Lögrétta - 01.01.1933, Page 33

Lögrétta - 01.01.1933, Page 33
65 LÖGRJETTA 66 Það sem gert er til viðnáms kreppunum, eftir að þær eru skollnar yfir, er í rauninni lítið annað en það sem ástandið knýr til; samdráttur og sparnaður á sem flestum sviðum. Hver hygginn einstaklingur og fyrirtæki verst áföllum af kreppunum með því að draga saman framleiðslu eða neytslu, og hvorttveggja, eftir því sem við á. Aðrir neyðast til hins sama. Samdráttur atvinnu- rekstursins, sem atvinnuleysinu veldur, ei’ ekki annað en eðlilegur og nauðsynlegur mrnaður atvinnnrekstursins til að verjast á- iöllum af kreppunum eftir mætti. Sparnað- urinn, sjálfráður og ósjálfráður (tilneydd- ur), er ekki annað en samdráttur neytend- anna, hvort sem þeir eru neytendur ein- göngu eða hvorttveggja í senn framleiðend- ur og neytendur, til þess einnig að verjast áföllum af kreppunum eftir föngum. Sá er uftur eðlismunurinn á samdrætti atvinnu- J'eksturs og neytslu, að samdráttur atvinnu- reksíursins miðar og verkar til að leysa kreppurnar, en samdráttur neytslunnar verður óhjákvæmilega til að lengja þær. Þjóðir verjast kreppum á sama hátt og einstaklingar, eða, kannske rjettara sagt, eru háðar einstaklingunum um aðgjörðir sínar. Fjárhagsmáttur þeirra er háður fjár- hagsmætti einstaklinganna. En auk þess hefja þær ásókn á hagsmuni annara þjóða ''það gjöra reyndar einstaklingamir líka hver á annars hagsmuni) sjálfum sjer til Ijettis í kreppunum, en öðrum til byrði að sama skapi. Þetta síðasttalda kemur fram í tollstríði og viðskiftahömlum þjóðanna í milli, sem vitanlega eykur erfiðleika krepp- anna þar sem það bitnar á. Allt er þetta einn óslitinn harmleikur og harmkvæla, og er hann í fersku minni á þessum síðustu og verstu tímum. Það er ekki viðunandi eða sæmandi, að eiga þenna óleik yfir höfði sjer á fárra ára Hesti. Öðruvísi getur það þó ekki verið ef ekkert er að gert. Það er því auðsætt, að það a ekki að beina huganum eingöngu að því, hvað hægt er að gjöra til viðnáms kreppum hegar þær dynja yfir, heldur og að hinu, hvað ber að gjöra og hvað hægt er að gjöra H1 varnaðar því, að þær komi. í þessu máli, sem öðrum, er það aðalat- riðið, að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í, að varna því að kreppurnar komi, eða þó a. m. k. að þær verði sem væg- astar. Það gegnir furðu, hvað lítið er irm það hugsað, hvað lítið hefur verið rætt og ritað um það og hvað lítið hefur verið gjört til að fyrirbyggja kreppurnar. Sennilega stafar það af því, hversu mönnum virðast vera ó- Ijósar hinar eiginlegu orsakir þeirra, eða hversu menn greinir á um það, hverjar þær eru. Að líkindum eru mönnum orsakirnar þó ekki eins duldar og látið er. Hitt er líklegra, að hmir mismunandi hagsmunir og hinir ýmsu stjórnmálaflokkar telji sjer ekki henta, að vita og viðurkenna hinar rjettu orsakir. Það er auðskilið mál, að einstakir fram- leiðendur megna litlu eða engu um það, að stöðva offramleiðsluna. Það hefur svo litia þýðingu þótt einn og einn framleiðandi dragi sig í hlje. Það yrði ekki til annars en að aðrir hlypi í skarðið, og hann yrði e. t. v. aðeins ver stæður en aðrir alment. Einstakir framleiðendur gjöra því ekkert, geta ekkert gert til varnaðar kreppunum, heldur hljóta að dragast með þangað til þeir, fyrst einn og emn, síðan meir og minna almennt, mega til að draga saman, eða gefast upp, geta ekki meira. Og alt endar með meira og minna almennu hruni atvinuurekstursins og al- mennri kreppu. Tii þess að halda jafnvægi í atvinnulíf- inu og fyrirbyggja offramleiðsluna, eða a. m. k. að stöðva hana jafnskjótt sem hún segir til sín, hljóta aðgjörðirnar að koma frá almennum ráðstöfunum á einn eða ann- an hátt. Tvent getur einkum komið til greina til að halda í jafnvægi framleiðslumagni og framleiðsluþörf. Annað er það, að setja alls- herjar eftirlitsstjórn yfir heimsframleiðsl- una með valdi til að tempra hana og tak- marka við þörfina. Hitt atriðið er að nota fjármagnið til að halda .framleiðslumagninu við hóf og hæfi þarfarinnar. Um fyrri leiðina þarf í raun og veru ekki að ræða. Hún er óframkvæmanleg svo lengi

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.