Alþýðublaðið - 22.12.1963, Qupperneq 10
(
AUGLÝ
um takmörkun á umferð í Reykja-
vík fiann 23. og 24. desemher 1963
Ákveðið hefir vérið að gcra eftirfarandi ráðstafanir vegna
mikillar umferðar mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24. des-
ember n.k.:
1. Einstefnuakstur:
a í Pósthússtræti frá Hafnarstræti til suður^.
b. Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs.
c. Á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lindargötu til
norðurs.
2. Bifreiðastöður takmarkaðar:
Bifreiðastöður verði takmarkaðar við Vz klst. á Hverfisgötu
frá Vatnsstíg að Snorrabraut, á eyjunum í Snorrabraut frá
Hverfisgötu að Njálsgötu, á Barónsstíg milli Skúlagötu og
Bergþórugötu, Frakkastíg, Vitastíg, Klapparstíg og Garða-
stræti norðan Túngötu.
Þessi takmörkun gildi mánudaginn 23. desember og til há-
degis þriðjudaginn 24. desember nk. Ennfremur verða
frekari takmarkanir en nú gilda settar um bifreiðastöður
á Laugavegi, í Bankastræti, Aðalstræti og Austurstræti, ef
þörf krefur.
3. Takmörkun á umferð vörubifreiða:
Umferð vörubifreiða, sem eru yfir 1 smálest að burðar-
magni, og fólksbifreiða, 10 farþega og þar yfir, annarra en
strætisvagna, er bönnuð á eftirtöldum götum:
Laugavegi frá Höfðatúni í vestur, Bankastræti, Austur-
stræti, Aðalstræti og Skólavörðustíg fyrir neðan Týsgötu.
Ennfremur er ökukennsla bönnuð á sömu götum. Bannið
gildir frá kl. 13 mánudaginn 23. desember og ,til hádegis
þriðjudaginn 24. desember.
Ferming og afferming er bönnuð við sömu götur á sama
tíma, nema sérstaklega standi á, og þarf þá leyfi lögregl-
unnar til slíkrar undanþágu.
4. Bifreiðaumferð er' bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti
og Hafnarstræti 23. desember, kl. 20—24.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forðist ó-
þarfa akstur þar sem þrengsli eru og að þeir leggi bifreið
um sínum vel og gæti í hvívetna aö trufla ekki eða tefja
umferð.
Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfaranda, að þeir
gæti varúðar í umferðinni, fylgi settum reglum og stuðli
með því að öruggri og skipulegri umferð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 21. desember 1963.
Innilega þökkum við ölltxm, er veittu stuðning í veikindum
ísaks Jónssonar,
skólastjóra
og sýndu samúð við andlát lians og útför. Sérstaklega þökkum við
læknum og hjúkrunarliði á lyflækningadeild Landsspítalans, fræðslu
málastjóra, kennurum og starfsfólki við Skóla ísaks Jónssonar og
skólanefnd, sem bauð að skólinn kostaði útförina í virðingarskyni
við hinn látna.
Einnig færum við Kennaraskólanum og Bamavinafélaginu Sum
argjöf alúðarþakkir.
Sigrún Sigurjónsdóttir og böm.
Þökkum af alhug virðingu og vinarþel við andlát og útför
Jóhannesar Þorsteinssonar
Ásum, Hveragerði
Eiginkona og dætur, tengdasynir og barnabörn.
SAGNSR UM SLYSFARIR
Ludv. _R. Kemp.
Sagnir um slysfarir í Skefils-
staðahrepp á sjó og landi, frá
1800—1950.
Prentsmiðjan Leiftur h.f.
1963.
ÍSLENZK menningarsaga líð-
andi aldar einkennist mjög af rit
un þjóðlegra fræða. Þessi ein-
kenni verða lengi til mikilla fræða,
því af þeim brunni verður lengi
ausið miklu efni í söguritun kom
andi tíma. íslenzkt þjóðfélag er í
sköpun nýrrar aldar, og einkenni
fyrri skeiða í lífsbaráttu og lífs
skoðunum, greinast ekki algjör-
lega að, þó atvinnuhættimir taki
mikil stökk fram á leið. Það verða
komandi kynslóðir, sem vega og
meta gildi hinna ýmsu heimilda,
greina þær til hlítar í fróðleik og
frásögnum. Þjóðlegur fróðleikur
6kráður er því mikil verðmæti,
verðmæti, er ber að meta. Bókin,
Sagnir um slysfarir í Skefilsstaða
hrepp inniheldur mikinn efnivið til
kynslóða í landinu, allsleysi þeirra
ályktana um lífsbaráttu genginna
lifsbaráttu og þraUtseigju geng-
inna kynslóða.
Það var fyrir mörgum áram, að
ég heyrði fyrst stökur eftir Ludv.
R. Kemp. Stökumar vöktu óskipta
athygli mína, sakir hinnar þýðu
kveðandi, lipurðar og hnittni.
Sannur alþýðukveðskapur nýtur
sín ekki, nema hann sé gerður af
högum huga stökuskálds. En list
alþýðuskáldsins er sú ljóðlist, er
ég veit fegursta í formi og dýpt.
Þegar ég frétti, að komin væri út
bók um þjóðleg efni eftir Kemp,
var ég ekki í rónni, fyrr en ég
hafði náð í hana og lesið. Ég varð
ekki fyrir vonbrigðum. Bókin er
hvortveggja í senn skemmtilega
rituð og segir mikla sögu úr einni
afskekktustu byggð landsins, er oft
ast hefur verið af vegi sögu og
sagna liðinna alda.
Á Skaga norður hafa ekki marg
BÓKUM
-V
Reykjavík, 9. des. - GG
BÓKAÚTGÁFAN FRÓÐI sendir
frá sér glæsilega bók um tónskáld-
ið Beethoven eftir Erich Valentin
í þýðingu Jóns Þórarinssonar, tón-
skálds, og nefaist hún „Beethoven,
ævisaga f máli og myndum”. Þetta
er hin glæsilegasta bók, þýdd og
gefin út með leyfi aðalútgefanda,
Kindler Verlag í Mönchen. Fjöldi
mynda, bæði mannamynda og
mynda af handritum o. fl. prýða
bókina, prentaðar í Þýzkalandi af
Kindler und Schiermeyer Druck
í Miinchen.
Bókaútgáfan Fróði hefur samn-
ing vlð Kindler Verlag um útgáfu
á fleiri tónlistarbókum forlagsins,
en um framhald fer að sjálfsögðu
eftir undirtektum þeim, sem. þessi
forlátabók um Beethoven hlýtur.
Þetta er óvenjulega glæsileg bók
og girnileg til fróðleiks ekki sízt
fyrir tónlistarunnendur. Frágang-
urinn er allur hinn glæsilegasti. ,
Ennfremur sendir Fróði frá sér
að þessu sinni skáldsöguna Hornaj-
sinfónía eftir Friðjón Stefánsson.
Bókin er 110 blaðsíður að lengd,
prentuð í Hólum.
ir atburðir Islandssögu gerzt, er
máli skipta. En þrátt fyrir það, er
verðandi sögunnar -í atburðarás og
örlögum fólksins rik í minnum og
heimildum. Starf .bænda og búa-
liðs í Skefilsstað^hreppi á sina
sögu, litríka þeim.jer tengdir eru
byggðinni og vilja%ynnast lífsbar
áttu íbúanna. Eftir að einokun
komst á í landinu,! reyndu verðir
laga og réttar, settir í embætti af
einvaldskonungum,’. að gæta þar
betur ferða erlendrá skipa á víkum
og við nes en annars staðar, sakir
einangmnar byggðarinnar. Þar
áttu bændur betri tækifæri til
verzlunar og viðskipta við „Þjóð-
ir“ en. við breiða firði og víða
flóa. Skagamenn voru kænir í við
skiptum við erlenda duggara, og
útlenda fiskimenn, urðu þeir betur
búnir til útgerðar {og skipa, fær-
ari að stunda sjó o'g halda húsum
sínuml við. En þegar fór að líða
á seinjii helming 18. aldar, hvarf
að mestu launverzlun' fyrir norð-
an land. Það hafði ill áhrif á af-
komu fólks, sérstaklega þar, sem
lífsbjörgin var verulega háð fiski
veiðum.
Ég ætla mér ekki í þessari
stuttu grein, að rekja efni bók-
arinnar. Það yrði alltof langt mál,
og auk þess,lítill greiði við verð-
andi lesendur. Frásagnir Kemps
eru skemmtilegar í framsetningu
og stíl, og njóta sín vel, þrátt fyr-
ir það, að efnið er einhæft. Hon-
um tekst sérstaklega vel, að gera
lýsingar sínar lifandi og á stund-
um í orðatiltækjum og hagyrtum
setningum svo leikandi, að til mik
ið barn. Þetta er í raun réttri ný-
yrði. Einnig vekur það athygli,
hvernig hann minnist aðalsögu-
manns síns í frásögninni. Þar
kcmur greinilega fram hin hag-
lega hnittni, óbrenglaður smekkur
á máli og stíl. Þessi einkenni era
skýr í bókinni allri, og hvergi vik-
ið af leið hins látlausa og alþýð-
lega. Þetta allt eru meginkostir í
alþýðlegum frásögnum.
Lífsbarátta alþýðunnar á íslandi
er oft slungin mörgum þráðum,
óræðum í biturð sinni, blandiu
beizkju og sárindum. Á sjó og
vötnum, fjallvegum og beiðum,
urðu oft háð grimm örlög. Urður
hin illa spann garn sitt, og skóp
ill örlög komnum og ókomnum.
Slys á sjó og landi eru ótalin á
íslandL í þessari bók er saga slysa
rituð í einni sveit um langt skeið.
Tildrög þeirra og atvik rakin eft-
ir beztu heimildum, jafnt skjaUeg-
um sem munnlegum. Landið sjálft
vísar og stundum til atvika í ör-
nefnum og kennileitum. Vegfar-
andi á öld bifreiða og flugvéla,
ber framhjá þeim, án stöðvunar.
En ef til vill nema sumir staðar og
minnast, hversvegna ber þessi stað
ur svo ógnþrungið nafn. Hver var
sá atburður er olli nafninu?
Fræðaþulurinn gefur skýringuna
í frásögnum af löngu liðnum at-
burðum, lífsbaráttu og örlögum
frá liðnum dögum.
Bókin Sagnir um slysfarir í
Skefilsstaðahrepp er að mínu viti,
merk bók, bók, sem vert er að
veita athygli, lesa og læra af. Að
baki ritunar hennar er mikil vinna,
unnin í tómstundum af eljumanni,
er ann sögu þjóðarinnar, tungu
og. örlögum.
Jón Gíslason.
M.s. „Gullfoss"
Af óviðráðanlegum ástæðum breytist brottfarartími m. s.
„GULLFOSS" frá Reykjavík, sem áætlaður var 26. þ. m.
þannig að brottför skipsins verður laugardaginn 28. þ. m.
kl. 9 síðdegis til Hamborgar og Kaupmannahafnar.
Farþegar era beðnir að koma til skips kl. 8.
II. F. EIMSKIFAFÉLAG ÍSLANDS.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til áð bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Bergþórugötu
Hverfisgötu
Lindargötu
Rauðarárholti
Lönguhlíð
Laugatcig
Álftamýri
Skjólunum
Melunttm
Tjarnargötu
Ásgarði.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins
Siml 14 900
10 22. des. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ