Alþýðublaðið - 12.07.1963, Qupperneq 10
■
á Frjátsíþróttamót
HIÐ ÁRLEGA Frjálsíþróttamót
ÍR fór fram á Laugardalsvell-
inum í fyrrakvöíd. í gær var þó
keppt í tveim greinum á Mela-
vellinum, en alls var keppt í 17
' greinum á mótinu fyrir karla, kon-
ur og sveina.
Árangur var frekar slakur, en
nokkrir íþróttamenn vöktu þó at-
hygli og hinn fjölmenni hópur
stúlkna setti mestan svip á mótið.
mótið.
★ SIGRÍÐUR SIG.
stökk 4.98 m.
Sigríður Sigurðardóttir, ÍR, sigr-
aði í tveim greinum og var með
í boðhlaupssveit ÍR, sem náði góð-
nm tíma. Sigríður er í stöðugri
framför og vantar nú aðeins 2 sm.
á 5 metrana. í 80 m. grindahlaupi
bætti hún einnig tíma slnn veru-
lega. Ýmsar aðrar stúlkur vöktu
atlxygli og sýna stöðugar framfar-
ir.'
★ EINAR G. KOM
Á ÓVART
1 keppni karla kom Einar Gísla-
son, KR mest á óvart, en hann varð
annar í 100 m. hlaupi, aðeins tæp-
um meter á eftir Valbirni og á und
an Skafta Þorgrímssyni, ÍR, og
Úralfi Teitss., KR. Einar er mjög
skemmtilegur spretthlaupari, sem
á eftir að ná langt, hefur gott
keppnisskap og hleypur vel.
í stökkunum kom ekkert óvænt
fyrir og árangur var lakari en oft
áður. Jóni mistókst að stökkva 2
Kristján Mikaelsson sigrar í 800
m. hlaupinu.
metra og Úlfar lenti öfugu megin
við 7 metrana. Það sama má segja
um kastgreinar, árangur var slak-
ur.
★ HÖRÐ KEPPNI
í 800 m.
Keppnin í 800 m. hlaupi milli
Kristjáns Mikaelssonar og Helga
Hólm úr ÍR var skemmtileg, en
vindurinn eyðilagði þó hlaupið og
það sama verður sagt um 3000 m.
Kristján sigraði Helga örugglega,
en Helgi náði sínum bezta tíma.
Halidór Jóhannesson, KR, sigr-
aði með yfirburður í 3000 m.
hlaupi og náði sínum bezta tíma.
Gunnar Karlsson, Breiðabliki er
nýr á hlaupabrautinni.
í kúluvarpi sveina hafði Erlend-
ur Valdimarsson yfirburði.
HELZTU ÚRSLIT
80 m. grindahlaup kvenna:
Sigríður Sigurðardóttir ÍR 14.3
Kristín Kjartansdóttir, ÍR 14.9
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR 15.1
Jytta Moestrup ÍR 16.0
Langstökk kvenna:
Sigríður Sigurðardóttir ÍR 4.98 m.
María Hauksdóttir ÍR 4.53 m.
Sólveig Hannam, ÍR 4.40 m.
Linda Ríkharðsdóttlr ÍR 4.38 m.
Kringlukast kvenna:
EQín Torfadóttir ÍR 25.37 m.
Framb. á 11. síðu.
Sigríður Sigurðardóttir stekkur 4.98 m. í langstökki.
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
Valbjörn sigraði
Valbjörn sigrar í 100 m.
hlaupinu, næstur er Einar
Gíslason, þriðji Skafti Þor-
grímsson, fjórði Úlfar Teits-
son, þá Bandaríkjamaður,
John Hill, sem keppti sem
gestur og loks Ólafur Guð-
mundsson. Það er mjög ó-
venjulegt og ánægjulegt að
sjá sex menn á hlaupabraut-
inni á Laugardalsvelli.
Richie Guerin - IV. grein
ERFIÐUSTU MÓTHERJARNIR
Kvenfólkið setti svip
— Larry Costello —
Syracuse Nationale — 1962
Leikir 63
Körfuskot 42,7%
Vítaköst — 83.7 %
Fráköst — 235
Aðstoð — 358
Stig — 867
Meðaltal 13.7
Ýmsir þeirra, sem gagnrýna
körfuknattleik í dag, telja, að leik-
menn hvorki hafi áhuga á, nó
heldur kunni að leika vamarleik.
Mér þætti gaman að sjá þá hina
sömu, sigrast á Costello, þar sem
i leikið væri maður gegn manni.
Larry Costello er sterkur eins
og uxi, fljótur og stórkostlegur
keppnismaður, sem hugsar um lið,
sem heild, framar öllu öðru.
. Þegar Syracuse er í vörn. bá veld-
ur Larry mér meiri erfiðleikum,
heldur en nokkur annar leikmað-
ur í úeildarkeppninni. Hann gætir
mín mjög vandlega, og hefur hæfi-
íeika til að vera eins og límdur
við mig, þegar ég reyni gegnum-
brot. Costello fylgir manni eftir
hvert einasta augnablik og loðir
við mann eins og frímerki.
f .sökn er hann næstum óstöðv-
and-iy Hann notar beggja handa
stöðnýkot og er óhugnanlega hitt-
inniyÞegar ég reyni að gæta hans
nálafegt, þá rekur hann mig í sjáif-
heldú eða þá að hann skýst fram-
hjá ■ á sínum óvenjulega vel
vbroskííðu fótleggjum, sem gera
honuni kleyft að halda fullum
hraða út allán leikinn. Reyni ég
að stöðva gegnumbrot hans, pá
tekst honum oftast að leika sig í
aðstöðu, þar sem ég get ekki
hindrað hið hættulega stöðuskot
hans. Sem sagt pund fyrir pund
og þumlung fyrir þúmlung, þá
heldur Larry Costello sínu, gagn-
vart hvaða leikmanni sem er, í
deildarkeppni atvinnuliða.
SKAFT!:
50,9 SEK.
í GÆRKVÖLDI var keppt í
tveim greinum ÍR-mótsins,
sem frestað var í fvrrakvöld,
sleggjuk. og 400 m. hlaupi.
Keppt var á Melavellinum.
Skafti Þorgrímsson, ÍR
sigraði í 400 m. lilaupinu á
nýju ísl. drengjam., 50.9 sek.
Gamla metið, 51,4 sek., setti
Skafti í landskeppninni gegn
Dönum. Kristján Mikaelsson.
ÍR hljóp á 51.8 sek. Þessi
tími í 400 m. er athyglis-
verður, þár sem ekki var liag-
stætt að hlaupa — SV 4-5
vindstig -— Tími Skafta er
bezti tími íslendings á þessu
ári. Þórður B. Sigurðss. KR
sigraði í sleggjukasti, 51.91
m., bezti árangur íslendings
á árinu.
•MMMWt *~«*WV»WWIWV*VV*1
12. júlí 1963
ALÞÝ0UBLAÐIÐ