Alþýðublaðið - 17.04.1963, Side 3
MOSKVA, 16. apríl (NTB-Reuter).
Nikita Krústjov, forsætisráðherra,
vcrður 69 ára á morgun og sam-
tímis er orðrómur á kreiki um, að
hann muni sennilcga áður en Iangt
um líður afsala sér nokkru af völd
um sínum í hendur öðrum.
Ein sagan hermir, að Krústjov,
sem ellin er farin að ásækja eftir
aö hann hefur verið leiðtogi Sovét
ríkjanna í tæpan áratug, jiyggist
láta af annarri forystustöðunni,
sem hann gegnir, en hann er bæði
ritari flokksins og forsætisráð-
lierra. Annar orðrómur er á þá
lund, að hópur nýstalínista í for-
ystu Sovétríkjanna, sem finnur að
íneðferð Krústjovs á Kúbumálinu
og hugmyndafræðideilunni við
stjórnina í Peking, beiti sér ein-
dregið fyrir því, að honum verði
vjkið úr cmbætti.
Flestir fréttamenn í Moskvu
telja þó, að Krústjov sé ekki þess
háttar maður, að láta af mikils- ^
verðu embætti á úrslitastundu í
sögu kommúnistahreyfingarinnar.
Hann hefur dvalizt við Svartahaf
í um það bil einn mánuð, en það
er ekki óvenjulegt, og ekkert bend
ir til þess að hann sé slæmur til
heilsunnar.
Fréttamenn í Moskvu lialda þvi
fram, að ekki iiggi fyrir sönnun
þess, að flokksforinginn sé ekki
fær um að koma þeim fyrir katt-
arnef, sem gagnrýna stefnu hans.
Kviksögurnar byggjast aðallega
á erfiðleikum í stjórnmálum og
efnahagsmálum, sem Krústjov hef
ur átt við að stríða og á við að
Arabar sam-
einast á ný
KRÚSTJOV
— afsalar hann sér einhverjum af
völdunum?
stríða. Þetta eru vandamál, sem
vitað er um, t. d.
1. Staðhæfingar Kínverja um
eftirlátssemi gagnvart heims-
valdastefnunni í Kúbumálinu.
2. Sú staðreynd, að hann getur
ekki bent á neinn sigur í utan
ríkismálum síðan í Berlínar-
deilunni, sem hann sjálfur olli
í nóvember 1958.
3. Hinir sífelldu gallar í sovézka
efnahagskerfinu, einkum á
sviði landbúnaðar, sem er sér
svið Krústjovs.
4. Vandamálið, sem er í því fólg
ið að koma í veg fyrir að ár-
ásir Krústjovs sjálfs á glæp-
ina, sem framdir voru á tím-
um Stalíns, kunni að ryðja al-
mennu frelsi menntamanna og
listamanna í Sovétríkjunum
braut.
Vletcon
liðar fá
Saigon, 16 apríl
(NTB —Reuter)
NGO DINH DIAM forseti gaf
skæruliðum kommúnista í yfirlýs-
ingu í dag kost á aö losna við refs-
ingu og að verða viðurkenndir
sem borgarar Suður-Viet-nam mcð
því að leggja fram þjóðlegan
skerf.
Forsetinn birti tilkynninguna
eftir að æ fleiri skæruliðar hafa
gefizt upp fyrir stjórnarsveitum
undanfarna þrjá mánuði
Haft er eftir stjórninni, að tíl-
boðið sé ekki sakaruppgjöf og það
nái ekki til hins harða kjarna
kommúnista, sem útrýma verði.
Yfirlýsingunni er beint til manna,
skæru-
tilboð
sem samúð hafa með kommúnist-
um og fólks, sem hefur verið neytt
til þess að ganga í þjónustu komm-
úriista.
Yfirlýsingin var birt þegar eitt
ár var liðið frá því að sú aðferð
var tekin upp að víggirða þorpin í
, landinu, það er að segja þorp, þar
sem íbúarnir styðja stjórnina og
neita skæruliðum um vistir.
Um 5.500 skæruliðar hafa beðið
bana í árásum á þessi þorp og
3.050 stjórnarliðar.
Víggirtu þorpin eru umlukt
bambus-stauragirðingum og gadda
-vír. Átta milljónir landsmanna,
sem telja fjórtán milljónir, búa í
slíkum víggirtum þorpum.
Kairó, 16. apríl
(NTB—Reuter)
FIMM manna nefnd lagði í dag síð
ustu höndina á uppkast að samn-
ingi um stofnun arabíska sam-
bandslýðveldisins, sem Egypta-
land, Sýrland og írak munu eiga
aðild að.
Nefndin mun leggja málið fyrir
nefnd 11 manna, sem upphaflega
var falið að semja samningsupp-
kastið. Þessi nefnd, sem öll ríkin
þrjú eiga fulltrúa í, á síðan að taka
afstöðu til þess.
Nefndinni hafði einnig verið
falið að ákveða hvenær semja eigi
stjórnarskrá sambandslýðveldis-
ins, sem á að viðurkenna í þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sennilega eftir
fjóra eða sex mánuði.
Ákvörðunin um stofnun nýs
arabísks sambandslýðveldis var
kunngerð sl. miðvikudag í Kairó.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum í Kairó í gær, að í við-
ræðunum hafði vandamálið í sam-
bandi við stjórnmálaflokka borið
á góma.
ASKENAZIJ
Framh. af 16. síðu
píanóleik og kom þegar á barns-
aldri fram hér á landi og erlendis.
Síðar hlaut hún styrk til náms
við tónlistarskólann í Moskvu og
þar eystra kynntist) hún manni
sínum, og voru þau gefin saman
fyrir tveim árum. Þórunn bjó í
fyrstu á stúdentagarði í Moskyu,
en hafði þó ekki mikið að segja
af húsmóðurlífinu þar vegna mik-
illa hljómleikaferða með manni
sínum, að því er hún sagði Alþýðu
blaðinu í viðtali skömmu fyrir síð
ustu jól. Þá sagði Þórunn, að mað
ur sakni alltaf einhvers, hvert sem
maður fer. Hún kvaðst kunna vel
við margt í Moskvu eins og henni
hefði fallið vel við margt í öðr-
um löndum, þar sem liún hefði ver
ið. Þórunn sagði: „Ég mundi lík-
Iega ekki vilja setjast að í Rúss-
landi, ef ég vissi, að ég kæmist
þaðan aldrei aftur, en ég vildi ekki
hcldur sctjast að hér, ef ég vissi,
að ég yrði að vera hér um kyrrt
til æviloka“.
Þegar Þórunn var spurð um þjóð
skipulagið eystra, svaraði hún: —
„Það er auðvitað allt öðru vísi í
Englandi eða hér, en maður venst
öllu. Ef við værum í öðru landi,
værum við kannske svo rík, að
við gætum veitt okkur allt, sem
við þörfnumst eða viljum veita
okkur — en í Rússlandi er eng-
inn ríkur. En við fáum allt, sem,
við þörfnumst. Af því að maðurinn
minn er tónlistarmaður, er lionum
útvegað nægilegt húsrými til að
æfa sig og okkur er gert kleift
að sækja þá tónleika, sem við vilj
um sækja. Við getum yfirleitt gjrt
allt, sem við viljum þar eins *g
við gætum annars staðar. Mun ir- |
inn er aðeins sá, að annars stfð-i
ar værum við' rík og keyptum j
þessa hluti. Þarna eru okkur skaff ,
aðir allir sömu hlutir“.
hiRÍMFAXI
Framhald af 1. síðu.
í fyrstu fréttastofufregnum seg-
ir, að flugvélin hafi haft samband
við flugturninn á Fornebu fjórum
mínútum áður en slysið varð, en
síðar hefur komið í ljós, að ekki
liðu nema um 20 sekúndur frá því
að flugstjórinn, Jón Jónsson, hafði
samband við Fornebu og kvaðst
vera í skýjaþykkni, þar til varð-
stjórinn í flugturninum tilkynnti
að slys hefði orðið. Sást reyksúla
og heyrðist sprenging.
Rannsókn á slysinu hófst á ann
an í páskum, en tafðist talsvert
vegna snjókomu nóttina áður. í
gær, þriðjudag, fóru tæknilegir
sérfræðingar á staðinn til að hefja
sinn þátt í rannsókninni, að sögn
NTB, en lögreglumenn frá Sker
og Bærum aðstoða.
í símaviðtali við Arbeiderbladet
í Osló í gær fékk Alþýðublaðið
þær upplýsingar, að ekki fengjust
neinar upplýsingar um rannsókn-
ina ennþá, enda væru nefndar-
menn bundnir þagnarskyldu, þar
til rannsókn væri lokið. Það liggt
ur þó fyrir, að nefndin hefur
fengið í hendur frásagnir sjónar
votta og hefur sömuleiðis hlustað
á segulbandsupptöku af samtalinu
milli flugturnsins og vélarinnar.
Það er staðhæft, að flugvélin
kom eðlilega inn til Iendingar og
að öll tæki vélarinnar störfuðu
eðlilega þangað til slysið varð, seg
ir í frétt frá NTB. Þá er þess og
getið, að fulltrúi frá Flugfélagi
íslands hafi verið viðstaddur, er
segulbandsupptakan var spiluð fyr
ir nefndina og borið kennsl á rödd
fiugstjórans.
John Qvale, lögreglustjóri í Ask
er, skýrði frá því í gær, gð enn
væri ekki búið að bera kepnsl á
öll líkin, en sennilega yrði hægt
að senda nokkur þeirra heim næstu
daga.
DANSKA blaðið BT skýrir frá því,
að það hafi orðið þrem manneskj-
um til lífs, að þau misstu af Hrím
faxa í Kaupmannahöfn á páska-
dagsmorgun. Segir blaðið, að þetta
hafi verið frú Ingvarsson og tveir
synir hennar, en ekki hefur Al-
þýðublaðinn tekizt að afla sér upp
lýsinga um hvert er fornafn frúar
innar.
DÖNSK blöð skrifuðu mjög mikið
um flugslysið við Forncbu í út-
gáfum sínum á mánudaginn. Var
Önnu Borg þar sérstaklega getið,
og rætt um slysið á útsíðum. Voru
birtar myndir af áhöfn vélarinnar,
og einnig mikið rætt um Flugfé-
lag íslands.
Sjónarvottar
Framh. at 1. síðu
jörðina, að það var eins og
það mundi falla saman. (
Hlutar af vélinni köstuð-
ust upp í loftið, og ég hljóp
í áttina að brekkunni (þar
sem vél’n kom niður),. en
Iirökklaðist til baka, þegar
nokkrar sprengingar ui-ðu
þar. Mér hafði nú skilizt ^hví
líkur harmleikur hafði gerzt.
Ég gat ekkert að gert, allir
hlutu að vera látnir.
Þáu fórust
Framh. af 1. síðu
HELGA HENCKELL, flug-
freyja, 25 ára. Tók stúdentspróf
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík vorið 1957, og gerðist flug-
freyja 1. maí 1962.
Farþegar:
ANNA BORG REUMERT, hin
kunna leikkona, 59 ára. Hún
var kvænt Poul Reumert, og
áttu þau tvo syni, Stefán, sem
er búsettur hér, og Þorstein,
sem býr í Kaupmannahöfn. —
Hún ætlaði að heimsækja Stef-
án, son sinn, og einnig mun hún
hafa átt að taka þátt í norrænni
leikaraviku, sem á að vera hér
í lok þessa mánaðar.
MARGRÉT BÁRÐARDÓTTIR,
19 ára, dóttir Bárðar ísleifs-
sonar, arkitekts. Hafði dvalið
nokkurn tíma í Danmörku, og
var nýlega trúlofuð dönskum
manni. Þau munu hafa ætlað
að giftast hér og stofna heimili.
ÞORBJÖRN ÁSKELSSON,
útgerðarmaður frá Grenivík,
58 ára, lætur eftir sig konu og
6 börn. Hann var að koma frá
Hallandi, þar sem hann var að
taka á móti nýjum fiskibát.
ILSA HOCIIAPHEL, þýzk
hjúkrunarkona, sem var á leið
til íslands, og ætlaði að starfa
við Heilsuhælið í Hveragerði.
Hjónin MARÍA og KARL
WEST. Þau ætluðu að heim-
sækja ættingja sína hér á ís-
landi, en konan er íslenzk. —
Munu þau hafa verið á leið í
fermingarveizlu dótturdóttur
sinnar, en önnur dóttir þeirra
er búsett hér og hin í Kaup-
mannahöfn.
MR. BAUME, brezkur mað-
ur, sem var á leið til íslands.
WASHINGTON, 16. apríl (N
TB-Reuter). — Fram á ann-
an páskadag var eitt bezt
varðveitta leyndarmálið í
Washington, að Jaqueline
Kennedy ætti von á barni.
Aðeins f jórir vissu um leynd-
armálið auk forsetans og frú
Kennedy. Greinilegt var, ið
margir úr Kennedy-f jölskyld-
unni vissu ekkert um leyndar
málið fyrr en birt var opii-
ber tilkynning. ,
Barnið, sem frúin á von á
í ágúst, verður þriðja barn
hennar. Caroline er nú fimm
ára og Jolin yngri tveggja.
ára. Alls eru nú 20 böra í
Kennedy-fjölskyldunni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. apríl 1963 3