Lögrétta - 01.01.1933, Qupperneq 3

Lögrétta - 01.01.1933, Qupperneq 3
5 LÖ GRJETTA 6 sjá það nokkuð h’verjar eru orsakir gyðinga- deilunnar eða eðli árásanna á Gyðinga. Sumt í kenningum andgyðinga um kynbálkana ork- ar mjög tvímælis eða er rangt, eins og í fleiri áþekkum kenningum, sem reyna að renna rökum vísindanna undir þjóðernisleg- ar kreddur. En slíkar kenningar eru til um allar jarðir, því að hverjum þykir sinn fugl fagur. Þar fyrir geta þessar kenningar haft sitt gildi og sín áhrif á þjóðlífið og á bar- áttu opinbers lífs og svo hefur verið um gyð- ingamálin í Þýskalandi. Þó má einnig minn- ast þess, sem Hitler segir líka á einum stað í bók sinni, að Gyðingar hafi einlægt komið magnaðri og sterkari út úr ofsóknunum en þeir voru áður. '"Kol og olía Lögrjetta hefur áður sagt frá hinum inerkilegu tilraunum, sem gerðar hafa verið til framleiðslu á kololíu og til þess að fram- leiða olíu úr kolum. Kolalöndin, og sjerstak- lega England, leggja sívaxandi áherzlu á þesssar rannsóknir, því að olía er altaf meira og meira að ryðja sjer til rúms á kostnað kolanna. Það var Bergius, sem eiginlega lagði grundvöll þessara i’annsókna og þess '•ðnaðar, sem af þeim er sprottinn með þeirri athugun sinni, að þegar baðmull varð fyrir ahrifum af vissum hita og þrýstingi varð úr henni kolkent efni, en þegar það efni varð ^yrir súrefnisáhrifum kom fram olíukendur vökvi. Þá var farið að beita samskonar áhrif- um við kolin sjálf með þeim árangri, að einnig kom fram vökvi. Úr þessu er nú að verða allumfangsmikill stóriðnaður. Imperial Lhemical Industries eru nú að láta reisa stórar verksmiðjur til þess að vinna olíu úr kolum og gera menn sjer góðar vonir um þenn an iðnað og um það, að England komist þann- ig í tölu olíuframleiðsluþjóðanna.Verksmiðjur þær, sem nú er verið að reisa til þessa í Billingham eiga að kosta hálfa þriðju miljón punda og eiga að framleiða árlega 100 þús- und smálestir af fyrsta flokks olíu, með því að vinna úr 400 smálestum af kolum á dag, •segir Sir Harry Mc Gowan forseti fjelagsins. / yTætlunarríkí Stjórnmál, framleíðsla og kreppa Ennþá tala allir um kreppuna og virðist svo sem lítið lát sje á henni og ekki tókst viðskiftamálaráðstefnunni í London að ráða bót á henni. Mjög eru menn ósammála um orsakir erfiðleikanna og um leiðina út úr ógöngunum og kemur þar margt til greina, þingræðið, þjóðskipulagið o. fl. Hjer á eftir fer ágrip af grein, sem enskur höfundur, G. R. Stirling Taylor hefur skrifað um þessi efni. Það er sennilegt, að sagnfræðingar fram- tíðarinnar muni segja frá því, að á árun- um 1920 til 1940 hafi stjórnendur hinna stóru ríkja sveigt inn á nýjar brautir í stjórnvísindum. Höfundar þessir munu enn- fremur segja, að hinn nýji tími í stjórn- málum og fjármálum virðist hafa átt upp- tök sín í Miðjarðarhafslandinu Ítalíu, og upplandinu Rússlandi, og að nokkrum árum seinna hafi hann brotist fram með skyndi- legum krafti — of skyndilegum krafti — í Þýskalandi, sem liggur mitt á milli hinna tveggja, og hafi sennilega smitast af þeim. Sagnfræðingarnir munu síðar geta þess, að næstum því um sama leyti hafi þessi hug- mynd um ríkiseftirlit með iðnaði, eða um ríkisáætlanir, komið fram í Bandaríkjum Ameríku. Jafnframt voru þessar sömu stjórnmálahug-myndir að brjóta sjer braut til Stóra-Bretlands, sem einlægt hafði verið stolt af einangrun sinni frá öllum heilaspuna, sem algengur væri meðal laus- lundaðri þjóða á meginlandinu. Sá kapítuli í sögubókinni, sem segir frá þessum stað- reyndum, Verður sennilega látinn heita „Tímabil ríkisáætlananna“ eða eitthvað þess- háttar. Sagnfræðingar munu sennilega segja nemendum sínum, að þessi bylting hafi ver- ið miklu gildismeirí í þroskasögu menningar- innar, en tímabil frönsku byltingarinnar einni öld fyr, því að of mikið hafi verið gert úr hennar gildi. Franska byltingin var aðallega verk hysteriskra hugsjónamanna og skýja- glópa, og hrotta, sem sóttust eftir eigin hag. En áætlunartímabilið verður sennilega undir

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.