Breiðablik - 01.12.1909, Side 13
BREIÐABLIK
öldinni með mótmntlendum. Það væri að
eins til að gera slíka rannsókn hlægilega
í augum heimsins.
Vegur lút. kirkju verður því hvorki
meiri ué minni í landi þessu af rannsókn-
arstörfum þessarra manna. Þe:r standa
þjónustu ríkisins, en eigi kirkjunnar.
Af störfum þeirra veiður alls ekkert ráð-
ið, hvort lút kirkja hér í landi styður
frjálsa rannsókn eða er. henni mótfallin.
Að nefna þá í þessu sambandi er þess
vegna eins mikið út í hött og mest má
verða, ekki sízt vegna þess að báðir byrja
sem kennarar við lút. prestaskóla hér, en
verða frá að hverfa sakir frjálsari skoð-
ana en þar eru ríkjandi. Með öðrum
orðum: dæmi þeirra sannar nákvæmlega
hið gagnstæða því, sem til er ætlast.
Álíka vel er ástatt með fólksíjöldann,
sem á að vera í lút. kirkju hér. Tólf
miijónir! Minna má ekki gagn gera!
Alt til að ógna aumingja Gardar-söfnuði,
sem á að hafa gjört það ódæði að ganga
útúrlútersku kirkjunni með því að ganga
út úr kirkjufélaginu, þó vitanlega sé
margir óháðir söfnuðir í þeim hópi, sem
talinn er til lúterskrar kirkju áhverju ári.
Ekki varnein þörf, á þessu að villast.
Því einmitt síðastliðið sumar voru birtar
skýrslur Bandaríkjastjórnar yfir trúar-
brögð þar í landi. Eru þær skýrslur
teknar með mestu nákvæmni og miklu
áreiðilegri en nokkurar skýrslur aðrar.
Árið 1890 voru þær fyrst teknar og svo
aftur 1906. Þessar síðustu skýrslur,
sem gefa yfirlityfir 16 ára bil, hat'a ekki
verið birtarfyrreu í suniar ; svo vandlega
er verkið unnið. Samkvæmt þessum
skýrs um er tala lúi. manna í Bandaríkj-
um 2,122,494, með öðrum orðum liðugar
tvær miljónir. Tvær í staðinn fyrir tólf.
Líkindin eru nú miklu meiri til þess, að
hér kunni að vera of-talið en vantalið.
Hver einn einasti maður er spurður.
Margur maður af lút. bergi brotinn telur
sig rút. þótt hann standi eigi í neinum
söfnuði. Enginn, sem á annað borð
109
heyrir einhverjum söfnuði til, lætur þess
ógetið; hann telur sér það sóma, en ekki
hneisu. Líkindin eru því miklu meiri,
að hér sé fleira talið en ástæða er til,
heldur en færra.
Vitaskuld ætti að vera ekki færra en
tólf miljónir lút. nianna í Bandaríkjum,
með þeim afar-mikla innflytjenda straum,
sem þangað hefir runnið frá lúterskum
löndum. En miklum nieira hluta innflytj-
enda hefir kirkjan glatað. Hún hefir
verðið svoþröngsýn, einstrengingsleg og
kreddufull, að þorri manna hefir snúið
við henni baki. Það er eigi nema þetta
örlitla brot, sem henni helir tekist að
handsama.
Ekki er heldur svo að skilja, að þessar
tvær miljónir sé ein heild, heldur skiftast
þær í 24 flokka og er á milli þeirra alt
skift og skilið. Þessir 24 trúar flokkar
lúterskra manna standa öllu fjær hver
öðrum eins og stendur en Meþódistar
og Presbytérar, eða Kongregaziónalistar
og menn úr Biskupa-kirkjunni ensku.
Hér í Kanada eru nú þessar trúardeildir
endurbættu kirkjunnar að renna saman og
líkur til þær verði runnar saman í eina
heild í Baiidaríkjum löngu áður en þessi
24 brot lút. kirkju eru orðin ein sam-
runnin heild.
Hver er örsökin ? Sami einstreng-
ingsskapur og umburðarleysi og var því
valdandi, að Gardar-söfnuður neyddist til
aðsegja skilið við kirkjufélagið. Þaðhefir
hrundið, að minsta kosti tíu miljónum frá
kirkjunni lút. hér í iandi,sem annars hefði
verið sjálfsögð börn hennar. Það hefir
brytjað hana sundur í 24 smábrot, sem
standa hvert öðru fjær en hinar gömlu
deildir endurbættu kirkjunnar. Og
svona heldur hún áfram að molna sundur
meðan sá umburðurðarleysis andi ríkir í
henni, sem þar hefir ríkt hingað til.