19. júní - 01.05.1919, Page 13
Krappið er lagt í bleyti daginn áður. Volgu
vatni er bætt á það, og bandið látið í þegar
lögurinn er orðinn vel jafn. Litnum er hald-
ið við suðu 1 klt. Bandið tekið upp úr og
þvegið vel þegar Iögurinn er orðinn kaldur.
Ljósari litur fæst með því að lita aftur í
þessum legi, og dekkri ef 4 gr. af blásteini
eru uppleyst í honum og bandið soðið í 10
mínútur.
Nr. 2. Iíleikrantt.
500 gr. band, 32 gr. steyttur, rauður vín-
steinn, 62 gr. álún og 62 gr. krap.1)
Litunaraðferðin eins og við nr. 1.
Nr. 3. Knrmoisinrnutt.
500 gr. band, 62 gr. álún, 65 gr. steyttur
hvítur vínsteinn, 31 gr. línsterkja.
Þegar vatnið sýður er álúnið, vínsteinninn
og sterkjan, sem áður er hrærð út í köldu
vatni, látin í það. Bandið er soðið í þessum
legi V2 klt. og undið upp.
23. gr. fínsteytt Cochenille2), 23 gr. sterkja,
23 gr. hvítur vínsteinn.
Nýtt vatn er látið í pottinn og Cochenil-
urnar, sem legið hafa í bleyti, eru soðnar í
því i J/4 klt., þá er vínsteinninn og sterkjan
1) 1 kúffull matskeið = 25 gr.
2) 1 kúffull matskeið = 20 gr.
13