Alþýðublaðið - 22.12.1963, Side 8
Gerið svo vel
og lítið inn á Baðstofu'
loftið í Bókaverzlun
ísafoldar.
Þar fáið þér úrval af
erlendum bókum:
Enskum — þýzkum —
norskum — dönskum og
sænskum.
M. a. Alfræðiorðabókina
Sesam í 10 fallegum
bindum fyrir aðeins
kr. 640,00
Eieinig Kultur
Historssk Leksi-
kon í 4 hindum og
Music Leksikon
í 2 bindum.
Kliíisiir h^oliir
„ÞAÐ FER MILLJÚN I VASKINN''
Reylcjavík, 18. des. - HP
HÉR á landi er bókaútgáfa og bók-
sala að jafnaði langmest síðustu
mánuði ársins, einkum í nóvem-
ber og desember. Þessu fylgja
miklar annir í prentsmiðjum,
bókabúðum og á öðrum þeim stöð-
um, þar sem bókin kemur við á
leið sinni til kaupandans. í verk-
fallinu að undanförnu hafa verzl-
unarmenn, prentarar og bókbind-
arar tekið þátt, og má því gera
ráð fyrir, að marga fýsi að frétta.
hvaða áhrif þessi víðtæku verk-
föll hafa haft á bókaútgáfu og bók-
sölu að þessu sinni. Alþýðublaðið
hefur snúið sér til þriggja bóka-
útgefenda og þriggja bóksala og
beðið þá að segja sitt álit, og fara
svör þeirra hér á eftir:
Fyrst áttum við tal við Guð-
mund Jakobsson, framkvæmda-
stjóra og eiganda Ægisútgáfunnar.
— Það fer ein milljón í vask-
irín, sagði hann strax. Mér sýnist,
að það hafi lokazt inni hjá mér
upp undir 5000 eintök, sem aðeins
var eftir að binda og ég náði ekki
út, áður en bókbindarar hófu verk-
fallið. Og ég held, að óhætt sé að
telja nettóverð þessara bóka um
eina milljón, eins og ég sagði áð-
an. Það var búið að binda tals-
vert, og ég hefði sloppið alveg
með mínar bækur, ef ekkert hefði
orðið úr fyrra verkfallinu.
— Hvaða bækur eru það, sem
þú situr inni með?
— Það er fyrst og fremst bók
Sigurðar Hreiðars, „Alltaf má fá
annað skip”. Það er ekki búið að
binda nema hálft upplagið af
henni. Og svo munu það vera um
30% af upplagi bókanna „Þér að
segja” eftir Stefán Jónsson, frótta
mann og „Undir fönn” eftir Jónas
Árnason, sem ekki er búið að
binda. Sem sagt: þriðjungurinn af
þeim hvorri fyrir sig er eftir. Auk
þess er helmingurinn enn óbund-
inn af „Undir Garðskagavita’ eftir
Gunnar M. Magnúss og „Ást og
örlög” eftir Jón Vagn Jónsson.
— Þetta er mikið tap fyrir þig?
— Já, það má segja það, en þó
er enn of snemmt að dæma um,
hvort þetta er hreint tjón. Það
fer eftir því, hve verkföllin Ieys-
ast fljótt og hve salan verður mikil
síðustu dagana.
Næst spurðum við Pétur Ólafs-
son í ísafold um ástandið þar.
— Við förum þannig út úr þessu,
að það verður ekki ein einasta bók
af útgáfubókum ísafoldar í ár eft-
ir hjá forlaginu, þegar verkfallinu
lýkur, því að við höfum engar
pantanir getað afgreitt síðustu
daga.
— Hvaða bók verður harðast úti
hjá ykkur?
— Ætli það sé ekki Kennedy-
bókin. Af væntanlegum bókum frá
okkur hefur held ég ekki verið
spurt jafnmikið um neina. Auðvit-
að var það ákaflega mi jaí'nt hve
vel bækurnar voru á veg komnar
og hve mikið var búið að binda
af, þeim, þegar verkfallið hófst.
En af Kennedy-bókinni hefur ekki
komið út eitt einasta eintak enn.
Málin stóðu þannig, þegar verkfall
iö byrjaði, að eftir var 2-3 tíma
vinna við bókina. Framan af var
reiknað með, að bókbindaraverk-
fallið hæfist ekki, fyrr en á mið-
nætti, en kl. 5 um daginn hættu
þeir. Annars hefði bókin náðst út
að verulegu leyti.
— Hvað um aðrar bækur?
Ambjörn í Setbergi
— Á fyrsta degi eftir að verk-
falli verzlunarfólks lauk gekk
„Dularfulli Kanadamaðurinn”
upp, en búið var að binda mest af
honum, svo að segja má, að upp-
lagið sé þrotið. Sama er að segja
um „Eril og feril blaðamanns”
eftir Árna Óla. Sú bók er búin hjá
okkur, svo að við höfum engar
pantanir á þessum bókum getað af
greitt síðustu daga.
— Hefurðu á hraðbergi nokkrar
tölur um hugsanlegt tjón forlags-
ins vegna verkfallanna?
— Nei, það leggur enginn í að
reikna út tapið, sem af þessu
hlýzt, en það er óskaplegt. Það
hafa allir tapað á þessu, en eng-
inn grætt.
Þorvarður í KRON
Þriðji útgefandinn, sem við leit-
uðum frétta hjá, var Ambjörn
Kristinsson, sem rekur bókaútgáf-
una Setberg sf.
— Framleiðslan á bókum hjá mér
byrjar í janúar, þannig að ég ér
búinn með röska þrjá fjórðu
hluta útgáfubóka ársins, þegar
kemur fram á haustið. Af bókun-
Lárus Blöndal
um, sem seinastar urðu hjá Set-
bergi, voru það aðeins tvær, sem
að fá fullunnar
úr bandi, þegar bókbindarar hófu
verkfallið. Ég hef getað afgreitt
allar pantanir fram að þessu, en
það væri orðið erfitt núna, ef verk
fallinu hefði ekki verið aflétt. Hins
vegar ná endarnir saman, úr því
að svona fór.
dýrar hérlendis. Ég vil leggja
herzlu á það.
— Hvað eru útgáfubækur Set-
bergs margar í ár?
— Þær eru 20. Tvær barnabæk-
ur eru hreinlega uppseldar, og
þjóðsagnasafn Einars Guðmunds-
sonar, „Dulheimar”, er víst eina
bókin, sem ekki var búið að binda
alveg nóg af, þegar verkfallið
skall á. Hún er víst þrotin, en hún
er jafnframt sú eina, sem þannig
er ástatt um.
Á eftir áttum við svo tal við
verzlunarstjórana í þremur bóka-
verzlunum og litum fyrst inn í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti. Steinar Þórð
arson sagðist hafa búizt víð, áð
salan yrði minni en raim hefði
orðið á, þegar við spurðum, hvort
hún hefði verið með eðlilegum
hætti, þrátt fyrir verkfallið. — En
það má segja, að hún sé minni nú
en í desember í fyrra. Þá verður
líka að taka tillit til þess, að flest-
um bókabúðunum og þ.á m. öU-
um þeim stærstu varð að loka í
fjóra daga vegna verkfalls verzl-
unarmanna. Útgefendur náðu
heldur ekki öllum sínum bókum
— Svo að þú hefur ekki orðið
fyrir neinu tjóni?
— Ég get ekki sagt það. Auðvit-
að gildir alveg það sama um bæk-
urnar og aðra vöru, að það eV'
minna keypt af þeim, þegar fólkið
á ekki von á kaupinu sínu í eina
eða tvær vikur í jólamánuðinum.
enda getur það ekki talizt nema
eðlilegt, en ég geri ráð fyrir, að
þegar launþegar hafa náð samn-
ingum og bjartsýnin gerir vart við
sig aftur, snúi þeir sér að bókun-
um, eins og áður, því að þær eru
vinsælar og handhægar til gjafa,
og við bókaútgefendur viljum
líka halda því fram, að þær séu
nauðsynlegar. Og þær eru ekki
Steinar hjá Eymundsson
út úr bókbandsvinnustofunum, og
það gerir strik í reikninginn hjá
öllum aðilum. Okkur hefur vantað
þó nokkrar bækur, sem eru til
hálfunnár í bókbandsvinnustof-
unnm.
— Hafa þá ekki aðrar bækur,
sem ella hefðu selzt minna, verið
keyptar í staðinn?
— Maður getur ekki sagt um
það með neinni vissu, en vafalaust
má finna þess dæmi. Og þess má
að lokum geta, að verzlunin hefur
verið óvenju mikil hjá okkur eft-
ir að opnað var aftur.
Guðmundur hjá Ægisútgáfunni.
Lárus Blöndal: — Það er ekki
gott um það að segja, hvort salan
verður eðlileg, þegar öll kurl
koma til grafar, en hún hefur ver-
ið það fram að þessu. Það verður
lokaspretturinn — síðustu þrjá
dagana, — sfem segir til um það.
Allt bendir til þess, að þrátt
fyrir verkfallið, verði áhrif þess
ekki ýkja mikil, hvað bóksölutta
snertir. Hún virðist enn sem kcm-
3 22. des. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ