Breiðablik - 01.12.1909, Side 1
BREIÐABLIK.
Mánaöarrit til stuöning's íslenzkri menning.
FRIÐRIK J. BERGMANN
RITSTJÓRI
IV. Ár.
DESEMBER 1909.
Nr. 7.
FAÐMUR KÆRLEIKANS.
í FSSKOÐAN krist-
inna manna er á því
bygð, að fyrir utan
þenna sýnilega heim
sé annar ósýnileg'ur
og" dularfullur, skip-
aður eng"lum og öndum. í þeim
heimi sé.hann, sem ræður tilver-
unni allri,—faðir andanna, upphaf
og orsök lífsins, faðir drottins
vors Jesú Krists og faðir vor.
Þessi andans heimur sé hinum
sýnilega heimi jafn-verulegur.
H ann standi öllum opinn, er þang-
að vilji snúa huga sínum, og þar
sé auðlegð svo mikil, er hverjum
manni standi til boða, að gull og
silfur hins sýnilega heims sé í sam-
anburði við það eins og engis vert
ryk eða gróm.
Um þenna andans heim hafa
mennirnir haft hugboð frá upphafi
vega, misjafnlega glögt vitaskuld,
en hugboð samt, því allir hafa þeir
haft einhvern guðdóm og á ein-
hvern hátt leitast við að komast í
samband við hann.
Enginn hefir sagt oss jafn-
greinilega af honum og hann, sem
vér nú höldum jól. í honum birt-
ist dýrð hins ósýnilega heims með
ljóma svo miklum og fegurð, að
nafnið hans er öllum nöfnum ofar
og fyrir honum beygja mennirnir
kné í tilbeiðslu og lotningu.
Um fram alla aðra, sem lifað
hafa, nefnum vér hann frelsara.
Meðal annars frelsar hann hvern
þann, sem gefur orðum hans nokk-
urn gaum, frá þeim hégóma að
álíta, að ekkert sé til nema þessi
sýnilega hlið tilverunnar og lífið
ekkert annað en þessi skammvinna
stundar-dvöl í jarðneskum heim-
kynnum.
Návistar ósýnilegs föður varð
hann var á öllum vegum sínum.
Heimslífið alt og rás viðburðanna
fanst honum hvíla í hans sterku
örmum. Honum fól hann sjálfan
sig við hvert fótmál. í hans hend-
ur gaf hann upp andann í dauð-
anum. Um hersveitir engla vissi
hann, er væri til taks að þjóna