Alþýðublaðið - 30.08.1963, Blaðsíða 14
ZE
i i n\
KX£ mj
MINNISBLRÐ
L2L
FLUG
Flugfélag- Islands h.f.
Gullfaxi fer til Glasgow og K-
hafnar kl. 08.00 í dag. Væntan-
Ieg aftur til Rvíkur kl. 22.40 í
kvöld. Skýfaxi fer til London
kl. 12.30 í dag. Væntanleg aftur
til Rvíkur kl. 23.35 í kvöld. Vél
in fer til Bergen, Osló og K-
hafnar kl. 10.00 í fyrramúUð.
Innanlandsflug: í dag er úæt'-
a'ð að fljúga til Akureyrnr >3
ferðir), ísafjarðar, Fagurhóís-
mýrar, Hornafjarðar, Vmeyia
(2 ferðir), Húsavíkur. og Egils-
staða. Á morgun er áætlað að
fljúga íil Akureyrar (2 ferð-
ir). Egilsstaða, ísafjarðar, Sauð
árkróks, Skógarsands og Vm-
eyja (2 ferðir).
Loftleiðir h.f.
Snorri Þorfinnsson er væntan-
legur frá New York kl. 06.00.
Fer til Glasgow og Amster-
dam kl. 07.30. Kemur til baka
frá Amsterdam og Glasgow k.I
23.00. Fer til New York kl. 00.
30. Snorri Sturluson er væntan
legur frá New York kl. 22.00.
Fer til Osló, Khafnar og Ham-
borgar kl. 23.30. í,eifur Eiríks
son er væntanlegur frá Luxem-
borg kl. 24.00. Fer til New
York kl. 01.30.
n
! skíp
Eimskipafélagr fslands h.f.
Bakkafoss fór frá Hjalteyri
29.8 til Vopnafjarðar og Seyð'-
isfjarðar og þaðan til Ardross
an, Belfast, Bromborough, Av
onmouth, Sharpness og Lond-
op. Brúarfoss fór frá New York
28.8 til Rvíkur. Dettifoss fer
frá Dublin 4.9 til New York.
Ffallfoss fer frá Lysekil 29.8
til Khafnar. Goðafoss fór frá
Rvík kl. 15.00 í dag til Rotter-
dam og Hamborgar. Gullfoss
kom til Khafnar 29.8 frá Leith.
Lagarfoss fer frá Keflavík í
kvöld 29.8 til Rvíkur. Mánafoss
kom til Rvíkur 28.8 frá Gufu-
nesi. Reykjafoss kom til Rott-
erdam 28.8 fer þaðan til Rvík-
ur. Selfoss fer frá Rostock 31.8
til Hamborgar. Tröllafoss fór
frá Akureyri 28.8 til Seyðis-
fjarðar, Hull og Hamborgar.
Tungufoss kom til Rvíkur 27.8
frá Stettin.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla fer frá Rvík kl. 18.00 á
morgun til Norðurlanda. Esja
er á Norðurlandshöfnum á aust
urleið. Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21.00 í kvöld til Vmeyja.
Þyrill kom til Seyðisfjarðar • í
gærmorgun frá Weaste. Skjald
breið fer frá Rvík í dag vestur
um land til Akureyrar. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norð
urleið.
Skipadeild S.Í.S.
Hvassafell fór frá Kristian-
eand 27. þ.m. áleiðis til Húsa-
víkur. Arnarfell er á Raufar-
liöfn, fer þaðan til Húsavíkur
og Siglufjarðar. Jökulfell er
væntanlegt til Reyðarfjarða'r
2.9. Dísarfell fer í dag frá
Aabo til Leningrad. Litlafell
losar á Norðurlandshöfnum.
Ilelgafell er í Arkangel, fer
þaðan um 4.9 til Delfzijt í Hol-
landi. Hamrafell átti að fara í
gær frá Batumi til Rvíkur.
Stapafell fer væntanlega 31.
þ.m. frá Reyðarfirði til Weaste
Jöklar h.f.
Drangajökull er í Camden fer
þaðan til Gloucester. Langjök-
ull er í Ventspils fer þaðan til
Hamborgar og Rvílcur. Vatna-
jökull fer frá Hamborg í dag
til Rotterdam og Rvíkur.
Gefin hafa v'é'flð saman í hjóna
band, Ragna Gunnarsdóttir,
Þórðarsonar, bifvélavirkja og
Þorgeir Baldursson Eyþórs-
sonar prentsmiðjustjóra. Ungu'
hjónin tóku sér far til Kaup-
mannáhafnar þar sem Þorgeir
mun stunda nám næstu ár.
□
Minningarspjöld fyrir Innri-
Njarðvíkurkirlcju fást á eftir-
töldum stöðum: Hjá Vilhelm-
í*u Baldvinsdóttur Njarðvíkur-
götu 32 Innri-Njarðvík, Guð-
mundi innbogasyni Hvoli Innri-
Njarðvík og Jóhanna Guð-
mundssyni Klapparstíg 16 Ytri-
Njarðvík.
SÖFN
Minjasafn Reykjavíkur Skúla-
túni 2 er opið alla daga nema
laugardaga kl. 14-16.
Ameríska bókasafni* í Bænda-
höllinni við Hagatorg. Opið ai'la
virka daga nema laugardaga frá
kl. 10-12 og 1-6.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega frá kl. 1.30-3.30.
Landsbókasafnið. Lestrarsalur
er opinn alla virka daga kl.
10-12, 13-19 og 20-22 nema
laugardaga kl. 10-12 og 13-19.
Utlán alla virka daga kl. 13-15.
Bókasafn Dagsbrúnar er opið
föstudaga kl. 8-10 e.h., laugar-
daga kl. 4-7 e.h.
Tæknibókasafn IMSÍ er opið
alla virka daga nema Iaugar-
daga kl. 13-19.
Þjóðminjasafnið er opið dag-
lega frá kl. 1.30-4.
Listasafn ríkisins er opið kl.
1.30-4.
Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74
er opið alla daga í júlí og ágúst
nema laugardaga frá kl. 1.30-4.
Árbæjarsafnið er opið á hverj-
um degi kl. 2-6 nema mánudaga,
á sunnudögum frá kl. 2-7. Veit-
ingar í Dillonshúsi á sama tíma
I LÆKNAR |
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni er opin allan sólar-
hr:ngin. — Nætnrlæknir kl.
18 00-08 00 Sími 15030.
Neyðarvaktin sími 11610 hvern
vii»su uag nema lauga daga
£4 30. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLA9IÐ
Frá lUSY-þingi
Framh. af 13. síffu
Forseti IUSY, Kyi
Nyunt, sagði í setningar
ræðu sinni, að aldrei
hefði IUSY miðað eins
vel áfram og á síðastliðnu
kjörtímabili. í nær
hverju einasta landi eru
starfandi sambönd og fé-
lög, sem eru meðlimir
IUSY. Við megum ekki
láía batnandi veðurlag á
alþjóðavettvangi sljóvga
okkur í baráttunni, sagði
Kyi Nyunt. Öryggi frið-
arins fæst ekki, þótt
jafnaðarmenn sitji að
völdum í nokkrum ríkj-
um heimsins. Öryggi og
friður manna á meðal
verður að grundvallast
réttlæti lýðræðissósíalis-
mans heimsliornanna á
milli. Við getum aldrei
fengið öruggan frið með-
an milljónir manna
svelta og eru ófrjálsir.
Þess vegna er það, að'
IUSY telur, aff baráttan
fyrir friði í heiminum
geti því aðeins skilað góð
um árangri, að hún sé
byggð á hugmyndum og
hugsjónum lýðræðissósía
lismans.
Þá tók einnig til máls
við setningu þingsins A1
bert Carty, aðalritari al-
þjóðasambands jafnaðar
manna. Hann ræddi um
stjórnmálaviðhorfin í Ev
rópu. Hann sagði, að það
væri aðeins tímaspurs-
mál, livenær jafnaðar-
mannaflokkarnir í Bret-
landi og Vestur-Þýzka-
landi Icæmu til valda. Og
þeir, ásamt jafnaðar-
mannaflokkunum á Norð-
urlöndum og Austurríki,
munu reynast þess megn
ugir að gerbreyta allri
Evrópu til hins betra.
Rakel Seweriin bar
þinginu Icveðjur frá al-
í Osló
þjóðasambandi jafnaðar-
kvenna og minnti á, að
það hefði verið' unga
fólki'ð og konurnar, sem
byggðu upp alþjóðasósla
Iismann eftir heimstyrj-
öldina fyrri. Við konur*
ar vitum það, að unga
fólkið fyrst og fremst
heldur áfram baráttunni
fyrir friði og frelsi í
heiminum, sagði frú Se-
weriin. Það er vegna
þess, að alþjóðleg samá-
byrgð er orðin almena
lífsskoðun hinnar nýju
kynslóöar jafnaðar-
manna.
Við setningu þingsins,
ávarpa'ði forsætisráff-
herra Noregs, Einar Ger
hardsen, þingið og verð-
ur í næstu frásögn af
þinginu, sagt frá ræðu
Iians. Öll þingsetniíigin
var, eins og áður segir,
virðuleg og áhrifamikil.
I
Sextugur í dag
Framh. af 10 síðr
þátt í því, með farsælli forystu
sinni um áratugi, að gera Ár-
mann að því stórveldi á sviði ís-
lenzkra íþrótta og líkamsræktar, j
sem raun ber vitni um. Eina í-
þróttagreinin, sem Ármann hafði
ekki á stefnuskrá sinni, var knatt
spyrnan, en þeir Ármenningar
sem áhuga höfðu á þeirri íþrótt,
stunduðu hana á vegum Vals og
þeir Valsmenn sem lögðu fyrir
sig glímu og frjálsar íþróttir —
stunduðu þær í Ármanni. Milli
Ármanns og Vals var því mikil
og góð samvinna á sviði íþrótta
og meðal félaga Vals voru því
margir Ármenningar og í hópi
þeirra, Jens — og bræður hans
þeir Torfi, Friðjón og Bjarni,
sem allir reyndust — og reynast
enn í hópi hinna beztu félaga
Vals.
Það leikur vart á tveim tung-
um, að jafn mikilhæfur og félags
vanur maður og Jens Guðbjörns-
son er, hafi ekki komið víða við
sögu íþróttahreyfingarinnar en í
Ármanni einum. Meðal starfa, er
hann hefur rækt fyrir íþrótta-
hreyfinguna auk forystunnar í Ár-
manni, má nefna, að hánn hefur
nú um áratuga skeið átt sæti í
Olympíunefnd íslands, sem gjald-
keri. Þá var hann í stjórn íþrótta
vallarins (ó Melunum) í 18 ár, og
í Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur
hefur hann átt sæti síðan sú
nefnd tók til starfa, með stofn-
un lýðveldisins. Auk þess á hann
sæt.i í Sambandsráði ÍSÍ, sem
fulltrúi Reykjavíkur. Forseti ótal
þinga íþróttasamtakanna hefur
hann verið oft og mörgum sinn-
um, og farizt það úr hendi svo
sem bezt verður á kosið. Sem
fararstjóri íþróttaflokka til keppni
erlendis m. a. á Olympíuleiki,
hefur hann og verið, og verið þar
sem annars staðar verðugur full-
trúi ísl. æsku, iþróttahreyfingar-
innar og þjóðarinnar í heild.
En hvað sem líður margbætt-
um störfum Jens* Guðbjörnsson-
ar um áratugi, fyrir íþróttahreyf-
inguna í heild, mun þó farsæl
áratuga forysta hans. í Glímufé-
laginu Ármanni, halda nafni hans
hvað lengst á lofti.
Jens er kvæntur Þórveigu S.
Axfjörð, hinni ágætustu konu, og
hefur þeim orðið tveggja dætra
auðið.
Íþróttasíðan sendir Jens Guð-
björnssyni, konu hans og fjöl-
skyldu hugheilar hamingjuóskir
á þessum merku tímamótum um
leið og störfin fyrir land og lýð
á sviði íþróttamála eru þökkuð.
Framh. af 10. síffu
sept. 1951. Nú á hann aðeins eitt
heimsmet eftir, þ. e. í 25 km.
hlaupi, og það er jafnframt elzta
heimsmetið í frjálsum íþróttum.
Þetta sýnir bezt þróun í þess-
ari iþrótt, fyrir 10 árum átti
Zatopek heimsmet í öllum grein
um frá 5 km. og upp úr — og
hafði algjöra yfirburði. Nú eru
ýmsir með betri tíma en hann
í mörgum greinum.
Bill Billie er 29 ára gamall og
hefur oft verið í fremstu röð á
afrekaskrám, en hinir þekktu
landar hans, Murray Halberg og
‘Peter Snell hafa ávallt skyggt á
hann. Það var fyrst í fyrra, sem
hann hóf skipulegar æfingar und
ir leiðsögn hins þekkta þjólfara,
Arthur Lydiard. Beztu tímar
hans til þessa eru 13:29,0 mí’n.
í 3 enskum mílum og 29:22,0
mín í 10 km. hlaupi. Þessi ár-
angur Billie í 20 km. bendir til
þess, að nafn hans eigi eftir að
birtast oftar í fréttum næstu
mánuði, þar sem keppnistímabil
ið á suöurhveli jarðar er rétt að
hefjast.
Á þessu óri búast Norðmenn við
því, að um þrjár milljónir erl.
bíltúrista (ferðamanna, sem ferð-
ast í bílum), muni heimsækja land
þeirra. Reiknað er með því, að
ferðamenn þessir komi í um
milljón bifreiða að heiman frá
sér til Noregs, og spari sér á þann
hátt bílkostnað.
Framli. af 1 síðu
650 og Þórkatla 700
RAUFARHÖFN, 29. ágúst.
Mikil síld hefur borizt hingað
í dag og hafa síldarskip verið að
koma hingað í allan dag frá því
snemma í morgun. Munu hafa
borizt hingað 15—20 þúsund mál
síldar í dag. Sildin er smá1 og hef
ur verið gefizt upp á að salta
hana og fer hún því öll í bræðslu.
Bátarnir hafa einhverjir verið að
kasta í dag.
Hér er nú bezta veður og veiði
horfur góðar. — Guðni.
REYÐARFIRÐI, 29. ágúst.
Engin síld hefur borizt hingað
í dag. Bátarnir hafa í dag verið
að fá eitthvað lítilsháttar af síld
hér úti fyrir og eru menn hér
vongóðir um áframhaldandi síld-
veiðar. Veður er gott, bæði hér
og á miðunum.
Búið er að salta í um 16 þús.
tunnur og rúm 45 þús. mál eru
komin hingað í bræðslu. Á nú
bræðslan eftir um 800 mál í tönk
um óbrædd.
Heyskapartíð hefur verið ágæt
og góð nýting á heyjum. Mikil
atvinna er nú á Reyðarfirði. - G.
NESKAUPSTAÐUR, 29. ágúst.
, Sjö bátar komu hingað með
síld í nótt. Sex þeirra voru með
samtals 3.650 mál og fóru þau í
bræðslu. Einn bátur, Þórkatla,
kom með 700 tunnur síldar, sem
fóru í salt.
Veðrið hér er gott, sólskin og
blíða. í dag fékkst eitthvað af
góðri söltunarsíld í Reyðarfjarð-
ardýpi og veiðiútlit í nótt er sæmi
legt. — Garðar.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Er blaffiff átti tal viff síldar-
leitina á Seyffisfirði í gærkvöldi,
voru allmörg skip aff kasta SA af
Gerpi. Nokkur höfðu þegar til-
kynnt um afla sinn.
Fjöldi skipa var NA og ANA
af Raufarhöfn, og var þar góff
veiði. Veffur var gott á miðunum.