Alþýðublaðið - 22.12.1963, Síða 9
ið er ætla að verða alveg sam-
bærileg við það, sem var í fyrra.
Vanalega hafa útgefendur getað
matað okkur á bókunum eftir því,
hvað seldist, og hafa þá hagað
bókbandinu í samræmi við það,
en nú er því ekki til að dreifa, af
því að þeir eiga margir hálfunnar
bækur lokaðar inni í bókbands-
vinnustofunum. Nú þegar eru
þrotnar 6—8 bækur hjá útgefend-
um af þessum sökum.
— Hafa þá ekki aðrar bækur
selzt í staðinn, sem kannski hefði
ekki orðið eins mikil sala í að öðr-
um kosti?
— Tvímælalaust. Það er einmitt
það, sem hefur gerzt í allmörgum
tilfellum.
Þorvarður MagnúSson verzl-
unarstjóri í Bókabúð KRON 1
Bankastræti varð síðastur fyrir
svörum og sagði, að bóksalan væri
áÚt öðruvísi í ár en undanfarið.
Það væri naumast hægt að benda
á nokkra eina bók, sem metsala
væri í, þó að vitanlega seldust þær
misvel. Sala bókanna væri miklu
jafnari riú en áður. Hann sagði, að
KRON væri ekki enn búið að
vinna alveg upp það, sem tapaðist
verkfallsdagana, en það tæki ekki
marga daga. Hjá KRON voru
nokkrar bækur þrotnar vegna þess,
að ekki var hægt að fá þær hjá
forlögunum, en Þorvarður vildi
ekkert fullyrða um, hvort það
hefði haft nokkur veruleg áhrif á
sölu þinna.
Framh. á 10 síðu
-----—---------------------------♦
OLLENHAUER LÁTINN
ERICH OL.LENHAUER, foringi
vestur-þýzkra jafnaðarmanna, lézt
14. desember sl.
Ollenhauer naut mikils álits,
jafnt meðal jafnaðarmanna og
pólitískra andstæðinga. Þetta áiit
kom í Ijós nokkru áður en hann
Iézt, þegar hann var kjörinn aðal-
ritari Alþjóðasambands jafnaðar-
manna. Þetta var í annað sinn í
sögu Alþjóðasambandsins að for-
ystan var falin Þjóðverja- Og ævi
þessa frábæra jafnaðarmanns
sýndi, að vart var völ á betri
manni í embættið.
Ungi gáfaði starfsmaðurinn við
„Magdeburger Volksstimme" var
alltaf . kallaður „Herr Geheim-
rat“ af vinum sínum. Þeir báru
virðingu fyrir hinum 18 ára gamla
múrarasyni. Kvöld eftir kvöld
ræddu þeir vandamál verkamanna,
lýðræði og einræði.
Á árunum Iaust eftir 1920, þeg-
ar ungum áróðursmönnum tókst
að lokka unga hugsjónamenn til
þess að fylkja sér um málstað
kommúni'sta, hafði Erich Ollen-
hauer þegar komizt að þeirri nið-
urstöðu, að hugsjónum jafnaðar-
stefnunnar væri aðeins hægt að ná
með lýðræðislegum leiðum.
Ræða Ollenhauers á fundi sam
taka ungra jafnaðarmann úr verka
mannastétt (SAJ) í Weimar 1920
vakti mikla athygli. Ollenhauer,
sem þá var 19 ára að aldri, var
kjörinn ritari SAJ. Seinna varð
hann formaður hinna nýstofnuðu
alþjóðasamtaka ungra jafnaðar-
manna. Festa hans, rólyndi og
hlutlægni gerði honum kleift að
sameina æsku Evrópu.
Erich Ollenhauer lagði grundvöll
að nýjum skilningi milli jafnað-
armanna sigruðu þjóðanna og
jafnaðarmanna í löndum sigurveg-
aranna á árunum eftir heimsstyrj-
öldina síðari. í 12 ára útlegð sem
hófst í Prag og lauk í London,
tókst honum að efla kynni sín við
jafnaðarmannaforingja af ýmsu
þjóðerni og vinna að hinni „nýju
öldu“ jafnaðarmanna.
Ollenhauer var einn af eftirlæt
isþingmönnum Kurt Schumachers
foringja vestur-þýzkra jafnaðar-
manna eftir styrjöldina og þolin
móður fyrirennari Willy Brandts,
núverandi kanzlaraefnis jafnað-
armanna í Vestur-Þýzkalandi. Oll
enhauer naut mikillar virðingar
sem foringi vestur-þýzkra jafnað-
armanna (SPD) og kom oft fram
fyrir hönd hins lýðræðislega
Þýzkalands í mörgum löndum.
Erich Ollenhauer sóttist aldrei
eftir ,,völdum“ en samkvæmt
hefð flokksins vildi hann heldur
framkvæma vilja meirihlutans.
Þetta er hæfileiki, sem talið var
að mundi koma honum að gagni
Loftskeytamöður-
inn bilaðist
vegna svefnleysis
Reykjavík, 20. des_ÁG.
í GÆR kom togarinn Victrix
H-428 til Seyðisfjarð'ar, og setti
þar á land mann, sem hafði feng-
ið alvarlegt taugaáfall. Var þetta
loftskeytamaður, sem um hádegið
í gær hafði sent út neyðarkail,
tilkynnt að hann væri veikur og
skipstjórinn vildi ekki flytja sig i
land.
í nýja embættinu hjá Aíþjoðasam
bandi jafnaðarmanna en því miður
entist honum' ekki aldur til að
gegna því.
Ollenhauer var heiðarlegur
st.jórnmál am aður og kreddulaus
Marxisti; óþekktur verkamanns-
sonur, sem að lokum varð foringi
Alþjóðasambands jafnaðarmanna-
Hann átti sér enga persónulega ó-
vini þótt hann hlífði öðrum ekki
við gagnrýni, þegar honum þótti
hún nauðsynleg.
Erich Ollenhauer var vingjarn-
legur og góðviljaður maður öll
þau fjörutíu ár sem hann starfaði
fyrir flokkinn, þótt oft væri bros-
Jtð að alvörugefni hans, sem þótti
bera vott um skort á kímnigáfu.
Og þrátt. fyrir það var hann sæmd
ur orðu fyrir orðheppni og kímni
gáfu: á hinu árlega kjötkveðjuhá-
tíðarþingi í Köln.
Þetta skeyti mannsins heyrðist
um borð í öðrum togurum, sem,
þarna voru nálægt, þ.ó ekki betur
en svo, að flestir héldu, að Vic-
trix væri að farast. Herinn á Kefla
víkurflugvelli fékk þessa tilkynn-
ingu, og voru hafnar ráðstafanir
til að koma skipinu til hjálpar.
Herinn hafði og samband við land
helgisgæzluna. En skömmu síðar
kom annað skeyti frá togaranum,
þar sem skipstjórinn skýrði frá
því, að loftskeytamaðurinn hefði
geggjazt, hann væri nú á leið með
hann til lands, en ekkert væri að
um borð.
Loftskeytamaðurinn hafði lengi
þjáðst af svefnleysi, og bilað af
þeim sökum, Hann var þegar flutt
ur á sjúkrahús.
Kjötbúbin
Sími 19750.
Pekingendur
í jólamatinn
BÚRFELL
Gjafakassar
í miklu úrvali frá
HELENA RUBINSTEIN o. fl.
FRÖNSK ILMVÖTN, STEINKVÖTN
í fjölbreyttu úrvali.
Gjafasett
fyrir herra.
Austurstræti 16 (Reykjavíkurapótek).
Sírni 19866.
Odýrar bækur
Seljum á niðursettu verði unglingabækur og
skáldsögur, þýddar og íslenzkar, gefnar út ár-
in 1959, 1960 og 1961.
Allar eru bækur þessar í vönduðu bandi og
utan um þær eru fallegar litprentaðar kápur.
Höfum opið um helgina.
HAGPRENT
Bergþórugötu 3, sími 21650.
Efnagerð Reykjavíkur hf.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. des. 1963 Q