19. júní - 01.05.1919, Blaðsíða 7
um, ef það er soðið áður V2 klt. í vatni,
sem álún er uppleyst í. Venjulega eru höfð
75 gr. af álúni1) móti 500 gr. af litunarefnum
og 16—18 lítrum af vatni. í álúni er efni sem
sameinast bæði ull, bómull og flestum litar-
efnum. Er einskonar samtenging milli þess
sem lita á og litarins.
Innlendar litunarplöntnr.
það má lita bæði úr nýjum og þurkuðum
plöntum. Þegar litað er úr þeim nýjum, mega
þær ekki geymast tneira en einn til tvo daga
og ekki liggja þétt saman. Áður en þær eru
látnar í litunarpottinn, eru þær hreínsaðar
og skornar smátt niður. Plöntur, sem á að
geyma, verður að þurka fljótt og vel í for-
sælu, gott að breiða þær um þurkloft. Þær
eiga að halda sínum græna lit, og mega ekki
setjast í bing, fyr en þær eru vel þurrar. Lit-
unarplöntum er best að safna áður en þær
blómstra, seint í júní og snemma í júlímán-
uði. Það þarf rníkið meira að þyngd af nýj-
um en þurkuðum plöntum, t. d. þurfa 2—3
kg. af nýju birkilaufi móti 1 kg. af því
þurkuðu.
1) 1 kúfFull teskeið af steyttu álúni = 8 gr.
7