Alþýðublaðið - 01.12.1963, Page 11

Alþýðublaðið - 01.12.1963, Page 11
Frá ársþingi Frjálsíþrótíasambands íslands: Unglingakeppnin talinn athyglisverður viðburður EINS og skýrt hefur verið frá hér á Íþróttasíðunni var ársþing- Frjálsíþróttasambands íslands haldið um síðustu helgi. Töluverð- ar xunræður urðu um hin miklu vandamál, sem FRÍ á við að etja, en fjárskortur háir starfseminni mikið. Eitt var það, sem allir fögnuðu á þinginu, er þar átt við Ungl- ingakeppnina sem FRÍ efndi til á siðasta sumri. Tókst keppni þessi hið bezta og á mótinu komu fram margir ungir og efnilegir piltar og stúlkur, sem eru vænleg til mik- illa afreka í framtíðinni, ef nægi lega verður hugsað fyrir verkefn um. í skýrslu stjórnar var farið 1 nokkrum orðum um keppni þessa. Við birtum hér á eftir kafla þá í ársskýrslunni, þar sem þetta mál ; er tekið til meðferðar. : Samkvæmt ákvörðun sl. ársþings FRÍ skyldi komið á landskeppni ! unglinga, þar sem fjórir beztu ■ skyldu keppa í hverri grein. Mót þetta fór fram í Reykjavík dag- ana 24.-25. ágúst. Árangur af þess ari keppni má telja einn athygl- isverðasta viðburðinn í frjáls- íþróttum í ár. Á þessu móti kepptu um 60 unglingar og greiddi FRÍ ferðakostnað utanbæj- arunglinga í ákveðnu hlutfalli við j getu þeirra fyrir mótið. í hófi ; sem haldið var eftir keppnina fyr- ir þátttakendur, fararstjóra, þjálf- ara, starfsmenn mótsins og aðra gesti, kom greinilega fram á- nægja manna með árangur og af- rek unglinganna. Var stjórn FRÍ einnig bent á að hentugra mundi vera áð greiða jafnt til þátttak- enda utan af landi til að forðast allt rnisræmi og óánægju utan- bæjarþátttakenda. Leggur stjórn FRÍ áherzlu á, að svona Ungl ingakeppni fari fram árlega og að vanda beri til mótsins. Eru sam- bandsaðilar hvattir til að senda laganefnd FRÍ árangur sveitafé- laga sinna beztu unglinga fyrir þann tímafrest, sem settur er hverju. sinni og auðvelda þannig framkvæmdaraðilum keppninnar allan undirbúning. FRÍ veitti þeim Kjartani Guðjónssyni, KR og Sigríði Sigurðardóttur ÍR, bik- ara fyrir flest unnin stig í pilta og stúlknagreinum. Sigríður Sig- urðardóttir, ÍR setti 3 íslandsmet á mótinu, í 200 m. hl., 80 m. grindahl. og langstökki. Þá settu þeir Erlendur Valdimarsson ÍR og Sigurður Hjörleifsson HSH sveinamet í kúluvarpi og> þrístökki. FJOLMENNT ÁRSÞING KSI Stjórn FRI starfsárið 1963 til 1964. Fremri röð talin frá vinstri: Björn Vilmundarson, Ingi Þorsteinsson, formaður og Þorbjörn Péturs- son. Aftari röð, Öm Eiðsson, Jón M. Guðmundsson og Svavar Markús- son. Á myndina vantar Hökuld Goða Karlsson. i STUTW MAU j ★ Chile og Argentína áttu að Ieika landsleik í knattspyrnu á dögunum í Santiago. Gestirnir til- kynntu unglingal'andslið og Chile menn urði svo móðgaðir, að þeir hættu við allt saman og öllum samskiptum landanna á knatt- spyrnusviðinu var slitið. ★ „Ég hef aldrei séð knatt- spyrnukappleik og aldrei lesið i- þróttaskrif dagblaðanna" sagði portúgalskur hirðir, sem nýlega vann sem svarar til 3 millj. ísl. kr. í getraunum. Það er hel'mingi meira en hann hefur afiað sér með erfiðri vinnu í 35 ár. ÁRSÞING Knattspyrnusam- bands íslands (KSÍ) var háð í húsi Slysavarnafélagsins um sl. helgi. Þetta ársþing var eitt hið fjölmennasta er um getur í sögu sambandsins. Mættir voru milli 80 og 90 manns til þings. Foi-maður KSÍ, Björgvin Schram, stórkaup- maður, setti þingið og bauð full- trúa og gesti velkomna. Þingfor- seti var kjörinn Einar Björnsson form. KRR, en til vara Einar J. Ólafsson frá Akranesi. Þingritari var kjörinn Hannes Þ. Sigurðsson. Fráfarandi stjórn lagði fram ýt- arlega skýrslu um störf sín og nefnda á hennar vegum á liðnu starfsári. Formaður fylgdi skýrsl- unni úr hlaði með ræðu. Kvað hann starfið aldrei hafa verið meira en á liðnu starfsári og voru raunar takmörk fyrir því, hve miklu starfi stjórnarmeðlimir gætu annað í frístundum sínum frá daglegum störfum. Væri KSÍ eina knattspyrnusambandið í Evrópu, sem ekki hefði launað starfsfólk til að annast daglegan rekstur. Þá rakti formaður afskipti stjórnar KSÍ af svonefndu Siglufjarðar- máli. Björgvin Schram ræddi og. um hið nýja fyrirkomulag á fram- kvæmd íslandsmóta, þ. e. að fram kvæmdin var á árinu í höndum mótanefndar KSÍ. Kvað hann það fyrirkomulag hafa reynzt vel og væri þar fyrir að þakka ágætu starfi mótanefndannanna. Þá ræddi formaður um landsleiki á árinu og þjálfun landsliðsins, — Kvað hann mjög erfitt að koma á samæfingum, enda vafasamt hvaða gagn væri að slíkum samæfingum með því sniði, er tíðkazt liefur hér. Eðlilegra væri að safna mönn um saman til dvalar í æfingamið- stöð um nokkurra daga skeið, en það væri ekki framkvæmanlegt sökum þess, að óheimilt væri sam- kvæmt áhugamannareglum ÍSÍ að bæta mönnum það vinnutap, er slík dvöl í æfingabúðum hefði í för með sér. Sagði Björgvin Sehram, að KSÍ væri eina knatt- spymusambandið í Evrópu, sem ekki væri heimilt að bæta mönn- um vinnutap vegna æfinga lands- liðs og landsleikja. Sú hugmynd, að menn væru að þessu eingöngu af ást og áhuga á íþróttinni væri úrelt og brcyttir tímar krefðust nýrra úrræða. Um landsleiki á næsta ári sagði form., að ákveð- ið væri að lcika við Finna í ág- úst nk. Miklar líkur væru fyrir leik við Skota 27. júlí og loks stæðu samningar yfir um leik við Bermuda. Loks - ræddi formaður um þjálfaranámskeið. Sagðist hann harma það, hversu lítinn áhuga spyrnumót. Var frumvarp milU máli og hvatti menn til nýrra á- taka á þessu mjög svo mikilvæga sviði. Gjaldkeri KSÍ lagði fram reikn- inga sambandsins. Stendur hagur KSÍ nú nokkuð traustum fótum. Rekstrarafgangur á starfsárinu varð kr. 76 þús. Nokkrar umræð- ur urðu um skýrslu stjórnar og reikninga. Voru allir ræðumenn á einu máli um, að starf stjórnar- innar hefði verið mikið og ár- angursríkt og bæri að þakka henni störfin. Á þinginu var lagt fram frumvarp að reglugerð um knatt- menn hefðu sýnt þessu þinganefndarinnar samþykkt með örfáum breytingum. Er þessi nýja reglugerð um knattspyrnumót á margan hátt betri og fullkomnari en áður og verður vafalaust til að draga úr kærumálum um lítil- fjörleg formsatriði. Björgvin Schram var endur- kjörinn formaður KSÍ og sömu- leiðis þeir þrir meðstjórnendur, sem ganga áttu úr stjórn. í stjóm sambandsins eru því auk form. þeir Guðm. Sveinbjörnsson, Axel Einarsson, Ragnar Lárusson, Sveinn Zoega, Jón Magnússon og Ingvar Pálsson. Körfubolti annað kvöld Á morgun mánudag kl. 8,15 heldur Meistaramót Reykjavíkur í körfuknattleik áfram að Háloga- landi. Þá leika Ármann (b) og ÍR (a) í 3. fl. KR og Ármann í 2, flokki og ÍR og KFR i mfl. karla. Brunaútsalan í Breiðfirðingabúð heldur áfram á morgun og þriðjudag. — Opið frá kl. 12 — 5. TÆKIFÆRISVERÐ: Drengja- og unglínga- för á kr. 200.00. til kr. 500.00. Fatnaður og efni á mjög lágu verði. Síðustu dagar. — Aukinn afsláttur. Látið ekki happ úr hendi sleppa TAKIÐ FTIR ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 1. des. 1963 |_1 I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.