Breiðablik - 01.01.1908, Side 1

Breiðablik - 01.01.1908, Side 1
BREIÐABLIK. Mánaöarrit til stuðnings íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI II. Ár. JANÚAR 1908. Nr. 8. FÁTÆKRAMÁL HEIMSINS. ANIR ættum vér Islendingfar að vera orðnir því að heyra talað um fátækra- mál. Þau hafa verið þjóðar vorrar stærsta áhygfgjuefni. I fátæku landi hefir hún búið og tala fátæklinganna óvenjulega há í samanburði við tölu þeirra, sem bjargálnamenn geta kallast. Sveit- arþyngsli sífelt talin þjóðar vorrar mesta mein. Hitt er oss að líkindum ókunn- ara um, að fátækramálin eru nú að verða heimsins stærsta áhyggju- efni. Nú ekki eins mikið talað um neitt mannfélag'sböl og hin mis- skiftu kjör manna. Sé nokkur breyting til batnaðar fyrir hendi á mannfélagsskipulaginu frá því sem nú er, verður hún sjálfsagt fátæklingunum í vil. Jörðin frámleiðir meir en nóg handa öllum. Græðgin kemur fáeinum til að hrifsa til sín marg- faldan skerf. Hún ryður smæl- ingjunum frá borði, svo þeir hungra, en hinir hvoma í sig. Op hinna fátæku, sem ganga hungraðir og naktir, verður sár- ara og sárara, eftir því sem auð- æfin vaxa. Nítjánda öldin fann til með fá- tæklingunum, kendi í brjósti um þá, sýndi þeim margvíslega hjálp- semi bæði á einn og annan hátt. En brjóstgæðin og hjálpsemin reyndist ónóg. Tuttugasta öldin ætti að sýna þeim það réttlæti, að allir fengi nóg. Aldrei hefir jafn-eindregið verið tekið í þann streng og einmitt nú af vitrustu mönnum og beztu um heim allan. Sé mörg systkini á einu heimili og eitt eða tvö, sem eigi kunna að sjá fyrir sér af ein- hverjum ástæðum, álíta hin syst- kinin sjálfsagða skyldu að sjá þeim farborða. Annars álíta menn, að þeim farist illa og óheiðarlega.

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.