Frækorn - 25.12.1908, Blaðsíða 12
228
FRÆKORN
Kína-kci$ari 09 ckkjudrotnina bacði dáin.
Hinnungi keisari Kína-veldis ogekkju-
drotning iiins fyrra keisara þar dóu í
nóv. mán. Hvort þau hafa dáið eðli-
legriu dar.fdaga er mönnum ókunmigt
mn.
Stjórnaríarið er bygt á kenningnm
Konfucíusar á hinum 4 fyrstu bó'kum
hans, en handbók stjórnarinnar er í 9.0
(!) bindum. Ekkjudrotningin var nærri
hálfáttræðað aldri (fædd 17. nóv. 1834),
hét upphaflega Jehonala, en var jafnan
kölluð Tsi-Thsi eða Tsuhsi, var af litl-
um ættum, en nijög fríð sýnum í æsku,
og gáfuð vel; kom 16 ára gömul í kvenna-
búr Hieniongs keisara, og varð 5. kona
hans í röðinni, en kom sér svo við nr.
1 af keisarafrúnum, er var barnlaus, að
hún valdi Jehonala til að ganga í sinn
stað og veita keisaranum ríkiserfingja,
og það gekk alt að óskum. Eftir lát
Hienfongs keisara 1865, réð Tsi-Thsi
miklu í stjórninni, þangað til sonur
hennar, Tsunghsi, tók við, en hann varð
skammlífur og andaðist 18/5, læplega
tvítugur. Var margi ætt um dauða hans.
F.kkja hatis var almælt, að hefði verið
drepin á eitri, ef til vill eítir fyrirskip-
un Tsi Thsi, lil þess að geta sjálfhaldið
völdunum. Lét húnþágefa keisaranafn
Kwangzti þeint, sem nú er látinn. Var
hann systurson hennar, en bróðurson
Hienfongs keisara, og þá að eins þriggja
ára gamall (f. 1872), svo að Tsi-Thsi
hafði alla stjóruini áhendi, ásamt Kung
prinz, föðnrbróðnr unga keisaians, er tók
sjálfur við völdnm að nafninu til 1889,
og vildi koma ýnisum endurbótum á,
en fór nokkuð ógætilega. Ætlaði hann
að láta taka ekkjudrotninguna höndurr.
en hershöfðinginn, sem átti að gera það,
ljóstraði því upp. Þá reiddist Tsi-Thsi
ákaflega, gerði boð eftir frænda sínum,
keisaranttm, og sló hann rokna högg ut-
an undir með blævæng sínum. Pá féll
keisari á kné og játaði alt. f>etta var
árið 1898. Eftir það mátti lieita, að
hann væri í stöðugu varðhaldi, og að Tsi-
Thsi væri í raun réttri stjórnandi landsins.
Afskipti annara þjóða af „boxara"-upp-
reisninni 1900 mýkti ekki skap gömlu
konunnar, en síðustu árin fékk þó Kwanzu
að nafninu til að taka meiri þátt í stjórn-
inni. - Tsi-Thsi hataði yfirráð og
yfirgang útlendiriga þar í landi, og studdi
því af alefli kínverska „landvarnarflokk-
inn", er vildi reka útlendinga af hönd-
unt sér oghafa Kínland fyrir Kínlendinga.
Hún var þvi í raun réttri vörður sjálf-
stæðisbaráttunnar í Kína.
F.kkjudrotningin var kvennskörungur
tnikill, þótt ýmsar sögur gangi um
drengskap hennar.
Roald Kmundsctt,
Norðmaðurinn, sem frægur er
frá Gjöaleiðangrinum, ætlar inn-
an skamms að leggja af stað í
norðurheimskautsleit á »Fram«,
skipi dr. Nansens. Ætlar hann
af stað frá Noregi í ársbyrjun
1910, og vera kominn í júlí eða
ágúst að Barrowhöfða nyrst á
Alaska, en þaðan ætlar hann að
láta skipið reka með ísum til
útnorðurs þvert yfir heimsskaut-
ið, því að hann þykist hafa sann-
anir fyrir, að hafstraumarnir liggi
þannig, að þetta geti tekist. Hann
gerir ráð fyrir að vera 5 ár í
þessum Ieiðangri, en »Fram« á
að hafa vistir til 7 ára.
Amundsen vill engan vísinda-
mann hafa í föíir.ni, að eins
röska og vana sjcmcnn. Kon-
ungshjónin norsku hafa gefið
20,000 kr. til fararinnar.
Standard Cil íclagið.
Eins og menn munavarStan-
dard Oil félagið í Chicago (stein-
olíufélag Rockefellers) sektað um
29 miljónir dollara (104,400,000
kr.) í máli, er Bandaríkjastjórn
höfðaði gegn því fyrir marghátt-
aðan fjárdrátt. En nú hefir fé-
lagið unnið málið fyrir hæsta-
rétti Bandaríkjanna, erhefirónýtt
fyrri dóminn og felt hina stór-
kostlegu fjár-ekt niður. Stjórnin
hefir sótt um að fá málið tekið
upp að nýju, en rétturinn hefir
synjað henni um þaó.