Alþýðublaðið - 18.08.1962, Side 12
cOu sí er styRésMÁier eior,
I _C wem OER EHD6R MED AT
. nawe h\æm !
...h'AN JE6 BHU6E ET
60£>.r UDCAUDSSTED HERF<iA
,,, AF$TAKL£n BR NQ6tt4~
íUNOc PASLBNUB,,, ,
HV/S OBT BROBTHUS,
BVA TALTB OM*,.
IPtHHCifr'
Ef þetta er húsið, sem Eva talaði um . . . lægðin er nokkuð hæfileg . . . nú er aðeins spurning, hver gabbar hvern . . .
get ég notað ágætan stökkpall héðan — fjar
Fátæki Jói oq
hundur hans
„Jæja, þá get ég í það minnsta staðið við orð
mín“, sagði kóngurinn. Hann benti Jóa að koma
nær. „Hvað langar þig til að eignast, skógarhöggs
maður? Segðu mér hvað það er og þú skalt fá það“.
Kóngsdóttirin horfði á Jóa og hann horfði á
kóngsdótturin í hvíta kjólnum sínum og með gult
hárið. En hann vissi, að hann gat ekki beðið um það,
sem hqnn langaði mest til að fá. Svo að hann sleppti
því úr huga sér og sagði: „Mér þætti mjög vænt
um, ef ég gæti fengið aukadýnu, því það er svo hart
að liggja á gólfinu“.
r „Þú skalt fá beztu dýnu, sem til er í kóngsrík-
inu“, sagði kóngurinn.
„En kóngsdóttirin hrópaði í flýti. „En hann verð
ur að fá eitthvað annað líka, því að á síðasta ári gaf
hann mér líka það, sem mig langaði til að eignast.“
Og hún hélt á Ioft gamla giftingarhringnum.
Kóngurinn, sem alltaf stóð við orð sín, snéri sér
aftur að Jóa og sagði. „Hvað er annað, sem þig lang
ar .til að eignast?“
Jói þrýsti hvolpinum sínum upp að sér, en að
Þú verður að útvega mér nýja barnfóstru mamma, þú fyrsta
er strokin.
sjálfsögðu gat hann ekki heðið um hann, því að
kóngsdóttirin myndi deyja af þrá eftir honum, ef
hann tæki hvolpinn í burtu.
Svo að hann losaði sig líka við slíkar hugsanir
og sagði. „Þegar ég kom hingað, þá skyldi ég eftir
gamla stólinn hans pabba míns, þar sem ég átti
heima. Mér þætti mjög vænt um, ef ég gæti feng
ið stól til að sitja í á kvöldin — ef það kæmi engum
illa“.
12 18- ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sparisjóðsstofnun
i Hveragerði
Á sl. vetri var stofnaður í Hvera-
gerði, Sparisjóður Hveragerðis og
nágrennis af 40 ábyrgðarniönnum.
Verður hann opnaður föstudaginn
17. ágúst í vistlegum húsakynnum
að Breiðumörk 19 Hveragerðir
Ákveðið hefur verið að hann
verði opinn fjórum sinnum í viku,
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 5-6.30 og á laugardögum
kl. 11-12 f.h. fyrst um sinn og fari
þar fram öll venjuleg sparisjóðs
viðskiptii. Tilgangur sjóðsins er
fyrst og fremst, að auka sparnað
yngri sem eldri og greiða íyrir al-
mennum peningaviðskiptum á
staðnum og í nágrenninu.
Stjórn sjóðsins skipa: Stefón J.
Guðmundsson, hreppstjóri, formað
ur, Bragi Einarsson ,, garðyrkju-
maður. og Rögnvaldur Guðjónsson
verkstjóri.
Starfsfólk sjóðsins verður tvennt
fyrst um sinn, Ragnar G. Guðjóns-
son, sparisjóðstjóri, og frú Bryn
hildur Baldvins.
/ Bifröst
Framhald af 4 síðu.
nýju. Voru þá komnir gestir
á fundinn þ. e. Steindór Stein-
dórsson, menntaskólakennari
og frú, Benedikt Gröndal alþm.
og með honum tveir Borgnes-
ingar, þeir Ingi Ingimundarson
og Jóhann Ingimundarson.
Steindór átti sextugsafmæli
þennan dag og í tilefni af því
hyllti fundurinn hann og ósk-
aði eftir því að afmælisbarnið
segði nokkur orð. Varð Stein-
dór við þeirri ósk. Einnig
flutti Benedikt Gröndal stutt
J ávarp. Síðan hófust umræður '
J um drög að nýrri stefnuskrá
fyrir Alþýðuflokldnn.
Sigurður Guðmundsson rit-
ari SUJ flutti framsöguræðu
en síðan tóku margir til máls.
Kom fram mikil gagnrýni á
uppkastið ,og töldu margir að
ekki væri nægilega skýr ákvæði
um ýmis atriði þess. Mikil
ánægja kom þó fram með ýmis
atriði í uppkastinu eins og
ákvæði um það að berjast gegn
einokun og fyrirtækjasamtök-
um og voru allir á einu máli
um það að Alþýðuflokkurinn
ætti að berjast fyrir harðri
löggjöf gegn hringmyndunum.
Að lokum var samþykkt að
kjósa. 5 manna nefnd til þess
að endurskoða uppkastið og
gera við það breytingartillögur.
Þessir voru lcjörnir í nefndina:
Björgvin Guðmundsson, Sig-
urður Guðmundsson, Unnar
Stefánsson, Óttar Yngvason og
Hörður Zóphaniasson. Þá var
samþykkt að FUJ félögin yrðu
að hafa sent SUJ breytingar-
tillögur sínar við uppkastið
fyrir 15. september.
Samhliða umræðunum um
drögin að stefnuskrá flokksins
var nokkuð rætt um skipulag
Alþýðuflokksins. Kom fram
mjög eindreginn vilji fyrir því
að endurskoða þyrfti skipulag
Aiþýðuflokksins.
Fundinum lauk kl. 6 á sunnu-
dag. Ríkti mikil ánægja með
fundinn, og voru menn á einu
máli um það að fundurinn
heíði verið bezti og árangurs-
ríkasti sambandsráðsfundurinn,
i er SUJ hefur haldið.
I