19. júní - 01.05.1919, Side 24
F. Blííir litir.
Nr. 33. Indigó litur.
500 gr. band, 32 gr. Indigó.
Nýlt, hreint þvag, er látið standa í 3—4
sólarhringa á hlýjum stað í vel tilbyrgðu í-
láti, þá er helt ofan af því í tréílátið, sem^
það á að standa í meðan litað er.
Vel steytt indigó er látið í léreftspoka, og
hann látinn liggja 3—4 daga í litunarílátinu,
kreístur og nuddaður tvisvar á dag.
Daglega er lögurinn hitaður upp í 35° C.
með því að láta ílátið standa í sjóðandi vatni,
og allt af verður lögurinn að vera volgnr.
Eftir 3—4 daga er liturinn reyndur með
þvi að láta ullarlagð liggja dálitla stund í leg-
inum, og kreista hann svo vel upp úr hon-
um, hafi lagðurinn þá grænleitan blæ, sem
verður blár við áhrif loftsins, er liturinn hæfi-
lega sterkur, annars verður lögurinn að standa
lengur áður en farið er að lita. Pað sem lita á
er þá látið í löginn, og látið liggja til næsta dags,
þá er það kreist vel og undið upp, látið hanga
uppi 1 klt., á meðan lögurinn er hitaður eins
og áður er sagt. Þetla er gjört daglega þang-
að til liturinn er nægilega dökkur, litast fyr
sé það gert tvisvar á dag.
þegai búið er að lita, er bandið fyrst þveg-
ið upp úr þvagi, siðan úr mörgum sápu-
24