Alþýðublaðið - 22.12.1963, Side 1
\EMmX£)
árg. — Sunudagur 22. desember 1963 — 267. tbl.
MHMHMHHMMIMMMHHII
Jólaskemmtanir hafa að
undanförnu farið fram í
barna- og gagnfræSaskólun-
um. Hafa þá hinir listfeng-
ustu í hverjum skóla keppsit
um að gera skólastofumar
sem fegurstar. Myndir eru
teiknaðar á töflur, stofumar
skreyttar með íitsterkum
pappír og jafnvel era búin
til jólahús og kirkjur. Þessi
mynd er tekin í gagnfræða-
skólanum í Kópavogi,
VERÐUR ENGINN
RiÓMI UM JÓLIN?
Reykjavík, 21. des- EG.
t morgun hófst vinna með eðli-
iegum hætti hér í borginni að
verkföllunum loknum. Ekki var þó
í dag öllum verkföllum enn lokið.
Samningar hafa ekki tekizt við
Trésmiðafélag Reykjavíkur, en tré
smiðir hafa verið í verkfalli síðan
12. þ. m. Á sunnudag vérður fund-
ur í Trésmiðafélaginu og verða
kjaramálin þar til umræðu.
Samningar hafa ekki tekist við
mjólkurfræðinga- Þeir héldu fél-
agsfund í kvöld og felldu samkomu
lagið sem náðist milli samstarfs-
nefndar verkalýðsfélaganna og at-
vinnurekenda. Sigurður Runólfs-
son formaður Mjólkurfræðinga-
félagsins sagði að ekki kæmi þar
til óánægja með 15 prósentin, held
ur hitt að ýmsum sérmálum stétt-
arinnar hefur ekki verið sinnt.
Mjólkurfræðingar hafa ekki lagt
niður vinnu að öllu leyti, því að
þeir vinna' þau störf,. sem vinna
þarf í sambandi við vinnslu neyzlu
mjólkur. Ef verkfall þeirra leysist
ekki fyrir jólin verður enginn
rjömi á boðstólum, né heldur
skyr.
Þá hafa samningar ekki enn t<j&
izt við málarafélagið,’ en það hef-
ur ekki "boðað verkfall.
Samningar við flest onnur félög
en þau, sem hér að á undan eru
talin, voru undirritaðir um kl. 5
í raorgun, strax að afifknum sátta-
fundunum.
fSFIRÐSNGAR
FÁ SJUKRAVÉL
Isafirði, 21. des.
BS-HP.
í DAG er mollukafald hér á
tsafirði. Upp á síðkastið hafa afla-
brögð verið sæmileer, en stéttar-
félögin á Vestfjörðum hafa ekki
verið í verkfalli að undanförnu.
Þó var orðið þröngt um ýmsar
nauðsynjar hér, einkum kaffi og
kartöflur. Rjómi er venjulega
fluttur hingað frá Akureyri, en að
þessu sinni hefur ekki tekizt að fá
hann hingað, og eru litlar likur á,
að það verði fyrir jól.
Olía til húshitunar var að ganga
til þurrðar, en áður en verkföll-
unum var aflétt, var búið að fá
undanþágu fyrir Bláfell, skip Olíu-
félagsins, sem hingað kom í gær.
Einnig kom bátur með póst til
ísafjarðar í gær. Hingað var flog-
Stðl 100 lítrum
ðf benzíntðnk
Reykjavík, 21. des____ÁG.
í NÓTT var stolið 100 lítrum af
benzini af tank, sem Hitaveitan
hefur hjá íþróttasvæðinu í Laugar
dal. Til aö geta þetta varð þjóf-
nrinn fyrst að brjótast inn í kjall-
ara íþróttabyggingarinnar, en þar
er rofi fyrir tankinn. Þá varð hann
einnig að brjóta upp lás á tankn-
um sjálfum. Auk þess hafði þjóf-
urinn tekið peruna úr tanknum til
að honum yrði síður veitt eftir-
tekt. [
Máí þetta er óupplýst, en hver
sá, sem orðið hefur var við manna
ferðir á þessum stað I nótt, er
beðinn að gera Iögreglunnl við-
vart.
ið af og til frá Keflavík, meðaa
verkfallið stóð, því að Flugfélag
íslands átti benzínbirgðir hér á
ísafirði. Ennfremur hélt Björa
Pálsson uppi flugi hér þá daga.
Á bæjarstjómarfundi sl. mið
vikudag var samþykkt bæjar-
ábyrgð, sem nemur allt að 1.5
Framh. á 4. síðu
VMMMWMmMMMmMHWIM
ATKVÆÐI
GREIDD í
NESKAUP- *
STAÐ
Neskaupstað, 21. des. — GÁ-HP.
Á fundi hjá Verkalýðsfélagí
Norðfirðinga, sem haldinn er £
dag, verða greidd atkvæðl unt
samkomulagið í kjaradeilunni og
hvort verkfallinu skuli aflýst. Life-
legt þykir, að gengið verði ftð 15
% kauphækkuninni.
Gerðir verða út þrír bátar frá
Neskaupstað í vetur, Stefán Ben.
og Hafþór, sem Nesútgerðin á, en
auk þess hafa Nesútgerðin og
Síldarvinnslan tekið Gullfaxa á
leigu. I
Vegurinn yfir Oddsskarð er nú
fær. i;
Reykjavík, 21. des. — EG.
Á sérstökum aukafundi neðrl
deildar Alþingis í dag, var tekið
til 3. umræðu frumvarp um Kf-
eyrissjóð bamakennara. Frum-
varpið var samþykkt og afgreltt
til ríkisstjórnarinnar sem lög. frá
Alþingi. 11
mm&m
EIMPIP
Á MÁNUDAG
ALÞÝÐUBI.AÐIÐ kemur út á morgun, mánudag, sem er Þor-
láksmessa. Auglýsendum -skal bent á, að auglýsingaskrifstofa
blaðsins verður opin frá kl. 9-12 I fyrramálið. AUGLÝSINGA-
SÍMINN ER 14-90«.
Aftur
benzin
ÞEGAR í gærmorgun voru
miklar bílaraðir fyrir fram
an flestar benzínstöðvar í
Reykjavík. Sumir urðu að
láta draga bíla sína þangað,
en aðrir komu með ílát
Annars er það mál manna,
að þó nokkuð lát hafi oröiö
á bifreiðaumferð í Rvík
eftir að verkfallið hófst, hafi
hun verið að aukast aftur,
enda fengu æ fleiri undan-
þágur.