Alþýðublaðið - 30.08.1963, Síða 16
VISTHEIMILIÐ AD EELIDA-
VATNI HÆTT STORFUM
SNEMMA í sumar var leyst
upp vistheimilið að Elliðavatni ogr
það afhent Skógræktarfélagi
Reykjavíkur til varðveizlu. Fólkið,
sem l>ar dvaldizt á vegum Reykja
vikurborgar var flutt að Arnar-
holti, en ríkið sá um að ráðstafa
Ju'í fólki, sem dvaldizt á J>ess veg
mn á Elliðavatni.
Sú hugmynd kom fram, að setja
á stofn barnaheimili á Elliða-
vatni, en það var ekki talið fært
vegna slæmra húsakynna.
Varð það því að ráði, að af-
henda staðinn Skógræktarfélagi
Iteykjavíkur til varðveizlu. Verð-
ur þar staðsett miðstöð fyrir skóg
ræktina og þá sérstaklega með
tilliti til Heiðmerkur.
Eitt af skilyrðunum sem fylgdu
afhendingunni til Skógræktarfé-
lagsins, var, að Æskulýðsráð
Reykjavíkurborgar slcyldi fá að-
gang að Elliðavatni til veiða.
StangveiðiklúbbUr Æskulýðs-
ráðs hefur í sumar notið nokkurs
góðs af þessu. Hafa fjórir hópar
farið upp að Elliðavatni til veiða
og hafa verið um 20 unglingar í
hverjum hópi.
Hins vegar hafa þeir aðeins
mátt veiða á mjög takmörkuðu
svæði og voru þeir ekki alls kost
ar ánægðir með það. Munu nokkr-
ar deilur vera uppi um veiðirétt
f vatntnu og koma þar ýmsir að-
ilar þar við sögu, meðal annars
sumarbústaðaeigendur við vatn-
ið; rafveitan og fleiri.
Er í ráði að kanna nánar veiði-
réttinn í vatninu í vetur, og er
Voiíandi, að niðurstaðan af þ’ú
færi reykvískum unglingum auk-
'in tækifæri til hinnar hollu og á-
gætu stangveiðiíþróttar.
Stangveiðiklúbbur æskulýðs-
ráðs telur nú á annað hundrað
Varað Wð skerfri
aðstob Wð útlönd
Bandaríkjunum, sem fer með mál
er varða aðstoð við erlend ríki,
David BeH, varaði Þ.jóðþingið í
dag alvarlcga við I sambandi við
það, að í síðustu viku minnkaði
Fulitrúadeildin tillögu Kennedys
forseta um aðstoð vxð erlend ríki
verulega.
Bell sagði, að samþykkt Full-
trúadeildarinnar væri mjög alvar-
leg þar eð hún kæmi fram á ;ama
tíma og Sovétstjórnin mundi
sennilega freista þess að auka á-
hrif sín í Afríku og Asíu. Þetta
stafaði af því, að dregið hefði úr
spennu eftir undirritun Moskvu-
samningsins um takmarkað til-
raunabann.
Þar við bætist, sagði Bell, að
deila valdhafanna í Moskvu og
Peking mun leiða til þess, að bæði
Rússar og Kínverjar munu keþp-
ast um að auka áhrif sín í van-
þróuðu ríkjunum. t
Framhald á 3. síðu. '
WASHINGTON 29.8 (NTB-Reut
ær). Forstjóri nefndar þeirrar í
Sáttafundur í
farmannadeilu
SÁTTAFUNDUR var í far-
mannadeilunni í gærkvöldi.
Átti þá sáttasemjari fund
með fulltrúum Félags fram-
reiðslumanna og Félags mat
retðslumanna ásamt fulltrú-
,
um skipafélaganna. I kvöld
ec ráðgerður fundur með
fullírúum háseta og yfir-
manns á kaupskipunum, en
j verkfall hefur verið boðað
f 1. september, hafi samning-
ar ekki náðst fyrir þann
tíma.
meðhmi. Hafa þeir meðal annars
stundað sjóstangaveiði sunnan
Hafnarfjarðar. Hefur sú veiði ver
ið afar vinsæl meðal klúbbfélaga.
í ráði er að stangveiðiklúbbur-
inn fari í veiðiferð í Kleifarvatn
á laugardaginn og eru piltarnir í
Stangveiðiklúbb æskulýðsráðs
beðnir að hafa samband við æsku
lýðsráð.
AMHWtmUMHMMmMMIW
Þurfti aðeins
stærra rúm
(NTB-RB).
Lyndon B. Johnson, vara-
forseti Bandaríkjanna, lét í
Ijós ósk um, að húsgögnin á
þeim tveim hæðum Hótel
Royal í Kaupmannahöfn, er
hann fær til umráða meðan
liann er í Danmörku, yröú
fjarlægð, að því er eitt
Kaupmannahafnarblaðanna
hélt fram síðdegis í dag.
Bandaríska sendiráðið
sagði í tilefni af fréttinni:
Sagan um óánægju varafor-
setans með húsgögnin á Hót-
el Royal er alger misskiln-
ingur.
Sendiráðið skýrði frá því,
að Johnson fengi langt rúm ,
til þess að sofa í vegna þess
hve hann er sérstaklega hár
maður vexti, 1,93 cm.
Sendiráðið sagði ennfrem-
ur, að herbergi varaforset-
ans yrðu búin liúsgögnum
frá öðrum deildum gistihúss
ins. Varaforsetinn væri því
ekki óánægður xneð stíl hús-
gagnanna.
MMUMMMMWW
Rússncska hafrannsóknaskip-
ið Bolus kom til' Reykjavíkur í
gær, og mun vera hér um 3-4
daga. Það hefur undanfarið
verið að rannsóknum í Vestur-
Atlantshafi, en hingað kemur
það frá heimahöfn sinni Kalin-
ingrad (sem áður nefndist
Köningsberg.)
Við áttum þess kost í gær
að ræða stundarkorn við skip-
stjórann og skoða skipið. Það
vakti athygli, að allir yfirmenn
bera geysi skrautlega einkenn-
ingsbúninga, og skýrðist það,
er skipstjói-inn upplýsti, að
formlega heyrði skipið undir
rússneska herflotann, enda þótt
það væri byggt sem hafrann-
sóknaskip. — Við erum eigin-
lega ekki annað en leigubíl-
stjórana fyrir vísindamennina
um borð, förum hvert, sem J>eir
skipa okkur, sagði skipstjórinn,
Boris Kotsegub, miðaldra mað
ur, lágvaxiim og hýrbrosandi.
— Ég er fæddur og uppalinn
suður í Úkraínu, óraveg frá
sjó. En frá barnsaldri dreymdi
mig um hafið, það rann fljót
rétt hjá heimili mínu, en ég
vildi komast á úthafið. Og nú
er ég kominn hingað.
Skipið má heita nýtt, smíð-
að í fyrra í Rostock í Austur-
Þýzkalan(3i, eftir rú^sneskum
teikningum. Það er tæplega
7000 smálestir að stærð, 112
metrar á lengd, 14 metrar á
breidd og ristir G metra. Það
virðist mjög nýtízkulegt og allt
er fágað og fínt. Víða eru
myndir af sovézkum leiðtogum
og á áberandi stað er brjóst-
mynd af Karl Marx.
Á skipinu er 80 manna áhöfn
og 30 vísindamenn, veðurfræð-
iugar, haffræðingar og efna-
fræðingar. Við spurðum hvort
nokkuð væri fengist við rann-
sóknir á fiskgöngum, en skip-
stjóri svaraði því neitandi.
— Það næsta, sem við kom-
umst að því, er þegar fiskur
er á borðum! Rannsóknirnar
beinast einkum að veðurfari
og athugunum á hafinu sjálfu.
í sumar höfum við verið við
rannsóknir á vestur hluta At-
lantshafs og verðum nú að
rannsóknum við ísland og norð
ur um. Að sjálfsögðu geta ýms-
ar niðurstöður athuganna vís-
indamanna á skV'pinu kúmið
fiskimönnum til góða. En veð-
urathuganirnar eru mikllvæg-
astar.
Það eru margar konur á skip
inu og við spyrjum hvað þær
vinni.
— Þær eru bæði meðal á-
hafnarinnar og npkkrar eru
vísindakonur. Flestar vinna í
eldhúsi og matsal. Konurnar
eru mjög duglegar og taka
starfið mjög alvarlega, — það
er varla hægt að spjalla við
þær að gagni sumar, segir
skipstjórinn og 'hlær.
Skipstjórinn fer að sýna
okkur skipið. Við komum í
rannsóknarstofurnar. Veðurat-
hugunarstofan er vel búin
ýmsum tækjum, og efnarann-
sóknarstofan er eins og efna-
rannsóknarstofur eiga að vera.
— Það getur verlð að alffr
skipstjórar lofi skip sitt, segir
skipstjórinn, — en ég ;%st ekki
annað sagt en að öll aðstaða í
þessu skipi sé góð. Áhöfnin
sefur í tveggja manna klef-
um, fullkomin lofíræsting er
í öllu skipinu, og þótt lengi sé
verið úti í einu þá eru hér
ýmis þægindi, sem auðvelda
mönnum útivistina. Við segjum
á skipinu að hér séum við
heima, en í landi gestir.
Skipstjórinn fer svo að tala
um Iönd sem hann hefur heim-
sótt og getur ekki orða bundizt
yfir þeirri sjón, er ísland reis
úr sæ með jöklum og bláum
fjöilum.
— Ég hef varla séð stórkost-
legri sýn en ísland frá hafi.
Það var yfirþyrmandi. Og ég
fékk strax þá hugmynd, að sú
þjóð, er hér byggi hlyti að
vera mannleg og sterk. í vor
komum við til Bermudaeyja.
Þar er landslag suðrænt og
ó venjulegt fyrir okkur, en mér
finnst meira til um ísland. Hér
ríkir norðrið í allri s'nni tign.
Og siglingin inn Faxaflóa var
dásamleg. Víð öll þessi góðu
áhrif bættist svo það, að fyrstu
orðin sem ég heyrði íslendinga
segja er ég sté á Iand var „Vel
komnir félagar“ sagt ó i*ússn-
esku.
Eftir þessa fögrn ræðu er
hæfilegt að skála í vodka. En
skipstjóri heldur áfram að lofa
ísland og ekki sizt að hafa
fengið leyfi til þess að taka
hér vistir og vatn áður en hald
ið er í frekari rannsóknir um
Noröurhöf.