Alþýðublaðið - 15.11.1962, Síða 1
Fiokksþing
liefst í kvöld
Stolt
Skóga-
skóla
ÞESSI fallega stúlka á mynd
inni taeitir Inga Björt Vil-
hjálmsdóttir og er í 3. bekk
taéraðsskólans að Skógum
nndir Eyjafjöllum. I'ossinn
í baksýn er Skógarfoss. Hvort
tveggja er stolt skólans, tainn
ánægði nemandi og tákn
hans fossinn í baksýn. VuS
ætlum að segja ykkxir frá
Skógaskóla S opnn á morg-
un, bæði S máli og mynd-
um. — Ljósm. Rúnar.
28. ÞING Alþýðuflokksins vevð-
ur sett kl. 8 í kvöld S Iðnó. Þing-
ið sitja yfir 100 fulltrúar. Emil
Jónsson' formaður flokksins mun
setja - þingið, en auk þess munu
þeir Guðmundur í. Guðmundsson
utanríkisráðherra og Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamálaráðherra
flytja erindi i kvöld.
Þingfulltrúar eru beðnir að
skila kjörbréfum sínum, félags-
skýrslum og ársgjöldum á skrif-
stofu flokksins sem allra fyrst og
helzt fyrir hádegi í dag.
Alþýðublaðið hefur undanfarið
birt nöfn ýmissa fulltrúa utan af
landi. Hér fara á eftir nöfn full-
trúa Alþýðuflokksfélags Reykja-
víkúr og Sambands ungra jafnað-
armanna, sem senda stærstu hóp-
ana á þingið, 18 fulltrúa hvor að-
ili um sig.
Framhald á 2 síðu.
NÝTT í
KÚBU-
MÁLINU
New York, 14. nóv.
VIÐræðnr nm Kúbumálið halda
enn áfram i aðalstöðvnm Samein-
uðu þjóðanna i New York.
í dag áttn þeir Adlai Stevenson
og U Thant viðræðnr um máUð í
ljósi þess að fuUvíst má nú telja
að Alþjóða Rauði Krossinn muni
ekki taka að sér eftirlit með skipa
fcrðum til Kúbu.
Sagt er í aðalstöðvunum, að
sovézki og kúbanski fulltrúinn hafi
borið fram nýjar tiUögur í Kúbu-
málinu, en ekki hefur efni þeirra
verið látið uppL
Hæstaréttar-
bíl stolið
\
BIFREIÐ Hákons Guðmundsson-
' ar, hæstaréttarritara, R-3834, var
' stolið í gærkvöldi fyrir utan
Hæstarétt. Bifreiðin fannst.á Sölf-
hólsgötu, stórskemmd. Ekki hafði
þjófurinn fundizt, er Alþýðublað-
ið liafði samband við lögrcgluna
í gærkvöldi.
FYRSTA
SlLDIN
SÍLDARBÁTARNIR frá
Akranesi komu að úr fyrsta
róðrinum um hádegisbilið í
gær. Alls höfðu 7 bátar róið,
en ekki fengu nema fimm
þeirra síld. Hinir tveir héldu
vestur undir Jöknl og hugð-
ust reyna þar. Til Akraness
komn eftirtaldir bátar með
síld í gær: Sigrún með S25
mál, Skírnir 300 mál, Anna
300 mál og Sigurður með
100 mál. Síldina fengu bát-
arnir á Selvogsbanka. Höfr-
ungur II fékk þar einuig
400 mál en hann fór ekki
til hafnar heldur hélt vest-
ur undir Jökul og hugðist
bæta þar við aflann.
í gærkvöldi voru 11 bátar
á sjó frá Akranesi, allir und-
ir Jökli. Einn bátur, Vala-
fell, frá Ólafsvík kom viS
á Akranesi í gær og tók nót
og hélt síðan á veiðar.
Þegar fýrstu bátarnir
fóru út, var ekki veiðiveður
undan Jökli, en í gærmorg-
un stilltist veður þar og var
komið veiðiveður seinnipart-
inn í gær. Ekki höfðu borízt
neinar fregnir frá bátunum
um kvöldmatarleytiS í gær.
Vitaö var þó að einhverjir
þeirra höfðu fundið síld, en
hún mun hafa staðið djúpt.
Sturlaugur Böðvarsson, út-
gerðarmaður á Akranesi
sagði í símtali við blaðið í
gær, að nú væri fullt tungl
og þá stæði síldin alltaf
dýpra, nema skýjaður him-
inn væri.
Síldin sem bátarnir fengu
á Selvogsbanka var frcniur
smá og voru nokkur brögff
að því aff hún ánetjaðist. Ilún
fór öll í bræðslu.
SÖFNUN-
IN GENG-
URVEL
SÖFNUNIN tU hungruðu barn-
anna í Alsír heldur stöðugt á-
fram og fyrir vikulokin mun
Alþýðublaðið skýra frá því
hvernig gjafirnar verða send-
ar börnunum.
Á hverjum degi koma þús-
undir og hvarvetna að berast
blaðinu þakkir fyrir að hafa
vakið máls á þeirri sjálfsögðu
samvizkuskyldu að styrkja liin
bágstöddu börn.
Hér fer á eftir listi yfir
söfnunina dagana 9.-12-. nóv.:
Söfnnnarfé 9.—12. nóvem-
ber 1962.
Guðmundur Lúffvíksson 200,oo
Félag fyrrv. sóknarpresta 500,oo
Kvenfél. Bústaðasóknar 2.000,oo
S. S. frú og dóttir 300,oo
Fanney 300,oo
Ólafía Árnadóttir 100,oo
Ólafía Jónsdóttir 100,oo
Framh. á 3. síðu
Frá alþingi
í gærdag:
NEIKVÆÐ AFSTAÐA
RAMSÓKNAR TIL ESE
ÞAÐ ER FURÐULEGT, að afstaða
Framsóknarflokksins til Efnahags
bandalags Evrópu skuli vera jafn
neikvæð og afstaða kommúnista
til bándalagsins, sagði Gylfi Þ.
Gíslason viffskiptamálaráffherra á
alþingi í gær.
Viðskiptamálaráðherra svaraði
ýmsu, er fram hafði komið í ræð-
um þeirra Finnboga Rúts Valdl-
marssonar og Eysteins Jónssonar
sl. mánudag.
Viðskiptamálaráðherra kvaðst í
upphafi ræðu sinnar vilja vekja
athygli á því, að allir stjórnmála-
flokkar alþingis væru sammála
því, að rétt væri að bíða átekta í
efnaliagsbancíalagsmálinu, þar til
þróun mála væri komin á það
stig, að unnt væri fyrir Island að
taka ákvörðun. um það, hvaða
tengsl við EBE hentuðu Islen'ding-
um bezt. Kvaðst ráðherrann telja
mjög mikilvægt, að samstaða
stjórnmálaflokkanna skyldi vera
fyrir hendi í þessu efni. Ráðherr-
ann sagði, að ástæðan fyrir því,
að stjórnmálaflokkamir vildu biða
átekta væri sú, að enn lægju ekki
fyrir fullnægjandi upplýsingar
um það t. d. hvað aukaaðild fæli
í sér, en væntanlega mundi það
skýrast á næstunni. Það væri því
furðulegt, að þrátt fyrir þetta
skyldu flokkar stjórnarandstöð-
unnar lýsa því hiklaust yfir, að
;aukaaðUd kæmi ekki til greina,
heldur aðeins tollasamningar.
Ríkisstjómin teldi alls ekki liggja
fyrir nægilegar upplýsingar um
það, hvað aukaaðild mundi fela í
sér og meðan þær upplýsingar
væru ekki fyrir hendi, væri ókleift
að útiloka aukaaðild.
Viðskiptamálaráðherra sagði,
að sér hefði komið það á óvart
hversu sammála flokkar stjómar-
andstöðunnar hefðu verið í því að
lýsa yfir andstöðu við aukaaðild.
Afstaða Finnboga Rúts Valdimars-
sonar væri að vísu eðlileg. Komm-
únistar væm á móti EBE í sjálfu
sér, þar eð þeir teldu EBE slæma
stofnun. En slík væri afstaða
Framsóknar ekki. Eysteinn Jóns-
Framhald á <4. síðu,
ŒKSUÍ>
43. árg. - Fimratudagur 15. nóvember 1962 — 252. tbl.