Alþýðublaðið - 15.08.1962, Síða 10
RitstjórL ÖRN EiÐSSON
Akureyri sigr-
aði Keflav. 3:2
AKUEEYRI OG KEFLAVÍK
léku á laugardag á Akureyri.
Akureyri: Einar Helgason
Siguróii Sigurðsson, Sigurður
Víglundsson, Guðni Jónsson,
Magnús Jónatansson, Páll Jónsson,
Jakob Jakobsson, Steingrímur
Björnsson, Haukur Jakobsson,
Þormóður Einarsson.
Keflavík: Kjartan Sigurðsson,
Magnús Haraldsson Gísli Ellerup,
Magnús Torfason, Ólafur Markús-
son, Sigurður Albertsson, Páll
Jónsson, Herbert Friðjónsson, Jón
Jóhannsson, Emar Magnússon,
Geirmundur Kristinsson.
Kalt var í veðri og nokkur norð-
an vindur og því varð leikurinn
ekki eins skemmtilegur og hann
annars hefði getað orðið. Ak. kusu
að leika í suður en K að byrja
með knöttinn og endurtekur sig
sú gamla saga er Ak. eru að
verða þekktir fyrir að knötturinn
hafnar í netinu eftir fyrsta upp-
hlaup K. eða nokkrum sek. eftir
að leikurinn hefst. En síðan ná
Ak. yfirtökunum í leiknum og eru
oftast í sókn allan hálfleikinn, á
16. mín. ná þeir fyrsta markinu
er Jakob spyrnir frá miðjum velli
í átt að markinu, Steingrímur
fylgir eftir, markm, hleypur út
úr markinu en truflast af ásókn
Steingríms, svo að knötturinn
lioppar í- netið beint af fótum
Jakobs.
Er 19 mín. eru af lcik bæta svo
*Ak. öðru markinu við, sem hefur
nokkuð sérstakan aðdraganda,
Einar spyrnir frá marki langt fram
knötturinn hoppar innfyrir vörn
K., tveir varnarmenn og Stein-
grímur fylga eftir, markm. hleyp-
ur út úr markinu en Steingrímur
nær að lyfta knettinum yfir mark-
manninn og í netið og höfðu þá
aðeins Einar og Steingr. komið við
knöttinn frá því spyrnt var frá
marki Ak.
Upp úr þessu er nær látlaus
sókn á K. og á 31. mín kemur svj
þriðja markið er Ak. gera eftir
laglegt upphlaup og vel uppbyggt.
Er þar Steingrímur að verki, sem
skorar jarðarspyrnu í hægra horn.
Rétt fyrir hálfleik ná svo K.
sóknarkafla, en tekst ekki að
skapa verulega hættu
í þessum hálfleik fá K á sig
sjö horn, en Ak. ekkert.
í seinni hálfleik jafnast leikur-
inn nokkuð nú hafa K. vindinn
með sér og skapast nokkur góð
tækifæri á báða bóga. Er nokkuð
er liðið á leikinn, fá K. sitt bezta
tækifæri, sem af er leiknum,' ef
1. markið er frátekið. Páll sendir
laglega fyrir úr hornspyrnu
knötturinn gengur til Geirmund-
ar, sem á skot á mark of stuttu
færi, en yfir þverslá. Öðru sinni
fá K. skemmtilegt tækifæri. Ein-
ar spymir frá marki, Jón mið-
herji er staðsettur rétt framan
við vítateig, knötturinn stefnir
beint á höfuð Jóns, sem skallar
í átt að mannlausu markinu, en
rétt yfir. Rétt fyrir leikslok ná
F-auihald á 13. síðu.
Þessi mynd er tekið í viðbragði 400 m. hlaupsins á Meistaramóti ís-
lands. Sigurvegarinn, Grétar Þorsteinsson er á innstu braut.
15. ágúst 1962
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
iþréttaf réttir
frá Skagafirði
ÍSLENZKA landsliðið á- |
| samt fararstjórn við komuna i
I til Reykjavíkur í fyrrakvöld. i
| Þeir eru glaðir en þreyttir i
: eftir erfiða ferð. Velkomnir i
| heim! I
Kvennamót IR
ifer fram í dag
í dag kl. 6 fer fram kvennamót
í frjálsum íþróttum á vegum ÍR
á Melavellinum. Keppt verður í
100 m. hlaupi, hástökki, langstökki
kúluvarpi, kringlukasti og 4X400
m. hlaupi.
Gunnar Sólnes
Ákureyrarmeistari
MEISTARAMÓT Akureyrar í
golfi fór fram um helgina 27. —
29. júlí s. 1, Þátttakendur voru
19, 11 í meistaraflokki og 8 í I.
flokki. Leiknar voru 72 holur.
Eftir 36 holur var Gunnar Kon-
ráðsson beztur í 157 höggum og
Gunnar Sólnes í 158 höggum.
Eftir 45 holur var G. Sólnes í 194
höggum og G. Konr. í 199 höggum.
Eftir 63 holur var G. Sólnes 1
höggi betri en G. Konr., en G.
Framh. á 12. síðu
HOFSÓSI 27. júlí ’62.
SIGRAR Ólafs Guðmundssonar
á Sveinameistaramótinu komu
okkur, er bezt þekktum til, ekki
alveg á óvart, en vöktu engu að
síður mikla ánægju og gleði hér
í Skagafirði.
Hann keppti hér um daginn
ásamt nokkrum drengjum frá Sauð
árkróki, og eftir það mátti o:t
heyra kallað á æfingum þeirra
yngstu á íþróttavellinum „ég
panta vera Óli“.
Tvívegis hafa verið haldin hér
drengja- og kvennamót og beztu
árangrar verið:
KÚLUVARP (drengjakúla):
Ólafur Guðmundsson, T, 12,78 m.
Baldvin Þorsteinsson, H. 12,12 m.
LANGSTÖKK:
Ólafur Guðmundsson, T, 6,13 m.
Gestur Þorsteinsson, H, 5,83 m.
KRINGLUKAST (drengjakr.):
Ólaíur Guðmundsson, T, 34,70 m.
Gestur Þorsteinsson, H, 30,95 m.
HÁSTÖKK:
I Ólafur Guðmundsson, T, 1,65 m.
Gestur Þorsteinsson, H, 1,54 m.
næstu 3 menn stukku 1,50 m.
, Bragi Vilhjálmsson stökk með
sem gestur 1,54 m.
KONUR:
LANGSTÖKK:
Anna S. Guðmundsd., H, 4,15 m.
Helga Friðbjörnsdóttir, H, 3,96 m.
HÁSTÖKK:
Anna S. Guðmundsd., H, 1,30 m.
Skagafjarðarmet.
Dórá Þorsteinsdóttir, H, 1,20 m.
Framh. á 12. síði
jMimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiuiinmimi
í KVÖLD kl. 8,30 heldur |
| íslandsmótið í I. deild áfram |
I á Laugardalsvellinum. Það |
| eru Valur og KR, sem eigast |
\ við. Þar scm þrír af lands- |
i liðsmönnum KR meiddust *
I í (andsiciknum, er vafasamt, i
: að þeir verði með. Þetta get- |
\ ur veikt lið KR, en þess i
i skal einnig gætt að þeir i
| eiga góða varamenn. Leik- i
E urinn verður vafalaust :
i skemmtilegur. :