstaklega varðandi fisk, en einnig varðandi næstu skrefin í uppbyggingu iðnaðar, sem hag- nýtir orku landsins. Af þessu verður Ijóst, að Þingeyingar heimta fyrst oíkuver og stóriðju til að umbreyta atvinnu- háttum þjóðarinnar og hagnýta auðlindir lands- iiis. Svo halda þeir annan fund, klappa fyrir úr- drætti úr ræðu prófessors Frisch, og samþykkja að mótmæla öllum aðgerðum til þess að tryggja hagsmuni a,tvinnuveganna og skapa grundvöll fýrir framtíðarvöxt þeirra. 1 Þingeyingar þeir, sem hér eiga hlut að máli (§em er vonandi aðeins brot af íbúum þess ágæta héraðs) verða að átta sig betur og ákveða, hvort. þáeir vilja. Orbsending til viðskipto- manna H AB Dregið verður 10. ágúst næstk. um Taunus-fólksbif- reið að verðmæti kr. 164.000. Gleymið ekki að endurnýja áður en þér farið í sum- arleyfið. Látið ekki HAB úr hendi sleppa ! Happdrætti Alþýðublaðsins HANNES Á HORNINU ★ Þingvallahneykslin endurtekin. ★ Fyrsta sinn tekið föst- um tökum. ★ Blað birtir nafn eins umkomuleysing j a. ★ Einkennilegir verzl- unarhættir. ENX EINU SINNI hefur orðið hneyksli á Þingvöllum. Brjálaður skríll safnaðist þangað á hesta- mannamót eða af tilefni þess til þess eins að drekka frá sér vit ogr koma af stað óeirðum. Annars er rétt að vekja atliygli á því um leið, að samkvæmt frásögnum blaða var hér ekki aðeins um krakkaskamm- ir að ræða frá sjávarsíðunni heldur og fólk úr svcitum og þar á meðal fullorðið bændafólk. Verður sagan um bændurna tvo sem fiuttir voru handjárnaðir til Keykjavíkur eftir- minnileg. AULT þetta ástand veldur manni fremur liryggðar en reiði — og þó hvort tveggja. Það er alveg víst,. að það er mikið að í þjóðlífi okk ar. Það þekkíst váíla þjóðfélágs- legur agi. Fjöldageggjun grýpur um sig og áður en við er litið er komið brjálað ástand. Mér virðist að nú hafi í fyrsta skipti verið beitt aðferðum, sem hefði átt að vera búið að taka upp fyrir löngu. Um 90 manns var flutt í fanga- geymslu til Reykjavikur, þar af um 40 í handjárnum. Og 75 verða ákærðir fyrir óspektir á almanna- færi, siðleysi og skepnuskap. ÉG HEF margsagt það, að ég hef enga trú á því að í þessum efnum komi' nokkuð annað að haldi en harður agi, í raun og veru ætti að „poka“ þennan lýð um sinn og hegningin á að vera það ströng að hún verði eftirminnileg. Vatns- grautarmiskunnsemi í þessum mál um er aðeins t,il þess að skríllinn gengur á lagið. EN í SAMBANDI við þetta vil ég geta um annað. Eitt blaðanna, sem um þessi mál skrifa, lætur sig hafa það, að birta nafn eins v'esalings. Sá liinn sami, sem blað- ið nefnir er tíður gestur í fanga- geymslunni vegna heimilisleysis og drykkjuskapar. Hann varð að víkja vegna aðstreymisins af Þing- völlum. Nafn hans er birt. Engra annarra. Er það vegna þess að hann sé meiri umkomuleysingi en hinir? J. SV. SKRIFAR: „Margt er at- I hugavert við verzlunarháttu á I landi hér, og lítið tillit virðist tek- | ið til kaupandans, en allt miðað við seljandann. Til dæmis eru margar vörur seldar í stórum skömmtum, og verður kaupandinn þannig að taka ákveðið magn, hvort sem hann hefur þörf fyrir það eða ekki, og þótt varan liggi undir skemmdum. Erlendis er unnt að kaupa svo lítið, sem kaupandinn nálega óskar. Hér verður maður t. d. að kaupa 5 kg. af jarðeplum, ef hann vill nokkuð fá. Oft eru jarðeplin skemmd eða mjög féleg og fúkkulykt úr pokanum. ■ ÉG VIL GREINA hér frá einu atviki, er bregður nokkru Ijósi á óviðkunnanlega verzlunarháttu. — Fyrir nokkru kom ég í brauðbúð spurði ég eftir svokölluðum kúm- enbrauðum. Var mér sagt, að að- | eins eitt slíkt brauð væri til frá ' deginum áður. Keypti ég því næst brauðið. En er til átti að taka, leizt þeim, er neyta átti brauðsins, ekki á það og bað mig að skila þvi og fá franskbrauð í stað'nn. Fór ég svo aftur í búðina og bað um að fá að skila því gegn franskbrauði. Tjáði þá afgreiðslumærin mér, að aldrei mætti skila brauðum aftur, líklega af hreinlætis- og heilbrigð- ! isástæðum, og er það : sjálfu sér' ’gott og blessað, þótt raunar stúlk- urnar í þessari búð eins og líklega í fleirum, káfi með berum lúkun- um á brauðunum, áður en kaup- endurnir taka við þeim. . : BAÐ ÉG ÞÁ afgreiðslumeyna að fleygja brauðinu, og tók hún við I því. Nú stóð svo á, að franskbrauð var ekki til í svipinn en sagt var,að það kæmi von bráðar. Fór ég þvf heim, en kom aftúr eftir stund í Framhald á 11. siða. 2 21. júií 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.