Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 22

Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 22
43 LÖGRJETTA 44 hann, 21. september 1832. Hann yar lagður til hinstu hvíldar meðal forfe'ðra sinna í Dryburgh klausturkirkj u á stöðvum þeim, sem hann unni. Honum entist ekki aldur til að‘ gjalda nema þriðjung stórskuldarinnar, sem hann hafði svo drengilega tekist á hend- ur, en fimtán árum eftir dauða hans, höfðu tekjumar af ritum hans goldið hana að fullu. Skjöldur skáldsins var hreinn, eins og hann hafði viljað vera láta. Nokkrum dögum fyrir andlát sitt, kallaði Scott Lockhart tengdason sinn til sín og á- varpaði hann á þessa leið: „Vinur minn, vertu góður maður — vertu dygðugur — vertu guðrækinn — vertu góður maður. Það eitt veitir þjer nokkra huggun þegar þú liggur á banabeði þínum“. — Orð þessi eru næsta eftirtektarverð, af því að þau lýsa mæta vel m a n n i n u m Walter Scott. Á meðlætisdögunum, þegar honum var hlaðinn hver lofkösturinn eftir annan, hafði hann sýnt það, að hann var mörgum mannkostum búinn. Þegar hann var veginn á vog þungra rauna, sást það samt fyrst hversu m i k i 11 maður hann var. Hetjulund hans og dreng- skapur skörtuðu þá fegurst; sálargull hans skírðist í deiglu hinnar sáru lífsreynslu, Bvron hafði rjett að mæla, er hann sagði, að Scott væri jafn aðdáunarverður sem maður og rithöfundur. Og Carlyle, sem ann- ars hafði lítið dálæti á skáldsögum Scotts. kvað svo að orði, að í honum birtist mann- dómur hinnar bretsku þjóðar á átjándu öld í heilbrigðustu mynd sinni. Jeg minnist ekki svo Scotts á síðustu ár- um hans, sigur-árum hans, að mjer komi ekki í hug rammíslenska og kröftuga lýsing- in hans Gísla Brynjúlfssonar á karlmanns- lundinni: „Að bíða þess, sem boðið er, hvort blítt er eða strangt; og hvað sem helst að höndum ber, að hopa aldrei langt, en standa eins og foldgnátt fjall í frerum alla stund, hve mörg sem á því skruggan skall, — sú skyldi karlmannslund*. m. Scott var maður bæði fjölhæfur og fjöl- fróður. Hann var fomfræðingur, safnaði þjóðkvæðum og þjóðsögum, samdi æfisögur merkismanna og sá um útgáfu ýmsra skáld- rita; einnig var hann skarpskygn ritdómari. Víðkunnastur er hann sem ljóða- og sagna- skáld. Hann hóf rithöfundarferil sinn árið 1796 með sögukvæða-þýðingum úr þýsku; voru þær hárómantískar að efni og sýna Ijóslega hvaða bókmentastefnu þýðandinn hneigðist að. Hið furðulega og skelfilega heillaði jafn- an huga hans, eins og hann segir sjálfur á einum stað í ritum sínum, og þá ekki síður hið fjarlæga í rúmi og tíma. Miklu merkara heldur en þýðingarnar úr þýsku var safn það af skotskum þjóðkvæðum, Minst- relsy of the Scottish Bards, sem Scott gaf út 1802—1803, með ágætum inngangi og skýringum. Hafði hann unnið að söfnun kvæðanna árum saman og ferðast víða um Skotland í þeim tilgangi; útgáfan er hin vandaðasta í hvívetna og ber fagurt vitni smekkvísi safnandans og víðtækri þekk- ingu hans í þjóðlegum fræðum. Nokkur frumsamin kvæði eru í safninu, ort í anda þjóðkvæðanna; nær skáldið vel blæ fyrir- mynda sinna og krafti. Kvæðasafn þetta átti verðskulduðum vinsældum að fagna og kom honum á bekk með góðskáldum. Scott Ijet nú skamt stórra höggva milli í skáldskapnum. Hann sendi frá sjer hverja Ijóðsöguna á fætur annari, og eru þessar merkastar: The Lay of the Last Minstrel, Marmion og TheLady of thc Lake; hlutu þær sjaldgæfa lýð- hylli. Af hinni fyrstnefndu seldust t. d. fjórtán útgáfur á skömmum tíma. Ekki var það heldur tilviljun ein, að ljóðsögur þessar fjellu í svo frjóa jörð. Deyfð var yfir enskri Ijóðagerð; bar þar mest á merglausri íhygli og andríkissnauðri raunsæi; þar skorti þann eld tilfinninganna, sem er hjarta lýrisks kvekskapar. Sögukvæði Scotts komu eins og lífgandi og svalandi vindur eftir þreytandi lognmolludag. Þar voru nýir strengir snortnir á hörpunni. Kvæðaefnin voru ný- stárleg og hrífandi, frásögnin fjörug og auð- ug að fögrum náttúrulýsingum, bragarhátt- J

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.