Alþýðublaðið - 17.10.1962, Síða 2
Kitstjórar: Gísli .1 Ástþórrson (áb) og Benedikt Gröndal.—A3sto3arritstjóri
Björgvin Guðmuudsson. — Fréttaritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar:
14 900 — 14 902 — 14 903. uglýsingasxmi: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsið.
— Preutsmiðja Aiþýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald kri. Oa.í-O
á mánuði. 1 lausaíölu kr. 4.00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Frarn-
kvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
FRIONOR
NORSKA STÓRFYRIRTÆKIÐ Frionor, fullu
itafni Norsk Frosenfisk A/L, hélt aðalfund í Osló
fyrir síðustu helgi. Þetta fyrirtæki hefur svipaða
stöðu í Noregi og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hér á landi, og komu fram á aðalfundinum tvö at-
riði, sem hljóta að vekja sérstáka athygli íslend-
inga.
í fyrsta lagi var skýrt frá sölu á frystum fiski
isíðasta ár. Kom í ljós, að sala á Ameríkumarkaði
hafði aukizt um 50% og aukning varð einnig í
Vestur-Evrópu. Hins vegar hefur sala til Austur-
Evrópu minnkað, sérstaklega til Tékkóslóvakíu,
Póllands og Sovétríkjanna. Ástæðan var sögð vera
sú, að þessi lönd hefðu lagt mikla áherzlu á að
knýja fiskverðið niður, og hefði Frinor ekki getað
unað við það.
Hér á Islandi hefur svipað gerzt, og hefur verið
notað til pólitískra árása á ríkisstjórnina. Er hald-
ið fram, að stjórnarflokkarnir séu vísvitandi að
eyðileggja austurmarkaðina. Þessar upplýsingar
nm reynslu Norðmanna sanna, að svo er ekki og
áróður kommúnista um þetta efni er marklaus.
í öðru lagi kom fram í skýrslu stjómar Frionor
afstaða til Efnahagsbandalags Evrópu. Þar segir,
a!ð fyrirhugaðir innflutningstollar sexveldanna á
frystum fiski muni gera.samkeppnisaðstöðu Norð-
manna stórum verri. Síðan segir: „Svo lengi sem
helztu keppinautar okkar á Evrópumarkaðinum
eru í sömu aðstöðu og Norðmenn — við e:gum við
England, Island og Danmörku — mun ástandið
ekki verða eins alvarlegt og það yrði, ef ein þess-
ara þjóða eða þær allar fengju einhver tengsl við
Efnahagsbandalagið, en Norðmenn stæðu utan v:ð
það“.
Þessi afstaða Frionor er nákvæmlega sú sama sem
íslenzk yfirvöld hafa lýst. Ef Noregur, Danmörk
eða England tengjast efnahagsbandalaginu, en ís-
land hefur engin tengsl við það, verður samkeppn
isaðstaða frysta fiskjarins, sem er mesta útflutn-
ingsvara okkar, mjög erfið og þjóðin verður fyrir
miklum skakkaföllum. Þess vegna verða íslend-
ingar, ef Bretar, Danir og Norðmenn tengjast
bandalaginu, að tryggja sér einhvers konar leið
gegnum tollmúrinn til að hafa sömu aðstöðu á
þessum mikla markaði, sem er ennþá þýðingar-
meiri fyrir ísland en Noreg.
ORÐ PÁFANS
£
5 VIÐ TRÚUM ékki á óskeikulleik páfans. í Róm,
en honum mæltist vel á hinu mikla kirkjuþingi,
sem stendur yfir þar syðra er hann sagði: „Oss
finnst vér verða að mótmæla þeim spámönnum böl-
áýninnar, sem eru alltaf að segja fyrir hörmungar,
»étt eins og heimsendir sé framundan“.
HANNES
Á HORNINU
•k Mesta slysahornið.
★ Nauðsyn á götuvitum.
★ Malbikun Fischers-
sunds.
★ Þýzkir gefa þingmönn-
um rauðkrítarblýanta.
HORN LÖNGUHLÍÐAR og
Miklubrautar er að verða hættuleg
asta slysahornið í borginni. Ég veit
ekki hvað veldur, en lielst er ég
á því, að akreinar og gangstígar
Sextugur
, . ✓
Jóhann Olafur
Haraldsson
tónskáld
Heill þér, Jóhann!
Hljóðs mér kveð ég.
Ekki hæfir
að ég þegi.
Margar góðar
og glaðar stundir
þakka vil ég
á þessum degi.
Þú liefur gleði-
gjafi verið,
góðlátlega
glettinn, kíminn.
Meira er þó hitt
að menntagyðja
minnzt við þig hefur:
Þú ert maður hlýminn.
I sönglist þinni
eru sólskinstöfrar,
æska og fegurð,
sem ei ég gleymi, —
einhver dýrð,
sem er yfirjarðnesk,
eitthvert sólblik
frá æðra lieimi.
séu þarna of margbrotnir og í aug
um' ökumanna of flæktir. Þarna
hefur hvert slysið oröið á fætur
öðru og verður að vinda bráðan bug
að því að koma UPP götuvitum
þarna til þess að stjórna umferð-
inni. Langt er nú liðið síðan síðasti
götuvitinn var settur upp, en brýn
nauösyn er á að setja upp vita á
þessum gatnamótum svo og gatna
mótum Hringbrautar og Ilofsvalla-
götu, og raunar víðar.
EKKERT HLÉ má verða á þessu
starfi, því að umferðin fer sífellt
vaxandi. Hún vex svo ört, að maö-
ur finnur það á lengri og lengri
biðum við hringtorg, bæði Mela-
ioi g og Miklatorg svo að tveir
staðir séu nefndir. Bifreiðum
fjölgar mjög ört. Þess vegna verð-
um við að hafa hraðann á.
MIG FURÐAR stórlega á því, að
borgaryfirvöldin skulu hafa ráðist
i það að malbika Fischersund. Ég
sé ekki betur en að það sé alveg
út í hött. Fischersund er ein ó-
merkilegasta gatan í borginni.
Þarna eru fáar verzlanir, að vísu
er þar Ingólfsapótek, en þar með
líka talið. Hitt er athyglisverðara
að að öðru leyti eru aflógaðar kol-
ryðgaðar ruslakistur báðum megin
götunnar svo og ruslaport og alls
konar kumbaldar. Það ætti að rifa
allt þarna í nágrenninu, hleypa
gtimmri jarðýtu á hauginn og
hefja síðan endurbyggingu og þá
má gjaman fara að malbika eða
steypa, en ekki fyrr.
JÓHANNA SKRIFAR: „Nýlega
birtist í Alþýðublaðinu athyglis-
verð grein um stjórn fyrirtækja og
stofnana. Var í grcinni með skýr-
um rökum bent á, hversu mikil-
vægt það er, ekki aðeins fyrir við
komandi fyrirtæki eða ítofnun, að
þar ríki stjórnsemi, festa regia
og liagsýni og að sparnaðar sé
gætt í hvívetna, heldur og ekki
síður fyrir alla þjóðina.
VIÐ ÞEKKJUM ÖLL dæmin um
óskabörn, sem urðu að vandræða-
börnum. Eins er það með mörg
fyrirtæki og stofnanir, sem eru
í eigu ríkisins, félaga, einstaklinga
/
eða bæjar- og sveitarfélaga. Slíkar
greinar birtast of sjaldan. Of lítið
er gert af því að benda á allt
sukkið og reiðuleysið, enda þótt
við — þjóðin — borgum það á
einn eða annan hátt.
FJÁRLÖGIN fyrir 1963 hafa ver
ið lögð fyrir alþingi. Útgjöldin eru
komin yfir 2000.000.000 — tvö þús
und milljónir króna, — að vísu
verðlitlar krónur, en við höfum
■ekki aðrar og verðum því að
reikna með þeim. Ef hægt væri
að spara eina af þúsund væru það
2 milljónir en ein af hundraði 20
milljónir.
í ÞÝZKALANDI er fylgzt dálít-
ið betur með fjármálum en annars
staðar, og hafa félög skattgreiðenda
sent þingmönnum í Bonn blýanta
með rauðri krít! Þeir eiga að strika
út öll óþarfa útgjöld. Hér myndi
heidur ekki veita af, að senda
iþcim rauða blýanta, af nægu er
að taka“.
Alþýðuflokkskonur:
Fyrsti fundur-
inn á haustinu
KVENFÉLAG Alþýðu-
flokksfélagsins í Reykjavík,
heídur fyrsta fund sinn á
þessu hausti í kvöld kl. 8:30 í
Iðnó uppi. Fundarefni: Ýms
áríð’andi félagsmál varffandi
vetrarstarfið, þar á meðal
rætt um námskeið og bazar.
Á fundinum mætir Vestur-
íslenzk kona, frú Laufey Ol-
son, og segir frá líknar- og
menningarstörfum innan
kirkjunnar vestan hafs, en
frú Laufey starfar þar að
þeim málum. Erindi hennar
fylgja litskuggamyndir.
Aiþýðuflokkskonur eru
beðnar að mæta vel og stund
víslega.
rAWWWWWWWWWW
Á heimili þínu
lief ég löngum
setið við lindir
söngva þinna,
átt þar dýrmætar
óskastundir,
dulheima notið
drauma minna.
ibúöir i
borgarbyggingum
Skemmtinn varstu
á vinafundum,
gerðir þar margt
að gamanmálum.
Gestum þyrstum
þú gafst að drekka
gleðinnar vín
í gylltum skálum.
Á vegum borgarsjóðs eru í byggingu 64 íbúðir að Álftamýri
nr. 16—30. íbúðir þessar eru byggðar til útrýmingar heilsu
spillandi húsnæðis, skv. IV kafla laga nr. 42/1957.
Umsóknareyðublöð eru til afhendingar í skrifstofu félags-
og framfærslumála, Pósthússtræti 9, 4 hæð og skulu um-
Til að auka
yndi mörgum,
sálum á vængjum
söngs að lyfta,
vckja gleði
og verma hjörtu,
endist þér aldur,
afl og gifta.
sóknir um íbúðir þessar hafa borizt til skrifstofunnar eigi
síðar en 3. nóvember n.k.
Borgarstjórinn í Rcykjavík.
Jfc 17. október 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ