Alþýðublaðið - 08.09.1963, Síða 4
heildsölum og samvinnufyrir-
tækjum, telja þetta nýja kerfi
skynsamlegt og réttlátt. Sú er
venja innkaupastofnana að
bjóða út sem mest af þeim
vörukaupum, sem þær annast.
Þannig fá öll verzlunarfyrir-
tæki sanngjarnt tækifæri til
að ná viðskiptunum, ef þau
geta boðið betri kjör en aðr-
ir. Kemur þá ekki til, að ein-
stakir aðilar njóti sérréttinda
og fái að sitja að miklum við-
skiptum við opinbera aðila, —
hvort sem þau viðskipti eru
hagstæð fyrir þjóðina eða ekki.
Einstök dæmi sýna bezt, —
hvernig innkaupastofnanir
spara skattgreiðendum fé. Áð
ur fyrr keyptu ríkið, Reykja-
vík og aðrir kaupstaðir asfalt
hver fyrir sig. Þegar Innkaupa
stofnun ríkisins gerði inn-
kaupin á einu bretti, var magn-
ið svo mikið, að söluaðilar er-
Iendis kepptust um það, og
verð fékkst þegar lækkað um
15%.
Annað dæmi eru röntgen-
tæki fyrir Landspítalann. Með
þvi að bjoða ut kaup
gat Innkaupastofnunin fengið
15% afslátt af fob-verði og
sparaði þarmeð sjúkrahúsinu
285.0Ö9 krónur.
Þannig mætti lengi tclja.
Innkaupastofnanir hafa skapað
nýtt og fast samband milli
opinberra aðila og þeirra fyr-
irtækja, sem við þau verzla.
Meira og meira af viðskiptum
er ráðið á hreinum samkeppn-
isgrundvelli, þannig, að keypt
er af þeim, sem gerir hag-
stæðast boð. Jafnframt spara
opinber fyrirtæki fé og fyrir-
höfn, og peningar skattgreið-
enda nýtast betur en áður.
Pétur Pétursson tók við
stjórn Innkaupastofnunar rík-
isins 1959, og hefur stjórnað
henni af miklum dugnaði, —
þannig, að umsetning henuar
hefur rúmlega tífaldast síðan.
Skipulögð' innkaupastarf-
senii er ein þeirra umbóta á
opinbernm rekstri, sem hafa
verið gerðar á síðari árum, og
skattgreiðendur geta verið
mjög- ánægöir meðs
Langt er síðan hafizt var
handa um undirbúning heims-
sýningarinnar, sem lial'din verð
ur á næsta ári. Hnattlíkanið,
sem við sjáum hér á myndinni
hefur vakið mjög mikla at-
hygli. Það er kallað „Unisp-
here“, og er byggt úr ryðfríu
stáli, jafn hátt 32 hæða húsi.
Sýningin Riun> hefjast 22. apríl
1964 í New York.
ingadeilð
í Höfn
Hætta er á að danski Verkfræði
háskólinn verði að draga saman
seglin vegna hins óópinbera on
þó áhrifamikla verkbanns sem hef
ur orsakazt vegna samningsslita
milli fjármálaráðuneytisins og
danska verkfræðingasambandsins.
Þegar nýstúdentar voru boðn
ir velkomnir í ár, sagði skólastjór
inn, Eggert Knuth Winterfeldt:
Mér þykir leitt að þurfa að segja
ykkur dálítið mjög alvarlegt, en
vinnan hér getur orðið svo erflð
að það er eins gott að þið fáíð að
að vita eins og er strax.
Rektor sagði að verkbannið
mylndr smám saman koma illa
niður á öllu þjóðfélaginu og valda
miklum truflunum_ en fyrst kæml
það niður á háskólanum. í dag
eru 18% a£ aðstoðarkennarastöð
unum lausar og eftir 2-3 mánuði
verður fjórðahver staða laus.
Það er einnig allt útlit fyrir
það, sagði rektor, að sú stækk-
un ,sem var áætluð .næsta ár, muni
ekki koma til framkvæmda. Véla
deildin í Gladsaxe mun verða lok
uð fyrir nýjum nemendum, þar
sem ljúka þarf við að kenna þeim
sem þegar eru byrjaðir. Nemend
ur í öðrum deildum verða að
sætta sig við að hluti af kennslu
áætluninni fellur niður og. þjón
. ustan aí skólans hálfu breytist
ífrá því sem áður var.
Fyrsta sýning Jes
Þorsteinssonar
JES EINAR Þorsteinsson
opnaði málverkasýningu í Ás
mundarsal í gærkvöldi. Hún
er opin kl. 14.00—22.00 dag
til 15. sept. Á sýning-
unni eru 27 olíumálverk, 10
vatnsl'itamyndir og fjöldi
blek og blýantsteikninga. —
Verkin eru öll gerð á árunum
1958—63. Þetta er fyrsta sýn
ing Iistamannsins.
Jes er fæddur og uppal
inn í Vestmannaeyjum til 7
ára aldurs. Þá flutti hann
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur og lauk þar
stúdentsprófi árið 1954. Síð
an hefur hann dvalið í
Frakklandi og stundað þar
nám í málaralist og húsagerð
arlist.
AUan tímann, sem Jes átti
lieima I Reykjavík tók hann
SVANAVATNIÐ
STJÖRNUBÍÓ sýnir um þess
ar mundir á sjö sýningum rúss
nesku verðlaunamyndina
„Svanavatnið".
Þetta er balletmynd í litum
og hlaut hún verðlaun á alþjóð
legri kvikmyndahátíð í Kara-
chi. Tónlistin í myndinni er
eftir Tschaikovski. Leikflokkur
og hljómsveit Bolsojleikhúss-
ins í Moskvu aðstoða.
Aðalhlutverkin í myndinni
leika Maja Plisetskaja og
Nlkolaj Fadejetsjev.
þátt í námskeiðum í Hand-
íða- og myndlistaskólanum í
teikningu og málaralist. Á
námsárunum erlendis hefur
hann farið í skólaleyfunum
í námsferðir til Madrid, Fen
eyja, Florenz og Rómar.
Eins og gefur að skilja þá
liefur Jes haft góð tækifæri
til aö fylgjast með þróun
málaralistar í París. Mál-
verk hans gefa það vel til
kynna. Þroskaferill sjálfs
listamannsins síðustu fimm
árin eru frá naturalistískum
myndum til tachisma, sem á
góðri ísl. má kalla slettu
stefnuna. Þó sézt gömlu
stefnunni stundum bregða
fyrir í nýju myndunum.
Flest listaverkin á sýning-
unni eru frá þessu ári og
gerð erlendis. 10 þeirra gerði
hann erlendis í vor og síðan
hann kom heim hefur hann
málað 4 olíumálverk.
Á myndinni sjáum við Jes
Einar fyrir framan olíumál-
verk, sem hann gerði hér
heima í sumár, og nefnir
„Iðan”.
Mayja Plisetskaja
SÍÐASTLIÐINN föstudag
birti Alþýðublaðið grein eftir
Pétur Pétursson forstjóra, þar
sem fjallað var um opinbera
} innkaupastarfsemi. — Ræddi
hanu mál, sem í fyrstu kann
að virðast fjarskylt öllum al-
menningi, en snertir þó hvern
skattgreiöanda. Sérstök inn-
kaupastarfsemi ríkis og bæjar
er viðleitni til að fara vel með
almannafé og fá sem mest
fyrír þaö.
Hugmyndin um opinberar
innkaupastofnanir er gamalt
baráttumáí Alþýðuflokksins,
eitt þeirra atriða úr raunhæfri
jaínaðarstefnu, sem hefur ver-
ið framkvæmt þegjandi og
hljóðalaust og hefur unnið
stuðning allra aðila. Ráöamenn
Reykjavíkurbæjar hafa skilið
þetta mal og komið upp slíkri
starfsemi, og ríkið setti á fót
• Innkaupaslofnun sina fyrir
allmörgum árum. Tók Finnur
; hcitinn Jónsson að sér að
býggja hana upp.
Athyglisvert er, að verzlun-
armenn, bæði þeir, sem stjórna
4 8. sept. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ