Alþýðublaðið - 02.10.1962, Síða 3
MANNFALL iiYÐARASTAlD
SUÐUR-KASAI
Kramhald af 1. siSn.
Síðdegis i dagr kom aftur til
óeirða, en í gærkvöldi biiiu þrir
menn bana og 20 meiddust í blóð
ugum óeirðum. Heyra mátti
skothljóð á torginu fyrir utan
dómsbygginguna og í miðhluta
bæjarins. Sambandshersveitir
lokuðu svaeðinu og herlögregla
lét til skarar skriða.
Ekki er ljóst, hverjir liafið
hefðu skothriðina, en heyra mátti
nokkur skot, þegar hermenn úr
108. riddaraliðsherdeildiani stigu
út úr bifreiðum í orrustuklæðum,
vopnaðir byssum og byssustingj-
um.
Þessar nýju óeirðir juku
spennuna í bænum, þar sem 5
þús. íbúar búa og álika margir
hermenn og herlögreglumenn.
Fyrr um daginn voru áflog milli
lögreglu og reiðra kynþáttahat-
ara. Á torginu fyrir framan dóms
bygginguna lét. herlögreglan til
skarar skríða gegn mannfjöldan-
um, sem hrópaði og lét öllurn ill-
Sækir
Hasan
fram?
Kaíró, 1. október
NTB—Reuter)
fJTVARPIÐ í Amman í Jórdaníu
segir í kvöld, að Emír al-Hassan,
sem telur sig nú vera Imam, sæki
fram til höfuðborgar Jemen, Sa-
naa, ásamt 10 þús. stríðsmönnum
ættarhöfðingja.
í Washington hefur bandaríska
utanríkisráðuneytið lýst yfir, að
Bandaríkin muni ekki viðurkenna
Jemen-stjórnina nýju í bráð. Mál
þetta verði varla tímabært fyrr en
fyrir liggi nákvæmari upplýsing-
ar um hvað sé á seyði í landinu.
Hinn nýi utanríkisráðherra Je-
mens, Mohuen el-Ayni, hefur rætt
við sendiherra USA í Kaíró, sem
fullvissaði hann um, að Banda-
ríkjamenn hygðu ekki á íhlutun í
Jemen, Nasser forseta og sendi-
fulltrúa Líbanon.
um látum. Lögreglan setti allt
hverfið í herkví.
Mannfjöldinn hafði reynt að
stöðva herflutningabíl t og var
einkum gramur vegna þess, að
negrar voru í herlögreglunni.
Mörgum táragassprengjum var
varpað á mannf jöldann, og þessu
næst lokuðu hersveitirnar öllum
vegum, sem lágu til torgsins.
Fjöldi þeirra, sem hafa verlð
handteknir, eykst sífellt, og sein-
ast voru þeii yfir 200. Hér er
ekki aðcins um unglinga á aldr-
inum 16—20 ára að ræða, heldur
einnig fólk, sem komið er yfir
fimmtugt.
Hinn handtekni herf.höfðingi,
Walker, missti stöðu sína i
hernum, þar sem hann hafði efnt
til stjórnmálanámskeiðs meðal
hermanna þeirra, er lutu hans
stjórn í Vestur-Þýzkalandi og bar
mjög á öfgafullum skoðurum.
Atburður nokkur í Oxford
sýnir, að Walker hegðar sér
eins og hann sé ennþá herfrr-
ingi. Er deild sambandsher-
manna stóð í fylkingu í miðbæn-!
um kannaði hann liðið. Þetta!
gerðist, þegar uppþotin í bænum!
stóðu sem hæst. Er liðsforingjar :
báðu hann að hætta liðskönnun-;
inni neitaði Walker því. Þá
skipuðu Iiðsforingjarnir nokkr-
um hermannanna að umkringja
Walker, og þeir hópúðcst að hon-
um og otuðu að honum byssu-
stingjum. Walker lét þá loksins
undan.
Oxford var eins og bær í um-
sátursástandi í kvöld. Brennd
bílflök lágu á götunum og ó-
daunn var í loftinu af táragas-
sprengjunum. Suðurríkjafáninn,
sem hermenn Suðurríkjanna not
uðu í þrælastríðinu, var í liálfa
stöng, til þess að tákna ósigur-
inn fyrir sambandshersveitunum
og lögreglu, er knúið höfðu
fram skólavist negra í háskólan-
um.
Er hinn 29 ára gamll James
Meredith, sem barðist í Kóreu-
stríðinu, kom rólegur og bros-
andi frá athöfninni í sambandi
við inngöngu hans í skólann var
honum mætt með hrópum og
köllum. í fylgd með honum var
öflugur vörður.
Háskólastarfsmaðurinn Robert
Ellis, veitti Meredith inngöngu í
háskólann. EIlis þessi á það á
hættu, að verða sóttur að lögum,
þar eð fyrr í Meredith-málinu
neitaði hann að hlíta dómsúr-
skurði.
Leopoldville, 1. október
(NTB—Reuter)
MIÐSTJÓRNin í Kongó hefur lýst
yfir neyðarástandi I „Demanta-
ríkinu” í Suður Kasai vegna upp-
reisnar, sem fylgismenn Alberts
Kalonjis, sem kallar sig konung,
hafa enn gert.
Lögreglusveitir í héraðinu, er
styðja Kalonji, hafa gert uppreisn
gegn lögreglusveitum, sem styðja
miðstjórnina, að því er haft er
eftir fulltrúum SÞ.
Miðstjórnin hefur fyrirskipað,
að allar lögreglusveitir og herlög-
regludeildir, skuli hlýðnast skip-
unum Alberts Kagologo, sem hef-
ur verið skipaður sérlegur lög-
reglustjóri.
Enn er ekki Ijóst hve hlutdeild
Alberts Kalonjis er mikil í upp-
reisninni. Hann strauk fyrir stuttu
úr fangelsi nokkru skammt frá
Leopoldville og hélt til höfuðborg-
ar sinnar, Bakwanga.
Samkvæmt góðum heimildum í
Leopoldville liafa kongóskir her-
menn verið sendir flugleiðis til
Luluabourg.
SÞ hefur ekki borizt nein beiðni
um liernaðarlega aðstoð. Yfirmað-
ur SÞ í Kongó, Robert Gardner,
hefur hafnað þeirri beiðni Kalon-
dji, að grípa í taumana, og hefur
bent honum á að semja beint við
Adoula forsætisráðherra.
Fulltrúar SÞ benda á þá mikil
Albert Kalonji
vægu staðreynd, að Kalondji njóti
ekki lengur stuðnings herlögrfeglu
sinnar, og hluti lögreglunn^r í
Suður-Kasai hafi raunverulega
gripið til vopna gegn fyrrverandi
leiðtoga sínum.
BARCELONA: Franco rikis-
leiðtogri var viðstaddur í gær þeg-
ar fólk, sem fórst í flóðunum í
Katalóníu nýlega, var jarðsett.
Franco hefur aldrei verlð eins vel
fagnað í borginni. Um 100 þús.
manns söfnuðust saman fyrir
utan dómkirkjuna, er Franco gekk
upp kirkjutröppurnar.
MMmmMtuHmuutmHti
Gangnamenn
veðurtepptir
EFTIRLEITARMENN úr Biskups-
tungum lágu veðurtepptir eitt
dægur á Hveravöllum í göngum
fyrir um það bil hálfum mánuði.
Stórhríð var þá á fjöllum, en það
er óalgengt en ekki einstakt, að
leitarmenn hreppi svo slæmt veð-
ur og nú var í heiðargöngum, þótt
nú sé allra veðra von.
Gangnamenn héldu áætlun,
Pravda sleppti skömm-
um Kínveria um Tito
þrátt fyrir hríðina, en snjókoma
var á öræfum, er menn héldu til
byggða.
Leitir gengu að öðru leyti vel,
að því er fréttaritari blaðsins, Er-
lendur Gíslason í Dalsmynni, tel-
ur. Hann segir, að menn viti þó al-
mennt ekki enn, hvernig heimtur
hafi verið, því að víða séu menn
ekki famir að farga né búnir að
smala fé sínu í heimahaga og taka
frá til slátrunar.
Íslenzkur
trefja-
plastbátur
ÞESSI bátur er um þessar
mundir til sýnis í forsal ílá-
skólabíós. Báturinn er gerður
úr trefjaplasti, og er framlcidd
ur hjá nýstofnuðu fyrirtæki
norður á Blönduósi, sem nefn
ist Trefjaplast h. f.
Fyrirtækið hefur á að skipa
mjög fullkomnum vélum, sem
gera það kleyft, að nn er hægt
að framleiða tiltölulega fán
hluti af sömu gerð á mjög hag-
stæðu verði, vegna þess að ekki
þarf að nota dýr málmmót, eins
og áður hefur þurft. Trefja-
plast h. f. framleiðir vatnabáta,
báta fyrir sfldarskipin, línu-
balla, fiskkassa o. fl. Einnig
mun það taka að sér að húða
innan skip og skipalestir svo
og fiskhús.
Vatnabáturinn á myntiinni er
tvöfaldur og á ekki að geta
;okkið, hann er 10 fet á lengd
og aðeins 54 kilo á þyngd.
Hann kostar 9.900,00 krónur,
sem er mun lægr.i verð, en á
hliðstæðum bátum, sem keypt-
ir eru erlendis frá.
Moskva, 1. október
(NTB —Reuter)
Ilöfuðmálgagn sovézka kommún-
istaflokksins, Pravda, birti í dag
hluta af tilkynningu. er gefin var
út eftir fund í miðstjórn kínverska
kommúnistaflokksins nýlega, en
þar er ráðizt harðlega á svokall-
aða nýtízku endurskoðunarstefnu
innan kommúnismans.
Blaðið sleppti úr hluta af árás
inni, þar sem Tito Júgóslavíufor-
seti og samstarfsmenn hans eru
sakaðir um að eiga sök á þessum
„hugmyndafræðilega glæp“. Er
það talið stafa af því, að Bresjnev,
forseti Sovétríkjanna, er um þess-
ar mundir í heimsókn í Júgó-
slavíu. í tilefni af því hafa sovézk;
blöð látið í Ijós von um bætt sam-
skipti við þetta „bræðraland".
Frá Peking berast þær fregnir,
að júgóslavneski sendifulltrúinn
hafi yfirgefið diplómatastúku á há-
tíðasvæði þar sem minnzt var 13
ára afmælis Kommúnista-Kína
vegna ruddalegra árása Chen Yi,
utanríkisráðherra á Júgóslava og
Tito forseta. Yfir 400 þús manns
tóku þátt í hátíðahöldum í Pek-
ing í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Utanríkisráðherra Kínverja, —
Chen Yi marskálkur, sagði í sjón-
varpsræðu í dag, að lönd er
byggju við ólík stjórnmálakerfi
ættu að geta lifað hlið við hlið. i
ALÞÝÐUBLAÐia - 2. október 1962. 3